Menna skrifaði:
Re my question…. just realised that this is a very small bag !! 🤣
18.03.2024 - 00:36
Menna skrifaði:
How do you make the middle section between the circular base and the handle please I can’t seem to find instructions for this part - or perhaps I’ve missed something?
18.03.2024 - 00:33DROPS Design svaraði:
Dear Menna, the middle section is explained here: "Work a total of 10 rounds. The piece measures approx. 5 cm from the middle and there are 60 double crochets. Insert 1 marker on the last round to measure from. Work 1 double crochet in each double crochet until the piece measures 12 cm from the marker." You finish the base when the piece measures approx. 5cm from the middle and you have 60 double crochets. Then work 1dc in each dc for 12 cm. Since you work straight, the piece will fold upwards naturally. Happy crochetting!
18.03.2024 - 01:20
Marja skrifaði:
Joanna je hebt gelijk, de foto toont iets anders dan het patroon!
03.11.2023 - 08:20
Joanna skrifaði:
It seems there is a mistake and stitch count for the handle. It seems that we are adding 5×2 stitches for handles so the total should be 70.
22.10.2023 - 04:34
Cat Tricks Bag#cattricksbag |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Hekluð karfa / taska með kisuandliti úr DROPS Paris. Stykkið er heklað í hring, neðan frá og upp. Þema: Halloween.
DROPS Children 47-31 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR (fastalykkjur í spíral): Það er heklað í hring í spíral án þess að enda umferðina. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð til að auðveldara sé að sjá hvar umferðin byrjar. Í umferð 2 er 1. fastalykkjan hekluð í 1. fastalykkju frá byrjun umferðar 1, heklið eins og útskýrt er í mynstri þar til heklað hefur verið í allar fastalykkjur frá umferð 1. Umferðin endar ekki, en í 1. fastalykkju í byrjun á næstu umferð er heklað í 1. fastalykkju frá fyrri umferð. Í síðustu umferð endar umferð með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í byrjun umferðar. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A og B. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KARFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá botni og upp. Í lokin er saumað út andlit framan á körfu. KARFA: Notið heklunál 3,5 og DROPS Paris í litnum svartur eða lime. Heklið 2 loftlykkjur, nú á að hekla umferð 1 í 2. loftlykkju frá heklunálinni þannig: UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur í 2. loftlykkju – lesið HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2. Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 2 fastalykkjur í fyrstu / næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 6 sinnum = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 2 fastalykkjur í fyrstu / næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hvora af 2 næstu fastalykkjum *, heklið frá *-* alls 6 sinnum = 24 fastalykkjur. Haldið áfram með fastalykkjur og aukið út 6 fastalykkjur í hverri umferð, aukið út á sama hátt og í fyrri umferð, það verður 1 fastalykkja fleiri á milli hverra útaukninga í hverri umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið svona þar til heklaðar hafa verið 10 umferðir, stykkið mælist ca 5 cm frá miðju og út, það eru 60 fastalykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki til að mæla frá í síðustu umferð. Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til stykkið mælist ca 12 cm frá prjónamerki. HANDFANG: Nú er heklað handfang í hvorri hlið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 10 lykkjum, heklið 15 loftlykkjur, hoppið yfir næstu 10 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 20 lykkjum, heklið 15 loftlykkjur, hoppið yfir næstu 10 fastalykkjur og heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 10 fastalykkjum. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 70 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið þráðinn og festið. ÚTSAUMUR: Notið afgangsgarn og saumið út andlit mitt framan á körfunni – sjá mynd. Notið flatsaum eins og útskýrt er í mynsturteikningu A og saumið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu B |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cattricksbag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 47-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.