Kathryn skrifaði:
Hvad mener I med “sørg for at næste omgang er en ulige omgang i mønstret”?
25.03.2025 - 15:23DROPS Design svaraði:
Hej Kathryn, du skal sørge for at få mønsterpinden fra retsiden når du begynder at strikke frem og tilbage :)
27.03.2025 - 13:40
Unni Mossestad skrifaði:
Hvilken størrelse er det på modellgenseren?
04.01.2025 - 21:59DROPS Design svaraði:
Hei Unni, Du finner en målskisse på bunnen av oppskriften, med alle mål for de forskjellige størrelsene. Hvis du velger riktig størrelse for dine mål, får du den fasongen som er vist på bildet. God fornøyelse!
06.01.2025 - 08:30
Lynda Kuit skrifaði:
Princess Elegance
19.01.2024 - 09:57
Sand Cove#sandcovesweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með hringlaga hálsmáli, ísaumuðum stuttum ermum, gatamynstri, köðlum og I-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-27 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu. Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur fyrir miðju á þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring upp að handvegi, síðan er ermakúpan prjónuð til loka fram og til baka. Stykkin eru saumuð saman. Í lokin er prjónaður kantur í hálsmáli með i-cord hringinn í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 216-240-264-296-340-376 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 umferðir. Prjónið mynstur A.1 hringinn þar til stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón og fækkið um 44-52-56-64-76-80 lykkjur jafnt yfir = 172-188-208-232-264-296 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 86-94-104-116-132-148 = hliðar á stykki. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9-9-10-10-11-11 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvorn merkiþráð (4 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverjum 2-2-2-2-3-3 cm alls 6-6-6-6-5-5 sinnum í hvorir hlið = 196-212-232-256-284-316 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI: Fellið af fyrstu 3-3-4-4-5-5 lykkjum fyrir handveg, prjónið 92-100-108-120-132-148 lykkjur, fellið af næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið 92-100-108-120-132-148 lykkjur, fellið af síðustu 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka. BAKSTYKKI: = 92-100-108-120-132-148 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-5-6 sinnum og 1 lykkju 1-2-3-3-6-7 sinnum = 86-88-90-92-94-98 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-39-41-43-45-47 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af miðju 34-34-36-36-38-38 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsmáli = 25-26-26-27-27-29 lykkjur á hvorri öxl. Prjónið síðan eins og áður þar til stykkið mælist 39-41-43-45-47-49 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 92-100-108-120-132-148 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og fellið af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki = 86-88-90-92-94-98 lykkjur. Þegar stykkið mælist 31-33-34-36-37-39 cm frá uppfitjunarkanti, setjið miðju 8-8-10-10-12-12 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 4 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 25-26-26-27-27-29 lykkjur á hvorri öxl. Prjónið síðan eins og áður þar til stykkið mælist = 39-41-43-45-47-49 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMAR: Fitjið upp 80-84-96-112-120-128 lykkjur á sokkaprjóna 2,5. Prjónið A.1 hringinn í 2-2-2-3-3-3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-7-12-14-15-16 lykkjur jafnt yfir = 70-77-84-98-105-112 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar. Prjónið mynstur A.2 hringinn þar til ermin mælist 18-18-17-17-16-15 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með oddatölu fjölda í mynstri Í næstu umferð eru felldar af 6-6-8-8-10-10 lykkjur mitt undir ermi fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur hvoru megin við merkiþráðinn) = 64-71-76-90-95-102 lykkjur. Síðan er prjónað fram og til baka í mynstri eins og áður, jafnframt því sem fellt er af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-4-4-4-4-5 sinnum og 1 lykkju 6-7-9-9-12-12 sinnum = 40-41-42-56-55-58 lykkjur. Síðan eru felldar af 2 lykkjur í hvorir hlið í annarri hverri umferð þar til ermin mælist 26-27-27-28-29-29 cm. Fellið af 3 lykkjur í hvorir hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 27-28-28-29-30-30 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. KANTUR Í HÁLSMÁLI MEÐ I-CORD: Notið hringprjón 2,5. Byrjið við annan axlasauminn, frá réttu og prjónið upp ca 106-124 lykkjur meðfram kanti í hálsmáli (ásamt lykkjum sem settar voru á þráð fyrir miðju að framan). Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu. Lyftið 3 nýju lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjónað er með sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndist lítill hólkur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið lítið spor sem bindur saman byrjun og lok á I-cord. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sandcovesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.