Snowslide Mittens#snowslidemittens |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir og þæfðir vettlingar úr DROPS Lima.
DROPS 242-49 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR (á við um stroff): 5 umferðir með litnum rauður múrsteinn 5 umferðir með litnum blush 5 umferðir með litnum rauður múrsteinn 5 umferðir með litnum blush Afgangur af vettlingi er prjónaður með litnum blush. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Byrjið 3 lykkjum á undan lykkju með merki í, prjónið 2 lykkju slétt saman, 3 lykkjur slétt (merkið situr í miðju af þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um op fyrir þumalfingur): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. Þegar vettlingarnir hafa verið prjónaðir til loka eru þeir þæfðir. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 48-54 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með DROPS Lima í litnum rauður múrsteinn. Prjónið stroff hringinn (3 lykkjur snúnar slétt, 3 lykkjur brugðið) og RENDUR – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 2 cm, fækkið lykkjum þannig: * Prjónið 1 lykkju snúna slétt, 2 lykkju snúnar slétt saman, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 40-45 lykkjur. Prjónið stroff með 2 lykkjur snúnar slétt, 3 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 8 cm og rendur hafa verið gerðar til loka. Setjið 1 merki í síðustu lykkju í umferð. Prjónið síðan sléttprjón í litnum blush jafnframt er aukið út fyrir opi fyrir þumalfingur með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki í – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út utan með útauknu lykkjum í 4. hverri umferð alls 4-6 sinnum = 48-57 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 16-17 cm (útaukningu fyrir opi fyrir þumalfingur á að vera lokið), setjið lykkju með merki + útauknar lykkjur + 1 lykkju hvoru megin við þessar lykkjur á þráð fyrir þumalfingur = 11-15 þumallykkjur. Prjónið í hring eins og áður og fitjið jafnframt upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 40-45 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 11½-12 cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp yfir opi fyrir þumalfingur. Stykkið mælist ca 27½-29 cm frá uppfitjunarkanti. Nú byrjar úrtaka efst á vettlingi. Setjið 1 merki í hvora hlið á vettlingi þannig: Setjið 1 merki í fyrstu lykkju í umferð og 1 merki í 21.-23. lykkju í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði merkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-4 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3-5 sinnum = 8-9 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 32½-34 cm ofan frá og niður. ÞUMALFINGUR: Setjið til baka 11-15 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 3 lykkjum sem fitjaðar voru upp aftan við þumalfingur = 14-18 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumalfingurinn mælist ca 5-6 cm. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 3 lykkjur jafnt yfir = 11-15 lykkjur. Prjónið 3 umferðir án úrtöku. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 3-5 lykkjur jafnt yfir = 8-10 lykkjur. Prjónið áfram þar til þumalfingurinn mælist 7½-8½ cm. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman umferðina hringinn = 4-5 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þræðinum í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 48-54 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með DROPS Lima í litnum rauður múrsteinn. Prjónið stroff hringinn (3 lykkjur snúnar slétt, 3 lykkjur brugðið) og RENDUR – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 2 cm, fækkið lykkjum þannig: * Prjónið 1 lykkju snúna slétt, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 40-45 lykkjur. Prjónið stroff með 2 lykkjur snúnar slétt, 3 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 8 cm og rendur hafa verið gerðar til loka. Setjið 1 merki í fyrstu lykkju í umferð. Prjónið síðan sléttprjón í litnum blush jafnframt er aukið út fyrir opi fyrir þumalfingur með því að auka út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki í – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út utan með útauknu lykkjum í 4. hverri umferð alls 4-6 sinnum = 48-57 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 16-17 cm (útaukningu fyrir opi fyrir þumalfingur á að vera lokið), setjið lykkju með merki + útauknar lykkjur + 1 lykkju hvoru megin við þessar lykkjur á þráð fyrir þumalfingur = 11-15 þumallykkjur. Prjónið í hring eins og áður og fitjið jafnframt upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 40-45 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 11½-12 cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp yfir opi fyrir þumalfingur. Stykkið mælist ca 27½-29 cm frá uppfitjunarkanti. Nú byrjar úrtaka efst á vettlingi. Setjið 1 merki í hvora hlið á vettlingi þannig: Setjið 1 merki í 21.-23. lykkju í umferð og setjið 1 merki í síðustu lykkju í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði merkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-4 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3-5 sinnum = 8-9 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 32½-34 cm ofan frá og niður. Prjónið þumalfingurinn á sama hátt og á vinstri vettlingi. ÞÆFING: Til þess að koma í veg fyrir að þumalfingurinn þæfist saman, snúið vettlingnum við og setjið lítinn plastpoka í þumalfingurinn. Festið hann með nælu – ATH: Festið næluna lóðrétt niður að topp á þumalfingri þannig að auðvelt sé að taka hana úr eftir þæfingu. Snúið vettlingnum til baka þannig að vettlingurinn þæfist með réttuna út. Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík Í ÞVOTTAVÉL: Þvottavélar þæfa mismunandi. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt GERIÐ ÞANNIG: Settu stykkið í þvottavélina, notaðu þvottakerfi sem tekur um 40 mínútur (ekki ullarþvottakerfi). Þvoðu við 40°C án forþvottar - sápa er valfrjáls. Eftir þvott skaltu móta stykkið á meðan það er enn blautt. Í ÞURRKARA: Að þæfa stykki í þurrkara gefur góða stjórn á því hversu mikið stykkið þæfist. Hægt er að opna þurrkarann á meðan á ferlinu stendur til að athuga stærð verksins. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt. GERIÐ ÞANNIG: Leggið stykkið allt í bleyti í vatn. Setjið stykkið síðan í þurrkara og byrjið að þurrka. Þurrkið þar til stykkið er í þeirri stærð sem óskað er eftir - athugið á meðan á ferlinu stendur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowslidemittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 242-49
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.