Gitte Larsson skrifaði:
Hej. Synes det er en fin taske at lave, dog forstår jeg ikke figur A1. Er det muligt at få det på skrift, en tegneforklaring. De bedste hilsener Gitte
29.09.2024 - 16:05DROPS Design svaraði:
Hej Gitte, du starter nederst i A.1 med 1 stangmaske, 2 luftmasker, 1 stangmaske i luftmasken. På næste række hækler du 1 stangmaske i stangmasken, 2 stangmasker i luftmasken, 2 luftmasker, 2 stangmasker i samme luftmaske, 1 stangmaske i stangmasken. Således fortsætter du ifølge diagrammet :)
10.10.2024 - 15:08
Birgit Høidahl skrifaði:
Hvor mye garn er det behov for til vesken? Finner det ikke i oppskriften.
18.02.2023 - 11:12DROPS Design svaraði:
Hej Birgit. GARN: DROPS COTTON LIGHT fra Garnstudio (tilhører garngruppe B) 350 g farge 21, lys beige Mvh DROPS Design
22.02.2023 - 12:05
Marie Christine ROSSET skrifaði:
Assez grand et très pratique ,ce joli sac
17.01.2023 - 17:16
The Fringe Bag#thefringebag |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Hekluð taska úr DROPS Cotton Light. Stykkið er heklað neðan frá og upp með gatamynstri og pífu.
DROPS 238-6 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. LEIÐBEININGAR (á við um tösku, ekki pífu): UMFERÐ 1: Heklið frá réttu á stykki. Eftir síðustu lykkju er stykkinu snúið. UMFERÐ 2: Heklið frá röngu á stykki. Eftir síðustu lykkju er stykkinu snúið. Endurtakið síðan umferð 1 og 2. Þ.e.a.s. stykkið er heklað í hring, en fram og til baka til skiptis með umferð frá réttu og umferð frá röngu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring neðan frá og upp með gatamynstri. Að lokum eru heklaðar tvær pífur og axlaról. TASKA: Heklið 22 loftlykkjur, sjá LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 3,5 með DROPS Cotton Light. Heklið síðan eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og MYNSTUR og heklið í báðum hliðum á loftlykkjuröð þannig: Heklið A.1 í fyrstu loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 20 loftlykkjum, A.1 í næstu loftlykkju, snúið stykkinu þannig að nú sé hægt að hekla áfram í hinni hliðinni á loftlykkjuröðinni þannig: Heklið A.1 í sömu loftlykkju og A.1 í hinni hliðinni, 1 stuðull í hverja af næstu 20 loftlykkjum, endið umferð með A.1 í sömu loftlykkju og A.1 í byrjun á loftlykkjuröðinni = 48 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð. UMFERÐ 2-5: Lesið LEIÐBEININGAR. Haldið áfram með A.1 og 1 stuðul í hvern stuðul. Eftir síðustu umferð eru 120 stuðlar í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 6-8: Munið eftir LEIÐBEININGAR og heklið 1 stuðul í hvern stuðul umferðina hringinn. Þegar 8. Umferð hefur verið hekluð til loka, heklið A.2 hringinn fram og til baka yfir allar lykkjur. A.2 er endurtekið á hæðina þar til stykkið mælist ca 25 cm – mælt frá loftlykkjuröð mitt undir tösku (= ca 25 umferðir). Heklið síðan 1 stuðul í hverja lykkju þar til stykkið mælist ca 39 cm – mælt frá loftlykkjuröð mitt undir tösku – endið eftir umferð frá réttu á stykki (= ca 39 umferðir). Klippið þráðinn og festið. PÍFA: Nú er hekluð pífa í 3. umferð að ofan, með byrjun frá réttu þannig (stykkinu er ekki snúið þegar pífan er hekluð): UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju um fyrsta stuðul í umferð, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta stuðul *, heklið frá *-* hringinn á allri töskunni, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. UMFERÐ 2-3: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið A.3 umferðina hringinn. Klippið þráðinn og dragið í gegnum síðustu lykkju þegar A.3 hefur verið heklað til loka. Festið þræðina. Heklið aðra pífu til viðbótar alveg eins í 6. umferð að ofan. AXLARÓL: Heklið 8 loftlykkjur með heklunál 3,5 með DROPS Cotton Light. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni og 1 stuðul í hverja af þeim 4 loftlykkjum sem eftir eru = 6 stuðlar. Heklið síðan stuðla fram og til baka þar til axlarólin mælist ca 60 cm (fyrsta stuðli í hverri umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur). Klippið þráðinn og saumið axlarólina niður í hvora hlið á töskunni. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #thefringebag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 238-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.