DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
DROPS SS24

Garden Squares Sweater

Hekluð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er heklað með ferningum. Stærð S - XXXL.

DROPS 241-16
DROPS Design: Mynstur w-893
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
500-500-550-550-600-600 litur 17, natur
100-100-100-100-100 g litur 05, syren
50-50-100-100-100-100 g litur 100, ljós þveginn
50-50-50-50-50-50 g litur 02, ljós turkos
50-50-50-50-50-50 g litur 09, kóngablár
50-50-50-50-50-50 g litur 11, ópalgrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 21, myntugrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 31, fjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur 39, wasabi
50-50-50-50-50-50 g litur 61, lime
50-50-50-50-50-50 g litur 62, sægrænn
50-50-50-50-50-50 g litur 71, mandarína

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.

HEKLFESTA:
1 ferningur mælist ca 11 x 11 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LITIR:
Ferningar eru heklaðir í mismunandi litasamsetningum þannig:

Ferningur 1:
UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 02, ljós turkos
UMFERÐ 2: 39, wasabi
UMFERÐ 3: 62, sægrænn
UMFERÐ 4: 17, natur

Ferningur 2:
UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 11, ópalgrænn
UMFERÐ 2: 17, natur
UMFERÐ 3: 71, mandarína
UMFERÐ 4: 17, natur

Ferningur 3:
UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 31, fjólublár
UMFERÐ 2: 21, myntugrænn
UMFERÐ 3: 09, kóngablár
UMFERÐ 4: 17, natur

Ferningur 4:
UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 05, syren
UMFERÐ 2: 17, natur
UMFERÐ 3: 02, ljós turkos
UMFERÐ 4: 17, natur

Ferningur 5:
UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 62, sægrænn
UMFERÐ 2: 100, ljós þveginn
UMFERÐ 3: 21, myntugrænn
UMFERÐ 4: 17, natur

Ferningur 6:
UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 100, ljós þveginn
UMFERÐ 2: 11, ópalgrænn
UMFERÐ 3: 39, wasabi
UMFERÐ 4: 17, natur

Ferningur 7:
UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 21, myntugrænn
UMFERÐ 2: 17, natur
UMFERÐ 3: 61, lime
UMFERÐ 4: 17, natur

Ferningur 8:
UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 39, wasabi
UMFERÐ 2: 05, syren
UMFERÐ 3: 100, ljós þveginn
UMFERÐ 4: 17, natur

Ferningur 9:
UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 100, ljós þveginn
UMFERÐ 2: 71, mandarína
UMFERÐ 3: 31, fjólublár
UMFERÐ 4: 17, natur

Ferningur 10:
UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 71, mandarína
UMFERÐ 2: 62, sægrænn
UMFERÐ 3: 05, syren
UMFERÐ 4: 17, natur

Ferningur 11:
UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 09, kóngablár
UMFERÐ 2: 02, ljós turkos
UMFERÐ 3: 11, ópalgrænn
UMFERÐ 4: 17, natur

Ferningur 12:
UMFERÐ 1 + UPPFITJUN: 61, lime
UMFERÐ 2: 31, fjólublár
UMFERÐ 3: 05, syren
UMFERÐ 4: 17, natur

LITASKIPTI:
Til að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit, heklið keðjulykkjuna í lok umferðar með nýja litnum sem skipta á yfir í.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteiknin A.3 til A.5 sýnir staðsetningu á ferningum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru heklaðir 60-60-72-72-80-80 ferningar í mismunandi litasamsetningum. Síðan eru ferningarnir settir saman með því að hekla þá saman fyrir framstykki, bakstykki og ermar. Í stærð S og M eru heklaðir stuðlahópar fram og til baka aftan í hnakka. Í stærð M, L, XL, XXL og XXXL eru heklaðir stuðlahópar í hvorri hlið fyrir hliðarstykki. Ermar eru heklaðar við fram- og bakstykki. Að lokum er heklaður kantur í kringum hálsmál.

