Ingrid Mohr skrifaði:
I would like to make this pattern, but I'm unsure as the small says it's 45"?? To me that's a pretty large sweater. How many stitches would I need to cut down the size to around 36" bust?
08.06.2015 - 20:49DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Mohr, you can adapt to your size with the help of the measurement chart and another similar pattern. Remember you can get any individual assistance by your DROPS store. Happy knitting!
09.06.2015 - 08:46
Erika Harding skrifaði:
The pattern says to sew down the middle parallel stitching. And then cut . Have you a tutorial showing this? As I am unsure on this. Regards Erika
05.05.2015 - 09:39DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Harding, the video below shows how to work the steek sts. Happy knitting!
05.05.2015 - 10:00
DROPS 27-2 |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa og sokkar með norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stærð S-L.
DROPS 27-2 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Ef óskað er eftir að hafa peysuna síðari (sjá mynd 2 og 3) er hægt að prjóna M.2 áfram. Athugið samt að efnismagnið breytist. KANTUR (á við um peysu): Prjónið 3 cm sléttprjón, 1 umferð brugðin (= uppábrot – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!), 3 cm sléttprjón. STROFF (á við um sokka): * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *. Endurtakið frá *-*. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Lyftið 1 lykkju af prjóni , 1 lykkja slétt (ranga = 1 lykkja brugðið) og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6 (7) lykkjur eru eftir á prjóni. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6 (7) lykkjur eru eftir á prjóni. Snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA – sjá skýringu að ofan. Snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Snúið stykkinu. Prjónið áfram svo að það verði 1 lykkju er færri hvoru megin innan úrtöku. Haldið áfram þar til eftir eru 12 (14) l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð á hringprjóna og er klippt upp fyrir handveg + miðju að framan í lokin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 188 (192-198) l á hringprjóna 2,5 með litnum grár DROPS Karisma og prjónið KANTUR – fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Í síðustu umferð er aukið út um 5 lykkjur við miðju að framan (þessar lykkjur eru til að klippa upp í lokin og eru ekki prjónaðar inn í mynstur), nú er prjónað áfram hringinn. Skiptið yfir á hringprjóna 4 og prjónið M.1 JAFNFRAMT er aukið út um 40 (48-54) l jafnt yfir í 1. umferð = 228 (240-252) l. Eftir M.1 er prjónað M.2 uppúr – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 29 (30-30) cm er aukið út um 5 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þessar lykkjur eru til að klippa upp í lokin og eru ekki prjónaðar inn í mynstur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31 (32-32) cm (stillið af eftir M.2) prjónið M.3, eftri 1 umferð með litnum grár, M.4 og til loka með litnum grár JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 54 (55-55) cm fellið af miðju 32 (34-34) lykkjur + 5 lykkjur fram að hálsmáli og stykkið er prjónað til loka fram og til baka. Fækkið nú lykkjum við hálsmál í 2. umferð 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 2 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 58 (59-59) cm fellið af miðju 40 (42-42) l fyrir hálsmáli að aftan og í næstu umferð við hálsmál eru felldar af 2 lykkjur í hvorri hlið. Fellið af þegar stykkið mælist 59 (60-60) cm. ERMI: Fitjið upp 44 (46-48) l á sokkaprjóna 2,5 með litnum grár og prjónið kant. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 JAFNFRAMT því sem aukið er út um 12 (12-12) l jafnt yfir í 1. umferð = 56 (58-60) l. Prjónið mynstur upp úr þannig (staðsetjið eina mynstureiningu mitt á ermi): M.4, M.6, M.2 þar til stykkið mælist 41 (40-40) cm (stillið af eftir mynstri, eftir það M.3 til loka. JAFNFRAMT eftir kant er aukið út mitt undir ermi hvoru megin við miðjulykkju 1 lykkja 33 (32-32) sinnum til skiptis í *3. og 4. umferð *= 122 (122-124) l. Þegar stykkið mælist 50 (49-49) cm prjónið 2 cm sléttprjón með rönguna út fyrir saum yfir kant sem verður klipptur á fram- og bakstykki. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið merkiþráð niður mitt í útauknar lykkjur á hvorri hlið + miðju að framan. Saumið tvo sauma með saumavél hvoru megin við merkiþráðinn, 1. Saumur = ½ l frá 1. Lykkju frá þræði, 2. Saumur = 1/2 l frá fyrsta saumi. Klippið upp fyrir handvegi og við miðju að framan. Saumið axlasauma. Brjótið uppá kant neðst á fram- og bakstykki og ermi tvöfaldan að röngu og saumið. Takið upp ca 110 l meðfram vinstra framstykki með litnum grár á prjóna 2,5 og prjónið M.4, eftir það til loka með litnum grár, 1 umferð brugðið, 16 umferðir sléttprjón, fellið af og brjótið uppá kantinn tvöfaldan að röngu og saumið. Endurtakið meðfram hægra framstykki en eftir 1 cm eru prjónuð 5 hnappagöt jafnt yfir uppúr – 1 hnappagat = fellið af 2 l aukið út 2 nýjar lykkjur í næstu umferð, leggið kantinn tvöfaldan að röngu yfir kant sem er klipptur og saumið. Takið upp ca 104 lykkjur í kringum hálsmál á prjóna 2,5 með litnum grár og prjónið 2,5 cm sléttprjón, skiptið yfir í litinn rauður, 1 umferð sléttprjón, 1 umferð brugðið, 2,5 cm sléttprjón, fellið af og brjótið upp að röngu og saumið. Saumið ermar við fram- og bakstykki frá réttu þannig: Saumið til skiptis 1 spor í síðustu umferð með garðaprjóni á ermi innan við kant fyrir saum og 1 spor á fram- og bakstykki á eftir spori frá saumavél. Snúið peysunni við með rönguna út og saumið í höndunum kant fyrir saum frá ermi yfir kant sem klipptur var á fram- og bakstykki. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 72 (80) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum grár DROPS Karisma. Prjónið 14 (16) cm STROFF – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið 2 umferðir sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 0 (4) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 72 (84) lykkjur. Prjónið M.7 (en mynstureiningin snýr upp/niður). Eftir það er prjónað áfram með M.2. Þegar stykkið mælist 30 (32) cm byrjar úrtaka fyrir legg. Fækkið lykkjum hvoru megin við miðju lykkju að aftan þannig: Prjónið 2 lykkjur fyrir framan miðju lykkju saman – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA – og 2 lykkjur á eftir miðjulykkju slétt saman – endurtakið svona í 5. hverri umferð (4. hverri umferð) alls 12 (16) sinnum = 48 (52) lykkjur. Þegar stykkið mælist 50 (56) cm eru miðju 24 (26) lykkjur að framan settar á þráð og prjónað er til loka með litnum grár. Prjónið nú 5 (6) cm sléttprjón (hæll) yfir 24 (26) miðju lykkjur að aftan, prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Takið upp 12 (13) lykkjur hvoru megin við hæl og setjið allar lykkjur á sama prjón = 60 (66) lykkjur. Fækkið lykkjum þannig: Prjónið fyrstu 2 lykkjur í efstu 24 (26) lykkjur slétt saman og síðustu 2 lykkjur af þeim efstu 24 (26) lykkjum slétt saman í annarri hverri umferð alls 6 sinnum 48 (54) lykkjur. Prjónið þar til fótur mælist ca 19 (21,5) cm. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á fæti og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur á undan merki slétt saman og 2 lykkjur á eftir merki slétt saman, endurtakið 3 sinnum í annarri hverri umverð = 36 (42) l. Eftir það 7 (9) sinnum í hverri umferð = 8 (6) lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 27-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.