Autumn Blaze#autumnblazesweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með háum kanti í hálsmáli, köðlum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 245-17 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. TILFÆRSLA Á LYKKJUM Í HÁLSMÁLI: VINSTRA FRAMSTYKKI: Fækkað er um 1 lykkju á undan 1 lykkju slétt + A.2 og aukið út um 1 lykkju á eftir A.2 + 2 lykkjur slétt þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan A.2, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, A.2, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina eins og áður. Til að koma í veg fyrir að hálsmálið dragist saman, aukið út um 1 lykkju án þess að fækka lykkjum á eftir 3. hverja útaukningu / úrtöku. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð og uppslátturinn er prjónaður jafnóðum inn í stroffprjón 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið (séð frá réttu). Þ.e.a.s. aukið út lykkjur og fækkið lykkjum þannig: UMFERÐ 1: aukið út og fækkið lykkjum UMFERÐ 2-4: prjónið eins og áður UMFERÐ 5: aukið út og fækkið lykkjum UMFERÐ 6-8: prjónið eins og áður UMFERÐ 9: aukið út og fækkið lykkjum UMFERÐ 10: prjónið eins og áður UMFERÐ 11: aukið út UMFERÐ 12: prjónið eins og áður Endurtakið þessar 12 umferðir. HÆGRA FRAMSTYKKI: Aukið út 1 lykkju á undan 2 lykkjur slétt + A.2 og fækkið lykkjum á eftir A.2 + 2 lykkjur slétt þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, A.2, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið út umferðina eins og áður. Aukið út lykkjur og fækkið lykkjum á sama hátt og á vinstra framstykki. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 34, 41, 48 og 55 cm M: 36, 43, 50 og 57 cm L: 38, 45, 52 og 59 cm XL: 39, 47, 54 og 61 cm XXL: 41, 49, 56 og 63 cm XXXL: 43, 51, 58 og 65 cm Fellið af fyrir síðasta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 6 cm. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndast göt. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp og frágangur er eins og útskýrt er í uppskrift. Það er formað hálsmál með því að færa lykkjur til þannig að það verða fleiri lykkjur í stroffi við miðju að framan og færri lykkjur í sléttprjóni að hlið. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / hringprjóna, neðan frá og upp. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 87-96-102-111-120-129 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-10-10-11-10-11 lykkjur jafnt yfir = 78-86-92-100-110-118 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Nú er prjónað sléttprjón með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 2-5-6-8-12-14 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 74-76-80-84-86-90 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 36-36-36-42-42-42 lykkjur af fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsmáli = 18-19-21-20-21-23 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 92-98-104-116-122-134 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði úr DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 21-24-27-33-36-42 lykkjur, 1 lykkja slétt, prjónið A.1, 2 lykkjur slétt, A.1, 2 lykkjur slétt, A.1, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 21-24-27-33-36-42 lykkjur, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Nú er prjónað þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 22-25-28-34-37-43 lykkjur sléttprjón, jafnframt er fækkað um 1-0-0-2-0-2 lykkjur jafnt yfir, A.2, 2 lykkjur slétt, A.2, 2 lykkjur slétt, A.2, 22-25-28-34-37-43 lykkjur sléttprjón, jafnframt er fækkað um 1-0-0-2-0-2 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 90-98-104-112-122-130 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju og 21-25-28-32-37-41 lykkjum sléttprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm. Nú skiptist stykkið og nú er aukið út og lykkjum fækkað í umferð til að forma hálsmálið. Setjið síðustu 45-49-52-56-61-65 lykkjur á þráð, prjónið síðan yfir fyrstu 45-49-52-56-61-65 lykkjur þannig: VINSTRA FRAMSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 21-25-28-32-37-41 lykkjur, A.2 eins og áður, 2 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur sléttprjón og fitjið upp 4 lykkjur í lok umferðar = 49-53-56-60-65-69 lykkjur. Prjónið frá röngu þannig: 7 