HEKLAÐIR FERNINGAR:
Notið heklunál 5 og DROPS Paris. Lesið LITASKIPTI og LITIR og heklið ferninga eftir mynsturteikningu A.1 í mismunandi litasamsetningum. 1 ferningur mælist ca 11 x 11 cm.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Það eru heklaðir 60-60-72-72-80-80 ferningar þannig:
Ferningur 1: 6-6-6-6-6-6 st
Ferningur 2: 6-6-6-6-6-6 st
Ferningur 3: 6-6-7-7-7-7st
Ferningur 4: 4-4-7-7-9-9 st
Ferningur 5: 4-4-5-5-5-5 st
Ferningur 6: 4-4-6-6-8-8 st
Ferningur 7: 6-6-6-6-6-6 st
Ferningur 8: 4-4-6-6-8-8 st
Ferningur 9: 6-6-6-6-6-6 st
Ferningur 10: 6-6-6-6-6-6 st
Ferningur 11: 4-4-5-5-5-5 st
Ferningur 12: 4-4-6-6-8-8 st

FRÁGANGUR-1:
Leggið ferningana eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.3 fyrir framstykki og A.4 fyrir bakstykki.
Sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð, í stærð S og M er framstykkið og bakstykkið alveg eins, frágangur á báðum stykkjum er eins og A.3. Passið uppá að allir ferningarnir liggi með réttuna upp.
Númer í mynsturteikningu vísa til númera sem er útskýrt í LITIR. Ferningarnir eru heklaðir saman fyrst á breiddina og síðan á lengdina.
Notið heklunál 5 og litinn natur til að hekla ferningana saman þannig:
Leggið 2 ferninga kant í kant þannig að hægt sé að hekla þá saman. Byrjið í horninu og heklið þannig: * Stingið heklunálinni niður frá réttu í gegnum aftari lykkjubogann á öðrum ferningnum, síðan er heklunálinni stungið frá réttu og niður í gegnum aftari lykkjubogann á hinum ferningnum, sækið þráðinn og dragið þráðinn í gegnum báðar lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* þar til þessir 2 ferningar hafa verið heklaðir saman meðfram hliðinni á ferningnum, heklið 2 loftlykkjur og heklið síðan frá *-* meðfram 2 næstu ferningum alveg eins. ATH! Ferningarnir eru heklaðir saman með 1 lykkju í hverju horni og 1 lykkju í hvern stuðul / loftlykkju. Heklið svona þar til allir ferningarnir í þessari röð hafa verið heklaðir saman. Heklið allar raðirnar saman á breiddina. Þegar allar raðirnar með ferningunum hafa verið heklaðar saman á breiddina, heklið allar raðirnar saman á lengdina, á sama hátt.

Í stærð S og M eru stuðlaumferðirnar heklaðar fram og til baka aftan í hnakka á bakstykki, þetta er ekki heklað í stærð L, XL, XXL og XXXL, hoppið yfir næsta kafla í þessum stærðum.

STUÐLAUMFERÐ AÐ AFTAN (Í HNAKKA):
STÆRÐ S og M:
Það eru heklaðir stuðlahópar fram og til baka aftan í hnakka á bakstykki, þannig að peysan verði ekki eins djúp að aftan. Það eru heklaðar rendur, heklið hverja umferð frá réttu í litnum natur og hverja umferð frá röngu í röndum, notið liti að eigin ósk (og hafið þá áfram eftir að hafa heklað ferningana) og heklið þannig:
Byrjið í fyrsta horninu frá ferningnum í lit númer 7. Heklið A.2a, heklið A.2b alveg fram að loftlykkjum í horni á ferningnum í lit númer 8, heklið A.2c í hornbogann. ATH! Í hornið á milli 2 ferninga eru heklaðir 3 stuðlar um loftlykkjur í horni frá fyrsta ferningi, 1 loftlykkja og 3 stuðlar í hornið frá næsta boga = alls 10 stuðlahópar.
Heklið fram og til baka eftir A.2 þar til heklaðar hafa verið 5 umferðir á hæðina. Heklið 1 umferð með fastalykkjum meðfram hvorri skammhliðinni á stuðlahópunum þannig: Heklið 3 fastalykkjur um hvern stuðul / 3 loftlykkjur á 4 fyrstu umferðum og heklið 1 fastalykkju um síðasta stuðulinn / 3 loftlykkjur = 13 fastalykkjur í hvorri hlið. Heklið þetta stykki saman með ferningunum á hvorri öxl, heklið 1 fastalykkju saman með 1 stuðli / loftlykkju frá ferningum á öxl, þar til ca 3-4 cm eru eftir á hverjum ferningi upp að öxl. Klippið þráðinn og festið.

