Fanny skrifaði:
Undrar om stickor, det står 5-5,5 i beskrivningen men på garnet 9-10? Törs inte beställa till julstrumpa.
20.11.2024 - 09:33DROPS Design svaraði:
Hej Fanny. Det beror på att i detta mönster vill man ha stickningen tätare, dvs fler maskor per 10 cm när det är en socka man stickar. Du ska alltså använda den sticka som gör att du får 14 maskor i bredden till detta mönster och vi rekommenderar då sticka 5,5. Mvh DROPS Design
20.11.2024 - 13:47
Agneta Hansson skrifaði:
Är garnåtgång för en eller två strumpor?
08.11.2024 - 20:18DROPS Design svaraði:
Hei Agneta. Her er det nok tenkt et par sokker, men siden dette er en julesokk burde garnmengde være mindre. Vi kommer til å justere garnmengden til 100 g farge 53, lys grå, 50 g farge 01, natur og 50 g farge 08, crimson rød. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. mvh DROPS Design
11.11.2024 - 11:39
AnneMaxi skrifaði:
Ein schönes Muster für den Weihnachtsstrumpf. Vielen Dank
03.12.2022 - 23:30
Christmas Flower Stocking#christmasflowerstocking |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaður jólasokkur úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum og norrænu mynstri. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1573 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. (A.1 er prjónað í stroffprjóni). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um fleyg hæl): Byrjið 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt (prjónamerki situr í miðju á þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um fleyg hæl): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (lykkja með prjónamerki í), 2 lykkjur snúnar slétt saman. FLEYG HÆLL: Fleyg hællinn er prjónaður í sléttprjóni, fram og til baka. Prjónað er yfir fleiri lykkjur í hverri sléttri umferð. UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir – aukið jafnframt út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, snúið. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir – uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið, snúið. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir – aukið jafnframt út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, snúið. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir – uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið, snúið. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir – aukið jafnframt út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, snúið. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir – uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið, snúið. UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur út umferðina án þess að auka út, snúið. UMFERÐ 8 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur út umferðina = 31 lykkjur. Setjið 1 nýtt prjónamerki mitt í umferð – þetta prjónamerki er notað síðar til að mæla lengd fótar frá. Nú er prjónuð 1 umferð slétt yfir allar lykkjur (einnig lykkjur af þræði mitt ofan á fæti) með litnum ljós grár. Síðan eru 29 lykkjurnar frá fæti settar til baka á þráðinn. Síðan er prjónað í gagnstæða átt, þ.e.a.s. prjónið sléttprjón fram og til baka, en snúið þegar 1 lykkja er aukið út í hvorri hlið í hverri umferð þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir – fækkið jafnframt um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, snúið. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, snúið. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir – fækkið jafnframt um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, snúið. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir – fækkið jafnframt um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, snúið. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur út umferðina án þess að fækka lykkjum, snúið. UMFERÐ 8 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur út umferðina = 25 lykkjur. Prjónið síðan frá réttu yfir allar lykkjur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- JÓLASOKKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. JÓLASOKKUR: Fitjið upp 62 lykkjur á stuttan hringprjón 5 með litnum crimson rauður í DROPS Snow. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 í stroffprjóni (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Eftir A.1, prjónið 1 umferð slétt með litnum ljós grár þar sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir = 54 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið A.2 alls 3 sinnum hringinn á sokknum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 22 cm. Prjónið 1 umferð slétt með litnum ljós grár. Klippið þráðinn frá. Haldið eftir fyrstu 13 lykkjunum á prjóni fyrir fleyg hæl, setjið næstu 29 lykkjur á þráð (mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12 lykkjum á prjóni = 25 lykkjur á prjóni fyrir hæl. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð. Prjónið FLEYG HÆLL með litnum ljós grár – sjá útskýringu að ofan. Þegar fleyg hællinn hefur verið prjónaður til loka, setjið 29 lykkjur af þræði til baka á prjóninn og prjónið slétt = 54 lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur yfir 12 lykkjur frá hæl fram að byrjun á umferð (mitt undir fæti). Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur með litnum ljós grár – JAFNFRAMT í þessari umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki á hæl = 52 lykkjur eftir. Nú hafa verið prjónaðar alls 3 umferðir með litnum ljós grár ofan á fæti. Prjónið síðan A.3 hringinn, þ.e.a.s. rendurnar halda áfram með 3 umferðum í litnum natur / 3 umferðir í litnum ljós grár (ef það myndast smá gat meðfram fleyg hælnum í snúningunum, er hægt að taka þráðinn upp á milli 2 lykkja og prjóna þráðinn snúinn með fyrstu lykkju á vinstri prjóni). JAFNFRAMT í hverri umferð með ör í A.3 er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 44 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum ljós grár. JAFNFRAMT í 2. umferð er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 40 lykkjur. Prjónið þar til sokkurinn mælist ca 17 cm frá prjónamerki sem var sett á hæl til að mæla lengd fótar frá – mælt undir fæti. Nú byrjar úrtaka fyrir tá. Fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir í 4. hverri umferð alls 2 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 2 sinnum = 8 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 4 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 23 cm frá prjónamerki, það á að mæla frá hæl. Þræðið silkiborða í gegnum kantinn efst á bakhlið á sokknum, borðinn er settur í til að hengja sokkinn upp. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #christmasflowerstocking eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1573
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.