Squared Rainbow |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Hekluð peysa með klauf í hliðum í DROPS Paris. Stykkið er heklað frá miðju og út með hekluðum ferningum og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 240-18 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: Það eru heklaðar rendur þannig: Heklið 1 umferð í hverjum lit þannig: litur 100, ljós þveginn litur 31, fjólublár litur 12, rauður litur 70, kirsuberjablóm litur 71, mandarína litur 21, myntugrænn litur 70, kirsuberjablóm litur 06, kirsuber litur 21, myntugrænn litur 57, babybleikur litur 17, natur litur 02, ljós turkos litur 100, ljós þveginn litur 31, fjólublár litur 08, dökk fjólublár litur 100, ljós þveginn litur 21, myntugrænn litur 11, ópalgrænn litur 71, mandarína litur 70, kirsuberjablóm litur 12, rauður litur 31, fjólublár Þegar rendurnar hafa verið heklaðar 1 sinni á hæðina, heklið rendur þannig: litur 08, dökk fjólublár litur 100, ljós þveginn litur 21, myntugrænn litur 11, ópalgrænn litur 71, mandarína litur 70, kirsuberjablóm litur 12, rauður litur 31, fjólublár Endurtakið þessar rendur. Rendurnar koma til með að enda á mismunandi stöðum eftir stærðum. RENDUR ERMI: Það eru heklaðar rendur þannig: Heklið 1 umferð af hverjum lit þannig: litur 21, myntugrænn litur 70, kirsuberjablóm litur 06, kirsuber litur 21, myntugrænn litur 57, babybleikur litur 17, natur litur 02, ljós turkos litur 100, ljós þveginn litur 31, fjólublár litur 08, dökk fjólublár litur 100, ljós þveginn litur 21, myntugrænn litur 11, ópalgrænn litur 71, mandarína Endurtakið þessar rendur. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er heklað hvort fyrir sig, í hring frá miðju og út í ferning. Síðan eru axlirnar heklaðar fram og til baka. Ermarnar eru heklaðar í hring ofan frá og niður. Að lokum er heklaður kantur í hálsmáli. FRAMSTYKKI: Heklaður ferningur: Byrjið með heklunál 5 með DROPS Paris í litnum ljós þveginn. Heklið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 og heklið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka, heklið með útaukningu alveg eins og útskýrt er í A.1. Haldið áfram þar til ferningurinn mælist ca 50-54-56-58-60-62 cm x 50-54-56-58-60-62 cm. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Nú er heklað áfram eins og útskýrt er að neðan – munið eftir RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: Stærð S-M: Nú er heklað fram og til baka meðfram neðri kanti á framstykki þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju um loftlykkjuboga í horni á heklaða ferningnum og heklið síðan frá röngu þannig: Heklið A.2a, A.2b fram að næsta horni, A.2d um loftlykkjuboga í horni. Snúið og haldið svona áfram fram og til baka þar til heklaðar hafa 4-2 umferðir. Klippið þráðinn og festið. Nú eru axlirnar heklaðar og hálsmál í gagnstæðri hlið á ferningnum þannig: Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við miðju 6 eða 7 stuðlahópanna í umferð (hálsmál). Ef það er slétt tala með stuðlahópum í umferð, setjið prjónamerkin um loftlykkjur hvoru megin við miðju 6 stuðlahópa, ef það er oddatala með stuðlahópum í umferð, setjið prjónamerkin um loftlykkju hvoru megin við miðju 7 stuðlahópa. Byrjið frá röngu og heklið hægri öxl þannig: Heklið A.2a um loftlykkjuboga í horni, heklið A.2b fram að loftlykkju með fyrra prjónamerki, heklið A.2c um loftlykkju með prjónamerki. Snúið og heklið næstu umferð til baka frá réttu. Haldið svona áfram fram og til baka þar til heklaðar hafa verið 4 umferðir (stykkið mælist ca 5 cm frá heklaða ferningnum). Klippið þráðinn og festið. Hoppið yfir 6 eða 7 