Framstykkið og bakstykkið hefur nú verið heklað til loka í stærð S, í þeim stærðum sem eftir eru er hliðarstykkið heklað fram og til baka í hvorri hlið á framstykki og á bakstykki þannig:

HÆGRA HLIÐARSTYKKI, BAKSTYKKI:
STÆRÐ M, L, XL, XXL og XXXL:
Það eru heklaðar rendur, heklið hverja umferð frá réttu í litnum natur og hverja umferð frá röngu í röndum, notið liti að eigin ósk (og hafið þá áfram eftir að hafa heklað ferningana) og heklið þannig:
Byrjið í efsta horninu á 2. eða 3. ferningi frá neðri kanti – sjá stjörnu í teikningu. Heklið meðfram hlið þannig:
Heklið A.2a, heklið A.2b alveg fram að neðsta hornboga (neðst á toppi), heklið A.2c í hornbogann, snúið. ATH! Í hornið á milli 2 ferninga eru heklaðir 3 stuðlar um loftlykkjur í horni frá fyrsta ferningi, 1 loftlykkja og 3 stuðlar í horni frá næsta boga. Heklið alls 2-3-5-8-10 umferðir af A.2, hliðarstykkið mælist ca 2-4-6-9-12 cm.

VINSTRA HLIÐARSTYKKI, BAKSTYKKI:
Heklið vinstra hliðarstykki alveg eins meðfram gagnstæðri hlið á ferningnum, en byrjið frá röngu, þannig að úrtakan komi á sama stað og á hinu hliðarstykkinu.
Umferð frá röngu er hekluð með litnum natur, umferð frá réttu er hekluð í röndum (notið liti að eigin ósk).

HLIÐARSTYKKI, FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og á bakstykki.

ERMI:
Leggið ferningana eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.5, passið uppá að allir ferningarnir liggi með réttuna upp.
Númer í mynsturteikningu vísa í númer sem eru útskýrð í LITUR. Ferningarnir eru heklaðir saman fyrst á breiddina og síðan á lengdina. Að lokum er brotið uppá ermina fyrir miðju og heklað saman mitt undir ermi (a við b í mynsturteikningu A.5) en skiljið eftir 0-2-3-4-9-12 cm efst á ermi.
Heklið saman hina ermina á sama hátt, en heklað er við peysuna í gagnstæðri átt (ferningarnir sem eru efst við öxl á annarri erminni, koma til með að vera neðst við höndina á hinni erminni).

FRÁGANGUR:
Leggið bakstykkið og framstykkið að hvoru öðru með réttuna upp og heklið hliðarnar saman alveg eins og ferningarnir voru heklaðir saman. Skiljið e.t.v. eftir ca 8-10 cm neðst fyrir klauf. Heklið saman axlasaumana alveg eins, í stærð L, XL, XXL og XXXL verður hálfur ferningur efst á hvorri öxl. Heklið ermarnar við handveg, heklið fyrst þá 0-2-3-4-9-12 cm sem ekki voru heklaðir saman við efri kantinn á hliðarstykki, síðan er ermin hekluð inn í handveginn (c við d í mynsturteikningu A.3, A.4 og A.5).

HEKLAÐUR KANTUR:
Byrjið mitt á öxl og heklið kant í kringum hálsmál með heklunál 5 með litnum natur í DROPS Paris þannig: 1 fastalykkja um fyrsta loftlykkjuboga, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* hringinn allt hálsmálið og endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. Heklið alveg eins meðfram neðri kanti á fram- og bakstykki. Klippið þræðina og festið.

Mynstur

symbols = byrjið hér! Heklið 4 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = punktur á hring
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuhringinn / loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull um þær 3 loftlykkjur sem koma upp frá fyrri umferð
symbols = heklið hliðarstykkin héðan
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, byrjið í næstu umferð
symbols = byrjið í þessari umferð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Marise wrote:

Goedemorgen, Ik wil aan deze hele toffe trui beginnen met haken. Ik kom er (nu al) niet uit met de steken verhouding. Er staat bij dat een proeflap 10x10 cm meet maar niet met hoeveel steken voor haken. Voor breien staat er een stekenverhouding van 19x26 steken in tricot steek . Hoe moet ik dit vertalen naar haken? Haken met vasten/stokjes en hoeveel steken opzetten? Gr. Marise

01.04.2024 - 08:11

DROPS Design answered:

Dag Marise,

De trui bestaat uit gehaakte vierkanten en elk vierkant meet 11 keer 11 cm. Dus je kunt 1 vierkant haken als proeflapje. Als je vierkant groter is dan heb je een kleinere haaknaald nodig en als je vierkant kleiner is dan 11 x 11 cm, dan heb je een grotere haaknaald nodig.

