DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Diamond Bag

Hekluð taska úr DROPS Belle eða DROPS Cotton Light. Stykkið er heklað neðan frá og upp með gatamynstri.

DROPS 238-5
DROPS Design: Mynstur vs-104
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Breidd: ca 40 cm.
Hæð: ca 38 cm án axlaróla.

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250 g litur 26, perla

Eða notið:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250 g litur 01, natur

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul, þ.e.a.s. hoppið yfir fyrstu lykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 næstu stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring neðan frá og upp með gatamynstri. Í lokin er hekluð axlaról.

TASKA:
Heklið 40 LOFTLYKKJA – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS Belle eða DROPS Cotton Light. Síðan er heklað eins og útskýrt er að neðan.
UMFERÐ 1:
Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og MYNSTUR og heklið í báðum hliðum á loftlykkjuröðinni þannig:
Heklið A.1 í fyrstu loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 38 loftlykkjum, A.1 í næstu loftlykkju, snúið stykkinu þannig að nú sé hægt að heklað áfram meðfram hinni hliðinni á loftlykkjuröðinni þannig:
Heklið A.1 í sömu loftlykkju og A.1 í hinni hliðinni, 1 stuðull í hverja af næstu 38 loftlykkjum, endið umferð með A.1 í sömu loftlykkju og A.1 í byrjun á loftlykkjuröðinni = 84 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð.
UMFERÐ 2-5:
Haldið áfram hringinn með A.1 og 1 stuðul í hvern stuðul – JAFNFRAMT í 5. umferð er fækkað um 4 stuðla jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 144 stuðlar.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið A.2 alls 8 sinnum umferðina hringinn.
Þegar A.2 hefur verið heklað til loka, heklið A.3 alls 8 sinnum umferðina hringinn. A.3 er heklað alls 3 sinnum á hæðina.
Stykkið mælist nú ca 34 cm – mælt frá loftlykkjuröð mitt undir töskunni.
Heklið 3 umferðir með stuðlum (í fyrstu umferð er heklaður 1 stuðull í hvern stuðul og 1 stuðull um hverja loftlykkju, síðan er heklaður 1 stuðull í hvern stuðul í næstu 2 umferðum). Klippið þráðinn og festið. Stykkið mælist ca 38 cm – mælt frá loftlykkjuröð mitt undir tösku. Klippið þráðinn og festið.

AXLARÓL:
Heklið 7 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Belle eða DROPS Cotton Light.
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni og 1 stuðul í hverja af þeim 3 loftlykkjum sem eftir eru = 5 stuðlar (fyrsti stuðull í hverri umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur).
Heklið síðan stuðla fram og til baka þar til axlarólin mælist ca 60 cm.
Nú er heklaður kantur í kringum axlarólina þannig: Heklið 1 fastalykkju um fyrstu stuðlaumferðina á langhlið, * 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu stuðlaumferð *, heklið frá *-* meðfram allri langhliðinni á axlarólinni, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju meðfram skammhlið, heklið frá *-* meðfram allri langhliðinni og endið með 1 fastalykkju í hverja lykkju meðfram hinni skammhliðinni.
ATH: Ef kanturinn verður of stífur, er hægt að hekla fleiri loftlykkjur á milli fastalykkja. Klippið þráðinn og festið. Saumið axlarólina í hvora hlið á töskunni.

Mynstur

symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 stuðull um loftlykkju / loftlykkjuboga
symbols = 1 loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.
symbols = þetta er loftlykkjuröðin sem nú þegar hefur verið hekluð og sýnir einungis hvernig fyrsta umferðina er hekluð í lykkjuna fyrir neðan
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 238-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Marat wrote:

Tak jak innym osobom po pierwszym okrazeniu wyszlo mi 114 slupkow. Nie mam pojecia skad sie biera 24 dodatkowe slupki w 2 okrezeniu (wg tlumaczen w komentarzach) jesli doadaejmy ich po 6 na kazdym koncu - to samo sie dotyczy 3go okrazenia i 40 slupkow jesli dodajemy 20 itd...

05.04.2024 - 17:05

DROPS Design answered:

Witaj, po pierwszym okrążeniu powinnaś mieć 84 słupki i 4 łuki: (4 x A.1)+ (2 x 38) = 8 słupków i 4 łuki z 2 oczek łańcuszka każdy + 76 słupków. Po zakończeniu schematu A.1 powinno być 5 okrążeń (nie licząc łańcuszka początkowego). W okr. 2 powinno być: 76+24=100 sł i 4 łuki. Okr. 3: 76+40=116 sł i 4 łuki. Okr. 4: 76+56=132 sł i 4 łuki. Okr. 5: 76+72=148 sł (ale tutaj równomiernie zamykasz 4 sł i zostaje 144 sł jak w opisie). Pozdrawiamy!

08.04.2024 - 09:01

country flag Stephanie wrote:

Die Tasche ist in Drops Belle sehr hübsch geworden. Leider ist sie als solche überhaupt nicht nutzbar, da sie bei wenig Inhalt sehr massiv durchhängt...Schade.

20.03.2024 - 19:38

country flag Car wrote:

Es hat geklappt... Die Tasche ist sehr schön! Ich habe verschiedene Garne für verschiedene Modelle ausprobiert, alle sind toll! Manchmal wäre es gut, mehr Fotos und/oder Zeichnungen von den Modellen und Details zu haben. Aber insgesamt ist alles super!

