Irene Vriezema skrifaði:
Probleem opgelost…
07.04.2025 - 22:16
Irene Vriezema skrifaði:
Bij de hiel, mis ik daar 12 steken? Want je begint met 12 steken van de hiel, dan haal je 13 steken op, je breit de 26 van de wreef, dan haal je 13 steken op. Dan zegt patroon dat je 64 steken hebt… maar de andere 12 steken van de hiel dan?!?
07.04.2025 - 21:41
Pauline skrifaði:
Bonjour, Je tricote actuellement la tige de la taille 41-43. J'ai fait comme indiqué : 5 cm de côtes, 7 cm de jersey puis les 5 diminutions tous les 3 cm, je ne peux donc pas avoir moins une tige de moins de 24 cm. Hors il est indiqué de commencer à tricoter le talon quand l'ouvrage mesure 22 cm... Est-ce une erreur dans le patron et doit-on tricoter 22 cm de jersey avant de commencer le talon ? Merci d'avance pour votre réponse.
19.03.2025 - 20:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Pauline, les 7 cm avant les diminutions sont à mesurer depuis le début de l'ouvrage, autrement dit depuis le rang de montage, soit 2 cm après les côtes. Vous diminuez ainsi 5 x tous les 3 cm soit: 1ère fois à 7 cm, 2ème fois à 10 cm, 3ème fois à 13 cm, 4ème fois à 16 cm et 5ème fois à 19 cm. Tricotez jusqu'à 22 cm , soit encore 3 cm. Bon tricot!
20.03.2025 - 09:52
Larissa skrifaði:
I have a general question on your sock knitting patterns. How do you do the gauge swatches? Do they have to be done in the round or flat?
13.02.2025 - 16:30DROPS Design svaraði:
Dear Larissa, the gauge is done in: stitches x rows. So the gauge is measured flat, not in the round. Happy knitting!
16.02.2025 - 23:54
Marit Blomvik skrifaði:
Bråtet skal strikkes 4 cm ( i minste str) felling skal begynne når arbeidet er 5 cm. Felles 3 ganger , hver 5,5cm. Da kommer jeg 20,5 cm. Allikevel står det videre at arbeidet skal ved 18 cm strikkes hæl. Er det en feil i fellingsangivelsen? Feil cm mellom hver felling?
01.02.2025 - 17:44DROPS Design svaraði:
Hei Marit, Du skal felle 2 masker midt bak x 3, dette blir 2 ganger i tillegg til den første fellingen beskrevet i teksten. Det blir + 11 cm, så skaftet er 16 cm når du er ferdig. Da har du 2 cm til å strikke etterpå. God fornøyelse!
03.02.2025 - 07:25
Hson skrifaði:
Jag har köpt 4 nystan av Fiesta "bär och grädde" som är i detta mönster. Men var ska jag börja på garnet utifrån eller inifrån nystanet? Hur jag än gör så är det inget av de 4 nystanen som har samma färg i början av garnet..... Det är samma dyelot. Hur ska jag då få dem likadant randiga ? Jätteroligt att ni fått dessa nya fina garn, har även köpt dem enfärgat o flera print i Fiesta🙂
21.11.2024 - 17:21DROPS Design svaraði:
Hej Hson. Så roligt att du tycker om garnet! Vill du ha sockarna ska ha samma färg från början så får du leta upp var den färgen börjar i nästa nystan och börja sticka där (dvs klippa bort första biten). Mvh DROPS Design
22.11.2024 - 14:25
Anne Hege Alm-Kristiansen skrifaði:
Jeg ser ikke oppskriften. Hvor finner jeg den?
20.10.2024 - 18:51DROPS Design svaraði:
Hej Anne Hege. Nu finns opskriften på norsk. Mvh DROPS Design
21.10.2024 - 11:29
Cosmic Climbers#cosmicclimberssocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir háir sokkar í sléttprjóni úr DROPS Fiesta. Stærð 35 – 43.
DROPS 253-51 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 12-12-14 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Byrjið 3 lykkjum á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkið er staðsett á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi niður að tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 60-64-72 lykkjur á sokkaprjón 3 með DROPS Fiesta. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4-5-5 cm. Prjónið síðan í sléttprjóni og sokkaprjóna 3,5, jafnframt sem í umferð 1 er fækkað um 8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 52-56-62 lykkjur. Setjið eitt merki í byrjun umferðar = mitt að aftan. Prjónið síðan í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 5-6-7 byrjar úrtaka fyrir miðju að aftan – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA í útskýringu að ofan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Fækkið um 2 lykkjur við miðju að aftan í hverjum 5½-5½-3 cm alls 3-3-5 sinnum = 46-50-52 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 18-20-22 cm. Nú er prjónaður hæll og fótur eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Prjónið yfir fyrstu 11-12-13 lykkjur og haldið lykkjunum eftir á prjóni fyrir hæl, prjónið næstu 24-26-26 lykkjur og setjið þær á þráð (miðja ofan á fæti) og prjónið síðustu 11-12-13 lykkjur í umferð fyrir hæl = 22-24-26 hællykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjurnar í 6-6-6½ cm. Setjið 1 merki mitt í síðustu umferð – síðar á að mæla stykkið frá þessu merki. Prjónið HÆLÚRTAKA – lesið útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 12-12-14 hællykkjur, prjónið upp 13-13-14 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttprjón yfir 24-26-26 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 13-13-14 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hæl =62-64-68 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 merki hvoru megin við 24-26-26 lykkjur ofan á fæti. Prjónið sléttprjón og fækkið lykkjum í hvorri hlið þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur á undan fyrra merki ofan á fæti slétt saman og prjónið fyrstu 2 lykkjur á eftir seinna merki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 4-3-3 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 8-8-8 sinnum = 38-42-46 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 18-20-21 cm frá merki á hæl, mælt undir fæti. Það eru eftir 4-4-5 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 merki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 18-20-22 lykkjur ofan á fæti og 20-22-24 lykkjur undir fæti. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði merkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3-4-4 sinnum = 10-10-10 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjur, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-26 cm frá merki á hæl, mælt undir fæti. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cosmicclimberssocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 253-51
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.