03.04.2024 - 21:02

country flag Florence wrote:

DROPS 241-16 DROPS Design: Modèle w-893 Garden squares sweaters. Bonjour, je souhaite réaliser le pull réf ci-dessus. Comment calculer ma taille avant de passer commande ? Faut il compter une taille normale (je fais du 38/40). Merci pour votre réponse

14.03.2024 - 19:27

DROPS Design answered:

Bonjour Florence, pour trouver votre taille, mesurez un vêtement que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma du bas de page - retrouvez plus d'infos ici. Bon crochet!

15.03.2024 - 08:16

country flag Britta wrote:

Hi, it say a total of 60 squares for size S and M. Looking at the pics A3, A4 and A5 I caculate 70 squares Where do I get wrong here please?

03.03.2024 - 15:51

DROPS Design answered:

Dear Britta, for sizes S and M, you use A.3 only (the back and front pieces are the same). So you have 14 squares in each body piece (28 in total). Then, you have 16 squares for each sleeve (= 32 in total). 28+32 =60 squares. Happy crochetting!

03.03.2024 - 23:48

country flag Terra wrote:

Vad är A4 för S-M?

28.01.2024 - 17:49

DROPS Design answered:

Hej Terra, Størrelse S-M hedder A.3 og A.5 :)

02.02.2024 - 12:16

country flag Brenda Cavanagh wrote:

Hello, I am wanting to thank you for the help I received here for the Garden granny square crochet sweater. I had difficulty understanding how to follow the diagram for the sides and back of neck. After your help I'm happy to say that I was able to complete it. I appreciate this prompt and helpful help. Sincerely, Brenda

20.01.2024 - 03:56

country flag Brenda Cavanagh wrote:

Hello. I am new to following diagrams. In this garden pullover, and A.2a, A.2b and A2c, could you possibly give me a written explanation? Are there decrease where a chain stitch is indicated. Or skipped stitchedges? Many thanks.

17.01.2024 - 19:37

DROPS Design answered:

Dear Mrs Cavanagh, work A.2a on first row as follows: chain 3 + 2 tr (UK-English) in the same ch-space; then A.2b: 3 tr around next ch-space, 1 ch then A.2c: 3 tr around ch-space; on 2nd row work: A.2c: 3 chains (replace 1st tr), + 1 ch (=4 ch in total), then A.2b: 3 tr around next ch-space, 1 ch then A.2a: 3 tr around ch-space, 1 chain, 1 tr in the 3rd ch from beg of row. At the same time, remember to follow the written pattern for your size for the number of stitches. Happy crocheting!

18.01.2024 - 08:52

country flag Susi Balck wrote:

Hej. Tak for svar :-). Hvis jeg bruger Drops DLY 7, hvor meget mere garn skal jeg så beregne? Mvh. Susi Balck

21.11.2023 - 11:32

DROPS Design answered:

Hej Susi, det kan vi desværre ikke regne ud, for da skal du hækle flere omgange for at opnå samme størrelse på ruderne, men du skal ikke bruge mere end hvad der står i opskriften :)

24.11.2023 - 13:47

country flag Susi Balck wrote:

Hej. Jeg vil gerne prøve at hækle denne bluse, men jeg synes den er for tyk og vil gerne hækle den i lidt tyndere garn. Kan jeg det og hvordan gør jeg det? Evt i DROPS Loves You 7 Mvh. Susi

14.11.2023 - 05:54

DROPS Design answered:

Hej Susi, ja det kan du men da skal du fortsætte med flere omgange så hver rude bliver 11 x 11 cm :)

16.11.2023 - 14:14

country flag Berit Bergstedt wrote:

Var byter jag storlek?

16.10.2023 - 13:21

DROPS Design answered:

Hej Berit, vad menar du med att byta storlek?

17.10.2023 - 13:31

country flag Lilou wrote:

Bonjour, A quoi sert cette extension sur le côté. Merci

22.07.2023 - 08:57

DROPS Design answered:

Bonjour Lilou, cette extension forme une sorte d'emmanchure (regardez la derniere photo et le dessin schematique en bas de page). Bon crochet!

25.07.2023 - 16:50