stuðlahópa fyrir hálsmáli og heklið vinstri öxl frá röngu þannig: Heklið A.2e um loftlykkju með prjónamerki í, heklið A.2b fram að horni, heklið A.2d um loftlykkjuboga í horni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til heklaðar hafa verið 4 umferðir (stykkið mælist ca 5 cm frá ferningi) – stillið af eftir hægri öxl. Framstykkið er nú tilbúið. Stærð L, XL, XXL og XXXL. Nú er heklað út á við í hvorri hlið þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju í eitt af hornunum á heklaða ferningnum og heklið síðan frá röngu þannig: Heklið A.2a, A.2b fram að næsta horni, A.2d um loftlykkjuboga í horni, snúið og haldið svona áfram fram og til baka þar til heklaðar hafa verið 2-2-4-6 umferðir frá ferningnum. Klippið þráðinn og festið og heklið alveg eins í gagnstæða hlið á ferningnum. Nú er heklað meðfram neðri kanti á framstykki þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju um síðustu umferð í horni neðst á neðri kanti á framstykki og heklið síðan frá röngu þannig: Heklið A.2e í hornið (ATH. Heklið um síðustu umferð í horni), heklið 1-1-2-3 mynstureiningar A.2b um 2-2-4-6 umferðir sem heklaðar voru út á við í hlið, haldið áfram með A.2b fram að hinni hliðinni, heklið 1-1-2-3 mynstureiningar A.2b um 2-2-4-6 umferðir sem heklaðar voru út á við í hlið og endið með A.2c í horni (ATH: það er heklað um síðustu umferð í horni). Haldið svona áfram fram og til baka þar til heklaðar hafa verið 2 umferðir frá heklaða ferningnum. Klippið þráðinn og festið. Nú eru axlirnar heklaðar og hálsmál í gagnstæðri hlið á ferningnum þannig: Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við miðju 7 eða 8 stuðlahópa í umferð (hálsmál). Ef það er slétt tala með stuðlahópum í umferð, setjið prjónamerkin um loftlykkjur hvoru megin við miðju 8 stuðlahópa, ef það er oddatala með stuðlahópum í umferð, setjið prjónamerkin um loftlykkjuna hvoru megin við miðju 7 stuðlahópa. Byrjið frá röngu og heklið hægri öxl þannig: Heklið A.2a í hornið (ATH: Það er heklað um síðustu umferð í horni), heklið 1-1-2-3 mynstureiningar A.2b um 2-2-4-6 umferðir sem voru heklaðar út á við í hlið, haldið áfram með A.2b fram að loftlykkju með fyrra prjónamerki, heklið A.2c um loftlykkju. Snúið og heklið næstu umferð til baka frá réttu. Haldið svona áfram fram og til baka þar til heklaðar hafa verið 4 umferðir (stykkið mælist ca 5 cm frá ferningnum). Klippið þráðinn frá og festið. Hoppið yfir 7 eða 8 stuðlahópa fyrir hálsmáli og heklið vinstri öxl frá röngu þannig: Heklið A.2e um loftlykkju með prjónamerki í, heklið A.2b fram að horni á ferningnum, heklið 1-1-2-3 mynstureiningar A.2b um 2-2-4-6 umferðir sem voru heklaðar í hlið, endið með A.2c í hornið (ATH: Það er heklað um síðustu umferð í horni). Haldið svona áfram fram og til baka þar til heklaðar hafa verið 4 umferðir (stykkið mælist ca 5 cm frá ferningnum) – stillið af eftir hægri öxl. Framstykkið er nú tilbúið. BAKSTYKKI: Heklið á sama hátt og framstykki, en þegar axlir og hálsmál er heklað, heklið fyrst 2 umferðir meðfram efri hlið á heklaða ferningnum + yfir umferð sem var hekluð út á við í hvorri hlið (á við um stærð L, XL, XXL og XXXL) mismunandi eftir stærðum þannig – munið eftir RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: STÆRÐ S, M: Byrjið í horni frá röngu og heklið A.2a um loftlykkjuboga í horni, heklið A.2b fram að næsta horni, heklið A.2d um hornið. Heklið 1 umferð til baka frá réttu (= 2 umferðir). Setjið síðan 1 prjónamerki hvoru megin við miðju 6 eða 7 stuðlahópa og heklið öxl og hálsmál alveg eins og á framstykki, en endið þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir fyrir öxl (= alls 4 umferðir frá ferningnum). Klippið þráðinn og festið. STÆRÐ L, XL, XXL og XXXL: Byrjið í horni frá röngu og heklið A.2e í hornið, heklið 1-1-2-3 mynstureiningar A.2b um 2-2-4-6 umferðir sem voru heklaðar út á við í hlið, haldið áfram með A.2b fram að horni á ferningnum, heklið 1-1-2-3 mynstureiningar A.2b um 2-2-4-6 umferðir sem voru heklaðar í hlið, endið með A.2c í hornið (ATH: Það er heklað um síðasta hornið og stykkið lítur ekki út eins og fyrsta umferð í A.2c). Heklið 1 umferð til baka frá réttu (= 2 umferðir). Síðan er sett 1 prjónamerki hvoru megin við miðju 7 eða 8 stuðlahópa og heklið öxl og hálsmál alveg eins og á framstykki, en endið þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir fyrir öxl (= alls 4 umferðir frá ferningnum). Klippið þráðinn og festið. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma – saumið í ystu lykkjubogana frá röngu. Setjið eitt prjónamerki um loftlykkju eftir 7-7-8-8-9-9 einingar með stuðlum (3 stuðlar) niður frá axlasaum hvoru megin við handveg = ca 18-18-20-20-23-23 cm frá axlasaum og niður yfir framstykki í hvorri hlið (merkir handveg). Endurtakið á bakstykki. Heklið saman hliðarsauminn í gegnum bæði lögin og frá röngu þannig: Byrjið við prjónamerkin sem merkja annan handveginn og heklið 1 fastalykkju um loftlykkjju , * 4 loftlykkjur, hoppið yfir 3 stuðla, 1 fastalykkja um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* þar til ca 15 cm eru eftir = klauf. ERMI: Ermin er hekluð í hring frá handvegi og niður – lesið RENDUR ERMI. Byrjið mitt undir handvegi við prjónamerki og heklið í hring frá umferð með ör þannig: Heklið A.3a, heklið 7-7-8-8-9-9 mynstureiningar A.3b upp að axlasaum, heklið fyrsta stuðul í A.3b mitt í axlasaum og haldið áfram þar til heklaðar hafa verið 7-7-8-8-9-9 mynstureiningar A.3b frá axlasaumi og endið með A.3C. Heklið A.3 alls 3 sinnum á hæðina, síðan er heklað þannig: A.2a, heklið A.2b þar til 1 lykkja er eftir og endið með A.2c. Heklið svona þar til stykkið mælist 47-46-43-43-41-38 cm, klippið þráðinn og festið. Heklið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið með heklunál 5, með sama lit og síðasta umferð á öxlum. Festið þráðinn með 1 fastalykkju í sauminn á öxlinni og heklið fyrst á framstykki, síðan á bakstykki þannig: UMFERÐ 1: Hoppið yfir fyrstu umferð, heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð) niður að fyrsta horni í hálsmáli (= 4 loftlykkjubogar), heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja) um hverja af loftlykkjum meðfram síðustu umferð á ferningnum í hálsmáli, heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð) upp að axlasaumi, hoppið yfir fyrstu umferð á öxl/hálsmáli á bakstykki, heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð) niður að fyrsta horni í hálsmáli, heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja) um hverja af loftlykkjum meðfram síðustu umferð á ferningnum í hálsmáli, heklið (3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu umferð) upp að axlasaum (= 3 loftlykkjubogar). |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (44)
Minna Peltonen skrifaði:
Moi kysyisin tälläistä liittyen tohon puseroon, ett voiko sen virkata myös kahdella värillä L-kokoiseksi (sellain ett ottaa 500g yhtä väriä ja 500g toista väriä)? Kun tossa ohjeessa kerrotaan noi värit (joita oli aika paljon mun makuun) + se ett jos virkaan yhdellä värillä, niin ajattelin kysellä kans tälläistä ett voiko myös ton puseron tehdä kahdella värillä, ett se raidoitukseen tuli 2 väriä (esim. Liila ja tummansininen).
