Danielle skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas les diminutions , si je travaille ensemble la 6e et 7e maille de chaque aiguille je diminue que de 4 mailles au total ? Merci
07.12.2024 - 07:21DROPS Design svaraði:
Bonjour Danielle, la 1ère fois que vous diminuez, vous diminuez bien 8 mailles: vous avez 56 mailles et tricotez ainsi (5 m end, 2 m ens à l'end) x 8 = (soit 7x8= 56 et 8 x 2 m ens à l'end). La fois suivante, tricotez (4 m end, 2 m ens à l'end) x 8, puis la fois suivante (3 m end, 2 mens à l'end) et ainsi de suite, autrement dit, à chaque tour de diminutions, tricotez 1 m end en moins entre chaque diminution. Bon tricot!
09.12.2024 - 08:13
Joëlle skrifaði:
Bonjour, je ne sais pas tricoter avec des aiguilles circulaires . C'est dommage que vos modèles n' aient pas les deux explications. Cordialement
27.05.2024 - 12:05DROPS Design svaraði:
Bonjour Joëlle, vous pouvez, la plupart du temps et ici par exemple, facilement adapter les explications pour aiguilles droites, retrouvez ici comment faire. Bon tricot!
27.05.2024 - 13:03
Jet skrifaði:
Hi there, knitting the enchanted mushrooms, I encountered some difficulties. There are some unclarities in the written pattern translation to dutch that make it much harder to follow the pattern. I figured it out but a less experienced knitter might not. The 'mistakes' are perhaps just some left out words but do make it hard to understand. On the other hand I really enjoy your patterns and do use them! Thank you very much!
27.09.2023 - 12:08
Enchanted Mushrooms#dropsenchantedmushrooms |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónaðir sveppir / jólaskraut úr DROPS Alpaca í garðaprjóni eða sléttprjóni og með frönskum hnútum. Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1584 |
||||
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SVEPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna neðan frá og upp. Sveppurinn er fylltur með vatti og franskir hnútar saumaðir á toppinn á sveppnum. Að lokum er botninn saumaður saman. SVEPPUR Í SLÉTTPRJÓNI: LITUR-1: Stafur: litur ljós nougat. Sveppahattur: litur grænt gras LITUR-2: Stafur: litur ljós nougat. Sveppahattur: litur heslihneta LITUR-3: Stafur: litur natur. Sveppahattur: litur rauður LITUR-4: Stafur: litur natur. Sveppahattur: litur hveiti akur SVEPPUR: Fitjið upp 16 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum fyrir stafinn/stilk. Prjónið sléttprjón hringinn í 5 cm. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT eru aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir (aukið út eftir annarri hverri lykkju) – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5 sinnum (í hvert skipti er aukið út um 1 lykkju fleiri á milli uppslátta). Eftir síðustu útaukningu eru 56 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið yfir allar lykkjur. Skiptið yfir í lit á sveppahatti. Prjónið 6 umferðir sléttprjón án útaukninga. Nú eru þræðirnir festir að innanverðu á svepp, áður en úrtakan byrjar. Í næstu umferð er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir (prjónið 6. og 7. hverja lykkju slétt saman). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð – það verður 1 lykkju færri áður en 2 lykkjur eru prjónaðar saman í hverri umferð sem fækkað er. Haldið áfram með úrtöku þar til 8 lykkjur eru eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 4 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. FRÁGANGUR: Fyllið sveppahattinn með vatti. Saumið út franska hnúta á toppinn á sveppahattinum – nokkur spor eru saumuð í gegnum öll lögin þannig að botninn á hattinum er festur við toppinn. Fyllið stafinn/stilkinn með vatti og saumið opið saman undir sveppnum. Festið þráð DROPS Alpaca í sama lit og í sveppahatti, í toppinn á sveppnum og gerið lykkju. SVEPPUR Í GARÐAPRJÓNI: LITUR-1: Stafur: litur nougat. Sveppahattur: litur skógargrænn LITUR-2: Stafur: litur ljós nougat. Sveppahattur: litur ljós brúnn SVEPPUR: Fitjið upp 16 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum fyrir stafinn/stilk. Prjónið sléttprjón hringinn í 4 cm. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN prjónað í hring yfir allar lykkjur (með lit fyrir staf/stilk) – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir (aukið út eftir annarri hverri lykkju) – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð (hverri umferð í sléttum lykkjum) alls 5 sinnum (í hvert skipti er aukið út um 1 lykkju fleiri á milli uppslátta). Eftir síðustu útaukningu eru 56 lykkjur í umferð. Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð brugðið á eftir síðustu útaukningu, skiptið yfir í lit á sveppahatti. Prjónið 6 umferðir sléttprjón án útaukninga. Nú eru þræðirnir festir að innanverðu á svepp, áður en úrtakan byrjar. Í næstu umferð er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir (prjónið 6. og 7. hverja lykkju slétt saman). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð – það verður 1 lykkju færri áður en 2 lykkjur eru prjónaðar saman í hverri umferð sem fækkað er. Haldið áfram með úrtöku þar til 8 lykkjur eru eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 4 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. FRÁGANGUR: Fyllið sveppahattinn með vatti. Saumið út franska hnúta á toppinn á sveppahattinum – nokkur spor eru saumuð í gegnum lögin þannig að botninn á hattinum er festur við toppinn. Fyllið stafinn/stilkinn með vatti og saumið opið saman undir sveppnum. Festið þráð DROPS Alpaca í sama lit og í sveppahatti, í toppinn á sveppnum og gerið lykkju. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsenchantedmushrooms eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1584
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.