Cathia THERY LE STRAT skrifaði:
Merci de votre retour. Je suis en train de crocheter le modèle Drops 241-12 Drops Design Modèle e-347. Je suis débutante et j'ai un doute quant aux augmentations, dois-je les faire vraiment à 5 mailles du bord de l'ouvrage ou à 5 mailles du bord de A.3 ? Merci beaucoup. Cathia
26.06.2023 - 21:33DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Thery Le Strat, vous devez augmenter à 5 mailles des bords, autrement dit dans la 5ème maille au début du rang et dans la 5ème maille avant la fin du rang. Ainsi, vous allez augmenter en crochetant 2 brides dans la 5ème maille de A.2 au début du rang et 2 brides dans la 1ère maille de A.2 à la fin du rang. Bon crochet!
27.06.2023 - 08:53
Veerle Vanhooydonck skrifaði:
Ik ben een S aan het haken maar dit valt precies super smal uit. Ook 7cm voor het bandje lijkt mij precies kort Zijn het kleine maten? Kan ik ergens lezen welke maat welke breedte ongeveer is? Mvg Veerle
08.06.2023 - 13:32DROPS Design svaraði:
Dag Veerle,
Onderaan de beschrijving vind je een maattekening, waarin de afmetingen voor elke maat zijn aangegeven.
10.06.2023 - 18:29
Alma skrifaði:
Buongiorno qui però l'asterisco della sezione A3 mi dice che questa riga è già stata lavorata per questo motivo non so da che riga devo iniziare grazie
07.05.2023 - 07:09DROPS Design svaraði:
Buonasera Alma, può passare alla riga successiva. Buon lavoro!
07.05.2023 - 21:48
Alma skrifaði:
Buonasera non riesco a capire da dove devo iniziare la sezione A3 della taglia SM se ai lati delle prime righe appaiono gli asterischi sia di A2 che di A3 ho guardato la foto del modello ma non capisco come segue il lavoro
05.05.2023 - 19:25DROPS Design svaraði:
Buonasera Alma, deve lavorare A.3 sulle nuove maglie del collo. Buon lavoro!
06.05.2023 - 22:36
Beach Slipover skrifaði:
Beach slipover
19.01.2023 - 09:44
Vicky Williams skrifaði:
Another lovely design. Think this would be interesting to crochet, without being too complicated. So many lovely summery colours to choose from with Safran.
17.01.2023 - 14:51
Scent of Lilac#scentoflilactop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Heklaður toppur / bolur úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður í gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-12 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. LEIÐBEININGAR: Stykkinu er snúið við í hverri umferð sem er hekluð. Þ.e.a.s. önnur hver umferð er hekluð frá réttu og frá röngu þannig: Fyrsta umferð er hekluð frá réttu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkjju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá réttu á stykki. Haldið svona áfram fram og til baka, til skiptis með eina umferð frá réttu og eina umferð frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er fyrst heklað fram og til baka, ofan frá og niður og hvort fyrir sig, síðan eru stykkin sett saman og heklað er í hring. BAKSTYKKI: Heklið 13-13-15-15-17-17 LOFTLYKKJA – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 3 með DROPS Safran. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, 1 stuðull í hverja af næstu 9-9-11-11-13-13 loftlykkjum = 11-11-13-13-15-15 stuðlar. Heklið A.1. Endurtakið 2 efstu umferðir í A.1 þar til stykkið mælist ca 7 cm, geymið stykkið og heklið annað band / hlýra á öxl alveg eins. Síðan er heklað yfir bæði böndin / hlýra á öxl þannig: Heklið 1 stuðul í hverja af 11-11-13-13-15-15 lykkjum frá fyrra bandi / hlýra á öxl, heklið 43-47-51-55-63-67 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja af 11-11-13-13-15-15 lykkjur frá seinna bandi / hlýra á öxl = 65-69-77-81-93-97 lykkjur. Í næstu umferð er heklað þannig: Heklið A.2 yfir fyrstu 5 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul í hverja loftlykkju þar til 5 stuðlar eru eftir, heklið A.2. Lestu allan næsta kafla, nú eru heklaðar 2 umferðir með mynstri eins og útskýrt er að neðan, jafnframt því sem útaukning byrjar fyrir handveg í hvorri hlið frá fyrstu umferð: Í 2 næstu umferðum er heklað A.3 yfir nýju stuðlana í hálsmáli, A.2 yfir 5 ystu stuðla í hvorri hlið og 1 stuðul í hverja lykkju yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar A.3 hefur verið heklað til loka, heklið 1 stuðul í hverja lykkju og A.2 í hvorri hlið. JAFNFRAMT frá fyrstu umferð í A.3 er aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið, aukið út með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul, aukið er út í 5. lykkju inn frá hvorri hlið. Aukið út í hverri umferð alls 11-12-13-14-16-17 sinnum. Eftir alla útaukningu eru 87-93-103-109-125-131 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-18-19-19-21-22 cm. Endið með umferð frá röngu, klippið þráðinn. FRAMSTYKKI: Heklið alveg eins og á bakstykki, en ekki klippa þráðinn frá. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru stykkin hekluð saman. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul/loftlykkju frá framstykki, heklið 8-12-12-18-16-20 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hvern stuðul frá bakstykki/loftlykkju, heklið 8-12-12-18-16-20 loftlykkjur. Stykkið er núna heklað áfram í hring, en til að áferðin verði alveg eins út allan toppinn er önnur hver umferð hekluð frá réttu og frá röngu – lesið LEIÐBEININGAR. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul/loftlykkju = 190-210-230-254-282-302 stuðlar. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá þar sem stykkin voru sett saman. Heklið 1 umferð þar sem aukið er út um 14 stuðla jafnt yfir = 204-224-244-268-296-316 stuðlar. Heklið A.4 yfir allar lykkjur. Þegar A.4 hefur verið heklað einu sinni á hæðina er toppurinn tilbúinn. Klippið þráðinn frá og festið. Toppurinn mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #scentoflilactop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.