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið A.2, prjónið út umferðina eins og áður. Haldið áfram með þetta mynstur og prjónið TILFÆRSLA Á LYKKJUM Í HÁLSMÁLI – lesið útskýringu að ofan (munið eftir úrtöku fyrir handveg – sjá að neðan). Aukið út um 1 lykkju og fækkið um 1 lykkju í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) alls 12-12-12-15-15-15 sinnum. ATH! Að auki er aukið út um 1 auka lykkju eins og útskýrt er í TILFÆRSLA Á LYKKJUM Í HÁLSMÁLI alls 4-4-4-5-5-5 sinnum. Nú koma til með að verða fleiri og fleiri lykkjur í stroffi við miðju að framan og færri og færri lykkjur í sléttprjóni að hlið. Lykkjum er fækkað og aukið hvoru megin við A.2. A.2 + 2 lykkjur í sléttprjóni eiga að halda áfram upp úr og færast til út að öxl. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm fellið af 2-5-6-8-12-14 fyrstu lykkjur frá hlið fyrir handveg. Þegar tilfærsla á lykkjum í hálsmáli er lokið, eru 51-52-54-57-58-60 lykkjur í umferð. Haldið áfram þar til stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir kaðal í A.2 og fellið síðan af fyrstu 18-19-21-20-21-23 lykkjur frá hlið = 27-27-27-31-31-31 lykkjur í umferð. Geymið stykkið og prjónið hægra framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 4 nýjar lykkjur á prjóninn, setjið til baka 45-49-52-56-61-65 lykkjur á prjóninn og prjónið 45-49-52-56-61-65 lykkjur af þræði þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, A.2, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 49-53-56-60-65-69 lykkjur. Prjónið frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 21-25-28-32-37-41 lykkjur sléttprjón, A.2 eins og áður, 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið og 7 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur og prjónið TILFÆRSLA Á LYKKJUM Í HÁLSMÁLI – lesið útskýringu að ofan (munið eftir úrtöku fyrir handveg – sjá að neðan). Aukið út um 1 lykkju og fækkið um 1 lykkju í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) alls 12-12-12-15-15-15 sinnum. ATH! Að auki er aukið út um 1 auka lykkju eins og útskýrt er í TILFÆRSLA Á LYKKJUM Í HÁLSMÁLI alls 4-4-4-5-5-5 sinnum. Nú koma til með að verða fleiri og fleiri lykkjur í stroffi við miðju að framan og færri og færri lykkjur í sléttprjóni að hlið. Lykkjum er fækkað og aukið hvoru megin við A.2. A.2 + 2 lykkjur í sléttprjóni eiga að halda áfram upp úr og færast til út að öxl. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm fellið af 2-5-6-8-12-14 fyrstu lykkjur frá hlið fyrir handveg. Þegar tilfærsla á lykkjum í hálsmáli er lokið, eru 51-52-54-57-58-60 lykkjur í umferð. Haldið áfram þar til stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir kaðal í A.2 og fellið síðan af fyrstu 18-19-21-20-21-23 lykkjur frá hlið = 27-27-27-31-31-31 lykkjur í umferð ERMI: Fitjið upp 45-45-48-48-51-54 lykkjur á sokkaprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroffprjón (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 8 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar = mitt undir ermi. Síðan er prjónað sléttprjón. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-12-11-12-10-13 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3-3-2½-2½-2 cm millibili alls 10-12-12-13-13-13 sinnum = 65-69-72-74-77-80 lykkjur. Þegar ermin mælist 49-47-46-45-42-41 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjón að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 50 cm í öllum stærðum, þ.e.a.s. það er klauf ca 1-3-4-5-8-9 cm efst á ermi. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Síðan er klaufin saumuð efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma, en skiljið eftir neðstu 8 cm = klauf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4, prjónið yfir 27-27-27-31-31-31 lykkjur frá hægra framstykki, prjónið upp 37-37-37-45-45-45 lykkjur frá kanti í hálsmáli á bakstykki, prjónið yfir 27-27-27-31-31-31 lykkjur frá vinstra framstykki = 91-91-91-107-107-107 lykkjur í umferð. Fyrsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 8 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Leggið hægri kant að framan yfir vinstri kant að framan og saumið opið saman neðst. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnblazesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.