13.03.2024 - 12:39

country flag Carmela Grassi wrote:

Ich verstehe das Diagramm A1 nicht. Wie kommt man von 40 auf 84 Maschen, wenn A1 nur in der ersten und den letzten Masche gehäkelt wird? Wo werden die Luftmaschen vom A1 gehäkelt? Danke im Voraus! Seit über 30 Jahren habe ich nicht gehäkelt😄

11.03.2024 - 15:05

DROPS Design answered:

Liebe Frau Grassi, so wird es gehäkelt: A.1 in die erste Lm (= 1 Lm / 2 Stb bei der 1. R.), je 1 Stäb in die 38 Luftmaschen (= 38 Lm / 38 Stb), A.1 in die nächste Lm (= 1 Lm / 2 Stb bei der 1. R.), die Arbeit drehen, dann so häkeln: A.1 in dieselbe Lm wie A.1 an der anderen Seite der Lm (= 2 Stb bei der 1. R.) , je 1 Stb in die nächsten 38 Lm (= 38 Stb), die Runde mit A.1 in dieselbe Lm wie A.1 am Anfang der Luftmaschenkette beenden (= 2 Stb bei der 1. R.) = 2+38+2+2+38+2= 84 Stäbchen und 4 Luftmaschenbögen (über 1+38+1=40 Lm). Viel Spaß beim Häkeln!

11.03.2024 - 15:59

country flag Pips wrote:

Det er første gang, jeg har fundet en opskrift med et diagram og jeg forstår simpelthen ikke hvordan jeg kommer videre fra mine 40 luftmasker. Jeg har prøvet at finde nogle videoer, men uden rigtig meget held.

09.02.2024 - 17:16

DROPS Design answered:

Hej Pips, du hækler hver maske ifølge masken i diagrammet, du starter nederst til højre i diagrammet og hækler mod venstre. Du starter med nederste række i A.1 som du hækler i hvert hjørne som beskrevet i opskriften :)

22.02.2024 - 10:52

country flag Claudia wrote:

Liebes Drops Team, muss ich A2 beide Reihen 8x häkeln? Und bei der zweiten Reihe Stäbchen um die Luftmaschen? Vielen Dank für eine Antwort 😊

04.12.2023 - 16:29

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, häkeln Sie zuerst die 1. Reihe die ganze Runde (18 Stäbchen x 8 Mal), dann häkeln Sie die 2. Reihe A.2 8 Mal in der Runde; Dann werden Sie A.3 über A.2 häkeln und A.3 in der Höhe wiederholen. Viel Spaß beim häkeln!

05.12.2023 - 08:38

country flag Julita wrote:

Witam, po pierwszym okrążeniu mam 80 słupków. Po przerobieniu wzoru A1 mam 114 słupków a nie 144. Po ukończeniu schematu A1, mam 5 okrążeń. Nie potrafię zlokalizować błędów w swojej robótce. Może mi ktoś napisać ile powinno być słupków w każdym z pięciu okrążeń, i czy po zakończeniu schematu A1 powinno powinno być 5 czy 6 okrążeń. Pozdrawiam

30.08.2023 - 21:27

DROPS Design answered:

Witaj Julito, po pierwszym okrążeniu powinnaś mieć 84 słupki i 4 łuki: (4 x A.1)+ (2 x 38) = 8 słupków i 4 łuki z 2 oczek łańcuszka każdy + 76 słupków = 84 słupki + 4 łuki. Po zakończeniu schematu A.1 powinno być 5 okrążeń (nie licząc łańcuszka początkowego). W okr. 2 powinno być: 76+24=100 sł i 4 łuki. Okr. 3: 76+40=116 sł i 4 łuki. Okr. 4: 76+56=132 sł i 4 łuki. Okr. 5: 76+72=148 sł (ale tutaj równomiernie zamykasz 4 sł i zostaje 144 sł jak w opisie). Pozdrawiamy!

31.08.2023 - 21:05

country flag Monika wrote:

Cześć Zrobiłam torbę według tego wzoru, wyszła piękna z włóczki Drops Bellle tu polecanej. Jednak w użyciu bardzo się rozciąga nawet gdy włożyłam do niej tylko chleb. Czy można temu jakoś zapobiec? Chcę zrobić drugą w prezencie dla siostry. Pozdrawiam, Monika

07.08.2023 - 21:37

DROPS Design answered:

Witaj Moniko, można zrobić wypełnienie z bawełnianej tkaniny pod kolor. Ewentualnie zrobić taką samą torbę tylko za pomocą mniejszego szydełka. Pozdrawiamy!

08.08.2023 - 21:17

country flag Elsa wrote:

Ich habe es jetzt verstanden. Sie müssen nicht antworten.😊

09.06.2023 - 11:23

country flag Elsa wrote:

Ich verstehe nicht, wie im Diagramm A1 nach der ersten Reihe (also nach 84 Maschen) die 2 Luftmaschen unterbringe, denn ich häkle diese und mache dann mit Stäbchen weiter, aber dann habe ich 4 Reihen mehr, also 9 und nicht 5 Reihen? Danke!

09.06.2023 - 08:54

DROPS Design answered:

Liebe Elsa, häkeln Sie A.1 wie im Diagram gezeigt, A.1 ist insgesamt 5 Reihen, so nach der 1. Runde haben Sie 4 Mal A.1 in der Runde gehäkelt, und jetzt sind es noch 4 weiteren REihen zu häkeln. Die anderen Maschen häkeln Sie im Stäbchen wie bei der 1. Runde - oder misverstehe ich Ihre Frage?

09.06.2023 - 09:36