Helga skrifaði:
Unter dem Hinweis „Bitte beachten“ muss bei der eigenen kleineren Maschenprobe eine dickere Nadel genommen werden und bei der größeren eine kleinere Nadel.
21.09.2022 - 08:39DROPS Design svaraði:
Liebe Helga, ja genau so stimmt es auch: wenn Sie mehr als 26 Maschen kraus rechts haben, dann sind Ihre Maschen zu klein so brauchen Sie grösseren Nadeln; wenn Sie weniger als 26 Maschen kraus rechts haben, dann sind Ihre Maschen zu groß und hier brauchen Sie kleinere Nadeln. Viel Spaß beim stricken!
21.09.2022 - 09:27
Sandra Gauder skrifaði:
Very pretty ,delicate look to this pattern, nice for gifting to someone special
05.08.2022 - 21:18
Purlyplatypus skrifaði:
Dewdrops shawl
05.08.2022 - 07:42
Fresh Rain#freshrainshawl |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með býkúpumynstri / áferðamynstri.
DROPS 234-35 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. SJAL: Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Flora. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan garðaprjón og aukið út eins og útskýrt er að neðan - ATH. Uppsláttur frá útaukningu er alltaf prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. EINING Í GARÐAPRJÓNI: UMFERÐ 1 (rétta): 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (miðjulykkja – þessi lykkja er alltaf prjónuð í sléttprjóni), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, endið með 1 lykkju í garðaprjóni (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (ranga): 1 lykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju, prjónið miðjulykkjuna brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, endið með 1 lykkju í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 3 (rétta): 1 lykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, endið með 1 lykkju í garðaprjóni (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (ranga): 1 lykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju, prjónið miðjulykkju brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, endið með 1 lykkju í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið umferð 3 og 4 þar til stykkið mælist 11 cm í prjónstefnu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist nú ca 16 cm meðfram miðjulykkju og það eru ca 175 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að miðjulykkju og aukið jafnframt út um 28 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í umferð og aukið jafnframt út um 28 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, endið með 1 lykkju í garðaprjóni (= 4 lykkjur fleiri) = ca 235 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, endið með 1 lykkju í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri) = ca 237 lykkjur í umferð. Prjónið síðan býkúpumynstur og aukið út þannig: BÝKÚPUMYNSTUR: UMFERÐ 1 (rétta): 1 lykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónið A.1 eins langt og hægt er fram að miðjulykkju, prjónið þær lykkjur sem eftir eru á undan miðjulykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins margar lykkjur slétt á eftir miðjulykkju eins og á undan miðjulykkju, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja í garðaprjóni (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (ranga): 1 lykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, endið með 1 lykkju í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið umferð 1 og 2. ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í býkúpumynstur þar til smá saman er pláss fyrir heila eða hálfa mynstureiningu á breiddina. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.1 er fækkað um 60 lykkjur jafnt yfir (30 lykkjur hvoru megin við miðjulykkju). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru ca 231 lykkjur í umferð. Prjónið síðan kant þannig: KANTUR: UMFERÐ 1 (rétta): 1 lykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2 eins langt og hægt er fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, en byrjið mynstrið eftir miðjulykkju þannig að mynstrið komi til með að speglast hvoru megin við miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja í garðaprjóni (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (ranga): 1 lykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, endið með 1 lykkju í garðaprjóni (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið umferð 1 og 2 þar til A.2 mælist ca 3 cm. ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Stykkið mælist nú ca 28 cm meðfram miðjulykkju og það eru ca 273 lykkjur í umferð. Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur (aukið út eins og áður frá réttu og frá röngu). Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum frá réttu. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #freshrainshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 234-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.