15.06.2023 - 20:48DROPS Design svaraði:
Kyllä, voit virkata puseron kahdella värillä. Hanki tällöin molempia värejä 500 grammaa.
16.06.2023 - 17:05Ingrid skrifaði:
Hi, I do not understand how to begin crocheting the bottom. I made 2 rows on the side, which ended with 3 dc around the chains and 1 dc in the beg/end '1dc' ... Where do I need to start the bottom? Sorry, but I just can't understand.
18.05.2023 - 17:51DROPS Design svaraði:
Dear Ingrid, start the bottom in the first dc worked on the side, then work A.2e (= 3 ch to replace 1st dc, 1 chain and skip the next row on the side), then work A.2b: work 3 dc around first row row, 1 chain, 3 dc around next row, 1 chain (2 repeats); and repeat A.2b as before to the end of the row finishing with 2 repeats of A.2b along the end of the rows on the side and end with A.2c ( 1 dc in the last st on the side). Happy crocheting!
19.05.2023 - 08:17Friederike skrifaði:
Ich häkele den Pullover in Gr.M. und bin nun beim Punkt „Fertig stellen“ angekommen. Ich soll eigentlich die Nähte nun schließen. Aber an der Schulternaht sind auf dem Bild zwei weitere Reihen in mandarine und kirschblüte zusehen, bis die Schulternähte geschlossen werden. Diese sind in der Anleitung nicht erwähnt. Kann es sein, dass hier etwas fehlt? Oder habe ich etwas übersehen? LG
24.03.2023 - 12:35DROPS Design svaraði:
Liebe Friederike, diese Reihe befinden sich in der schriftlichen Anleitung, siehe VORDERTEIL: ;.... Größe S-M: ... Nun die Schultern und den Halsausschnitt an der gegenüberliegenden Seite des Quadrats wie folgt häkeln: ... . Viel Spaß beim häkeln!
24.03.2023 - 13:31Elena skrifaði:
Buonasera, non riusciamo a capire come dobbiamo lavorare le strisce indicate a pag. 2 dopo tutta la serie di strisce colorate. Significa che dobbiamo fare solo delle strisce sul fondo? Oppure ai lati? Grazie
23.03.2023 - 21:16DROPS Design svaraði:
Buonasera Elena, a quale punto del lavoro sta facendo riferimento? Buon lavoro!
26.03.2023 - 22:18Flo skrifaði:
Bonjour je voudrais savoir si le diagramme A1est commun à toutes les tailles ou si on l'adapte: par exemple pour une taille S on ne fait pas toutes les rayures on mesure les 50CM préconisé dans le descriptif merci le modèle est très frais et très seventies pour le printemps qui arrive bientot
15.03.2023 - 13:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Flo, le diagramme A.1 est commun à toutes les tailles, il montre juste le début du carré, on continue ensuite le carré en répétant les derniers rangs du diagramme jusqu'à la hauteur indiquée pour la taille. En même temps, vous suivez les rayures dos & devant, à crocheter en rond, puis en rangs si besoin (pour les extensions). Bon crochet!
15.03.2023 - 13:44Piloote skrifaði:
Merci pour ce magnifique modèle aux jolies couleurs, mon préféré
25.02.2023 - 08:00Henriette Bildt Pedersen skrifaði:
Blir i godt humør af de farver, sommer, sol og rent
22.01.2023 - 16:32Ivana skrifaði:
Hip To Be Square
21.01.2023 - 23:27Christina Lund Jensen skrifaði:
Ringe i vandet
21.01.2023 - 15:10Gitte skrifaði:
Farverig boheme stil, fin model.
21.01.2023 - 09:01