Valerie O'Donovan skrifaði:
Hi, its been years since I've knitted mittens and I'm attempting to make these Christmas ones, with leftover yarn from my Christmas KAL Jumper 2022! I can't remember how to the thumbs and the pattern is very scarce on info. I can see from the easy mitten making video that I'm supposed to increase sts alongside the thumb opening over the next few rows. However there is no mention of these stitches, how many rows etc in the pattern....🤔 Hope you can help! Thanks, Val
31.12.2022 - 14:55DROPS Design svaraði:
Dear Mrs O'Donovan, the thumb in these mittens is worked as shown in this video, ie you will work the stitches for thumb with another yarn with another colour and continue in the round as before, and afterwards, you will unravel this yarn to pick up the stitches for thumb on each side of the opening. Happy knitting!
02.01.2023 - 13:48
Terese skrifaði:
I oppskriften, når det beskrives hvordan lage en enkel tommel, så står at man skal sette de 8-9 maskene tilbake på venstre pinne. Dette gjøres ikke i videoen som viser denne teknikken. Hva er riktig?
28.12.2022 - 20:31DROPS Design svaraði:
Hei Terese. Videoen er en generell video på tommel. Når du skal strikke tommelen etter oppskrift 234-61 følger du det som står i oppskriften. mvh DROPS Design
02.01.2023 - 14:30
Christmas Time Mittens#christmastimemittens |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaðir vettlingar úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í marglitu mynstri með jólasveinum og jólatrjám. Þema: Jól.
DROPS 234-61 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1: Ef óskað er eftir því að gera vettling í stærra eða minna ummáli er hægt að prjóna vettlinginn með hálfu eða heilu númeri grófari/fínni prjónum. Ef prjónað er með hálfu númeri grófari /fínni prjónum þá verður 1 cm meira/minna ummál og í heilu númeri grófari/fínni prjónum verðu ummálið 2 cm meira/minna. LEIÐBEININGAR-2: Til að koma í veg fyrir að vettlingarnir missi teygjanleikan þegar mynstrið er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR-3: Hægt er að stilla af lengdina á vettlingnum fyrir byrjun á opi fyrir þumal með því að prjóna færri eða fleiri umferðir áður en prjónað er merki fyrir opi fyrir þumal. ÚRTAKA: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. Vettlingarnir hafa sama ummál í báðum stærðum, nema mismunandi lengd. Ummálið er hægt að jafna til – sjá LEIÐBEININGAR-1! VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 48-48 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum skógargrænn í DROPS Karisma. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1: Prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 2: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 3 cm. Prjónið síðan 4 umferðir garðaprjón hringinn yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og litinn ljós grár. Lestið LEIÐBEININGAR-2 og prjónið A.1 alls 6 sinnum hringinn á vettlingnum. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 12½-14 cm – sjá LEIÐBEININGAR-3, prjónið merki fyrir opi fyrir þumal eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 15-14 lykkjur mynstur eins og áður, prjónið 8-9 lykkjur sléttprjón fyrir opi fyrir þumal með þræði í öðrum lit sem aðskilur sig frá stykkinu, setjið síðan til baka þessar 8-9 lykkjur á vinstri prjón og prjónið mynstur eins og áður út umferðina. Haldið áfram með A.1 hringinn yfir allar lykkjur þar til vettlingurinn mælist ca 21-23 cm frá uppfitjunarkanti. ATH: Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum ljós grár. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd áður en úrtakan byrjar. Setjið 8 prjónamerki í stykkið með 6 lykkjur á milli prjónamerkja. Í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA (8 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls 3 sinnum = 24 lykkjur eftir í báðum stærðum. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 12 lykkjur eftir í báðum stærðum. Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6 lykkjur eftir í báðum stærðum. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 24-26 cm ofan frá og niður. ÞUMALL: Dragið út þráðinn sem prjónaður var yfir 8-9 lykkjur fyrir opi fyrir þumal. Nú eru 16-18 lykkjur. Setjið þessar lykkjur á sokkaprjóna 3, prjónið sléttprjón með litnum ljós grár og prjónið að auki upp 2 lykkjur í hvorri hlið á þumli (hvoru megin við 8-9 lykkjurnar) = 20-22 lykkjur. Prjónið A.2 hringinn. JAFNFRAMT í 2. umferð er fækkað um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. Prjónið 2 umferðir án úrtöku. Endurtakið úrtöku í næstu umferð = 18-20 lykkjur eftir. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum ljós grár þar til þumallinn mælist ca 5-5½ cm. Nú er eftir ca 1 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd á þumli áður en úrtakan byrjar. Prjónið 3 umferðir sléttprjón þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í hverri umferð = 6-8 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 3-4 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Þumallinn mælist ca 6-6½ cm ofan frá og niður. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp jafn margar lykkjur og vinstri vettlingur og prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur þar til stykkið mælist 12½-14 cm. Nú er prjónað merki fyrir opi fyrir þumal eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 25-25 lykkjur mynstur eins og áður, prjónið 8-9 lykkjur sléttprjón fyrir opi fyrir þumal með þræði í öðrum lit sem aðskilur sig frá stykkinu, setjið síðan til baka þessar 8-9 lykkjur á vinstri prjón og prjónið mynstur eins og áður út umferðina. Afgangur af vettlingi er prjónaður á sama hátt og vinstri vettlingur. ÞUMALL: Prjónið þumal á sama hátt og á vinstri vettlingi. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #christmastimemittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 234-61
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.