Minna Soirio skrifaði:
Jag ser diagram bara fram till A.3, men i mönstret står det att det ska finnas till A.10. Ska jag köpa resten och var kan jag göra det i sånna fall?
23.05.2023 - 16:12DROPS Design svaraði:
Hej Minna, alle diagrammer ligger nederst i opskriften og er helt gratis. Du finder dem lige ovenfor måleskitsen nederst :)
24.05.2023 - 07:24
Silvia skrifaði:
Hola: en la descripción del patrón se relacionan 6 tallas pero en el dibujo sólo hay 5 tallas ¿cómo es la correspondencia de talla del patrón y las medidas del dibijo? Muchas gracias
04.05.2023 - 09:11DROPS Design svaraði:
Hola Silvia, solo hay 5 tallas: XS - S/M - L - XL - XXL. La talla S/M es una talla intermedia entre ambas, y no dos tallas separadas. Por lo tanto, cada medida del dibujo se corresponde a una de las tallas. Para más información, puedes leer la siguiente lección: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=24&cid=23
07.05.2023 - 13:06
Jennifer Carvalho skrifaði:
Is there a pattern for a sweater with a back elevation? Thank you
26.04.2023 - 14:38DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Carvalho, sure we do, but there is no tag for this, so that you might have to check our patterns for jumpers worked top down (in the requested tension/type) to check if they do have an elevation on mid back. Happy knitting!
26.04.2023 - 16:38
Gleena Goriel skrifaði:
Summer holiday, summer breeze
19.01.2023 - 20:13
Me skrifaði:
Sunny waves
19.01.2023 - 16:32
Kari Little skrifaði:
Golden Sands
19.01.2023 - 10:21
Elisabeth skrifaði:
Golden Hour
18.01.2023 - 19:58
June skrifaði:
Breeze
18.01.2023 - 18:12
Deborah Molitz skrifaði:
Flow
18.01.2023 - 17:39
Trine skrifaði:
Sunny day top
18.01.2023 - 13:23
Canary Belle Top#canarybelletop |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með öldumynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 240-13 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er fyrst prjónað fram og til baka, ofan frá og niður, hvort fyrir sig. Síðan eru stykkin sett saman og stykkið er prjónað áfram í hring. FRAMSTYKKI: Hægri öxl: Fitjið upp 8-9-10-11-11 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 7-7-8-8-9 cm – endið með umferð frá röngu, klippið þráðinn. Geymið stykkið. Vinstri öxl. Fitjið upp 8-9-10-11-11 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 7-7-8-8-9 cm – endið með umferð frá röngu. Nú eru stykkin tvö prjónuð saman þannig: Prjónið eins og áður yfir 8-9-10-11-11 lykkjur frá vinstri öxl, fitjið upp 31-36-39-44-50 nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmál, prjónið 8-9-10-11-11 lykkjur frá hægri öxl = 47-54-59-66-72 lykkjur. Prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, í síðustu umferð er aukið út um 5-5-7-7-8 lykkjur jafnt yfir = 52-59-66-73-80 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, A.1 þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 lykkjur garðaprjón. Prjónið og aukið út eins og útskýrt er í A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 88-101-114-127-140 lykkjur í umferð (síðasta umferð er prjónuð frá röngu). Haldið áfram með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið og A.2 yfir lykkjur í A.1 þar til stykkið mælist ca 18-19-20-21-22 cm frá uppfitjunarkanti, endið með umferð frá röngu. Geymið stykkið og prjónið bakstykki á sama hátt, endið í sömu umferð í mynstri eins og á framstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru stykkin tvö prjónuð saman þannig: Prjónið A.2 yfir 88-101-114-127-140 lykkjur á bakstykki, fitjið upp 3 nýjar lykkjur, prjónið A.2 yfir 88-101-114-127-140 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 3 nýjar lykkjur = 182-208-234-260-286 lykkjur. Haldið áfram með A.2 yfir 78-91-104-117-130 lykkjur í öldumynstri frá framstykki og bakstykki og GARÐAPRJÓN yfir 13 lykkjur í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir garðaprjón yfir 13 lykkjur í hvorri hlið, prjónast þær einnig í A.2, byrjið alveg eins og afgangur af toppi. Haldið áfram með A.2 yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem stykkið var sett saman, prjónið A.3 yfir allar lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 238-272-306-340-374 lykkjur í umferð. Prjónið A.4 2-2-2-2-2 sinnum á hæðina. Prjónið A.5. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 266-304-342-380-418 lykkjur í umferð. Prjónið A.6 alls 2-3-3-3-3 sinnum á hæðina. Prjónið A.7. Þegar A.7 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 294-336-378-420-462 lykkjur í umferð. Prjónið A.8 alls 2-2-3-3-3 sinnum á hæðina. Prjónið A.9. Þegar A.9 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 322-368-414-460-506 lykkjur í umferð. Prjónið A.10 alls 1-1-1-2-3 sinnum á hæðina. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. Toppurinn mælist ca 46-49-52-55-58 cm frá öxl. FRÁGANGUR: Saumið saman böndin á öxlum / hlýra efst á hvorri öxl. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #canarybelletop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.