Elisabeth Maria Niepagenkemper skrifaði:
Was sind Paarnadeln?
05.12.2024 - 14:28DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Niepagenkemper, hier finden Sie unsere Paarnadeln. Viel Spaß beim Stricken!ç
06.12.2024 - 07:39
Marianne skrifaði:
Waarom steeds gehaakt en haken schrijven als het om een gebreid hartje gaat? Niet echt duidelijk.
02.12.2024 - 19:51
Nerea skrifaði:
Buona sera. Cosa vuol dire 1 costa in altezza? Come si lavora? Grazie
29.11.2024 - 21:06DROPS Design svaraði:
Buonasera Nerea, 1 costa in altezza sono 2 ferri a maglia legaccio, come indicato nel modello. Buon lavoro!
03.12.2024 - 22:43
Marjolein skrifaði:
De termen haken en breien worden voortdurend door elkaar gebruikt. Is dit een fout? Het is zeer verwarrend.
31.10.2024 - 21:41
Marga skrifaði:
En los tip para aumentos dice : Deslizar la hebra al aguja derecha como de derecho, colocarla de vuelta retorcida en la aguja izquierda, trabajar de derecho en el bucle anterior Que quiere decir en el bucle anterior? Gracias
12.09.2024 - 07:54DROPS Design svaraði:
Hola Marga, el punto tiene dos bucles o hebras, el bucle anterior o delantero y el bucle posterior. Esta es la forma normal de trabajar los puntos, en vez de trabajar en el bucle posterior, que se hace para retorcer más los puntos.
22.09.2024 - 23:31
Sunita skrifaði:
Your designs are marvellous and I really want to try all of them!🎉💕👌
22.08.2024 - 05:24
Delphine Wauty skrifaði:
Petit modèle bien sympa à faire et très rapide. A la portée des novices ;-)
22.04.2024 - 19:34
Seasonal Beat#dropsseasonalbeat |
|
![]() |
![]() |
Prjónað hjarta / jólaskraut úr DROPS Lima og DROPS Kid-Silk í garðaprjóni. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1616 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Aukið út í hverri umferð frá réttu þannig: Prjónið fram að lykkju með prjónamerki (miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið miðjulykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúið þannig: Á UNDAN MIÐJULYKKJU: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn verður snúinn, prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR MIÐJULYKKJU: Prjónið uppsláttinn snúið slétt. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum í hverri umferð frá réttu þannig: Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HJARTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hjartað er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp. Til að kanturinn verði fallegur, verður að prjóna ystu lykkjuna í hvorri hlið aðeins fast. HJARTA: Fitjið upp 3 lykkjur á prjóna 3,5 með 1 þræði DROPS Lima og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (rétta): Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju í umferð. Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju – lesið ÚTAUKNING = 5 lykkjur. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið slétt, en miðjulykkjan er prjónuð brugðið og uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður snúið slétt eins og útskýrt er í leiðbeiningum um útaukningu, svo ekki myndist gat. Síðan er miðjulykkjan prjónuð í sléttprjóni og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, jafnframt er aukið út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 8 sinnum = 19 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 9 lykkjur slétt (munið eftir að uppslátturinn á að vera snúinn) og setjið þessar lykkjur á 1 þráð eða á hjálparprjón, prjónið 2 lykkjur snúið slétt saman, 8 lykkjur slétt. Stykkið mælist ca 4 cm meðfram hvorri hlið. Hvor hlið er síðan prjónuð til loka hvor fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. HLUTI-1: = 9 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur (þ.e.a.s. 4 umferðir slétt). Síðan er prjónað þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt og fækkið um 1 lykkju í byrjun umferðar – lesið ÚRTAKA = 8 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið slétt og fækkið um 1 lykkju í byrjun og 1 lykkju í lok umferðar – munið eftir ÚRTAKA = 6 lykkjur. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið slétt og fækkið um 1 lykkju í byrjun umferðar = 5 lykkjur. Í næstu umferð (ranga) er lykkjum fækkað þannig: 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið innstu lykkju á hægri prjóni yfir ystu lykkju á hægri prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, lyftið innstu lykkju á hægri prjóni yfir ystu lykkju. Klippið þráðinn og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. HLUTI-2: = 9 lykkjur. Byrjið frá réttu og prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Síðan er prjónað þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt og fækkið um 1 lykkju í lok umferðar – lesið ÚRTAKA = 8 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið slétt og fækkið um 1 lykkju í byrjun og 1 lykkju í lok umferðar – munið eftir ÚRTAKA = 6 lykkjur. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið slétt og fækkið um 1 lykkju í lok umferðar = 5 lykkjur. Í næstu umferð (ranga) er lykkjum fækkað þannig: 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið innstu lykkju á hægri prjóni yfir ystu lykkju á hægri prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, lyftið innstu lykkju á hægri prjóni yfir ystu lykkju. Klippið þráðinn og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Festið þræðina. LYKKJA: Klippið 2 þræði DROPS Kid-Silk ca 16 cm, þræðið þræðina í gegnum miðjulykkjuna efst á hjartanu og hnýtið hnút í endann. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsseasonalbeat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1616
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.