Andreea H skrifaði:
Hi, after yo increase, we still make the bublle after 3 knit stiches or after 4...5 etc? If not after few increases I beleive we need to add one more bubble at the end of the row. Thank you
18.06.2022 - 14:58DROPS Design svaraði:
Dear Andreea, when increasing on the sides, the increased stitches are included in the pattern in the next rows. When you have enough stitches to make 1 more repeat of the pattern, you work an extra bubble. Happy knitting!
18.06.2022 - 15:49
Marine Mazelier skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas la partie suivante pour le dos: Tricoter le rang suivant sur l'endroit ainsi: 1 maille lisière au point mousse, (1 maille endroit, 1 maille envers) au-dessus des 12-14-16-18-20-22 mailles suivantes, tricoter les 13-15-17-19-21-23 mailles suivantes comme avant Quelle est cette histoire de "au-desus des ... mailles suivantes? Et que veut dire "tricoter comme avant"? Enfin, qu'en est-il des rangs envers, comment les tricoter (au point mousse?)? Merci
09.06.2022 - 22:40DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Mazelier, vous tricotez ce rang sur l'endroit avec les 13-15-17-19-21-23 mailles centrales en continuant les diagrammes comme précédemment, et les 12-14-16-18-20-22 mailles de chaque côté en côtes 1/1. Sur l'envers, tricotes les mailles des côtes comme elles se présentent et continuez les diagrammes au milieu. Bon tricot!
10.06.2022 - 08:54
Manue skrifaði:
Bien hâte de commencer ce patron
02.06.2022 - 12:11
Grethe Lønning Grimsbø skrifaði:
Hei! Er det noen spesiell grunn til at den ikke strikkes rundt, men bakstykke og forstykke hver for seg?
01.06.2022 - 17:15DROPS Design svaraði:
Hej Grethe, nej det er bare en måde at gøre det på, det vil sige at du må gerne strikke rundt :)
02.06.2022 - 10:57
Au Fil De Lau skrifaði:
"Douce Provence" (en référence à une variété de petits pois)
17.01.2022 - 14:04
Anna Wilks skrifaði:
Simple charm
15.01.2022 - 13:31
TURPIN skrifaði:
Plumetis
14.01.2022 - 16:20
Letters to Juliet#letterstojuliettop |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaður toppur / bolur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með litnum kúlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-20 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um í hliðum á framstykki og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju innan við ystu 2 lykkjur frá hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI OG 6-6-8-8-10-10 LYKKJUR Í STROFFPRJÓNI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 6-6-8-8-10-10 LYKKJUM Í STROFFPRJÓNI OG 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 7-7-9-9-11-11 lykkjur, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 6-6-8-8-10-10 lykkjur stroffprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka, hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Böndin á öxlum eru prjónuð á framstykki og síðan saumuð við bakstykkið. Að lokum eru hliðarsaumar saumaðir. BAKSTYKKI: Fitjið upp 100-112-122-136-150-166 lykkjur á prjóna 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 3 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-11-13-15-13-15 lykkjur jafnt yfir = 91-101-109-121-137-151 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 3. Prjónið 5 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-3-2-3-1-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 alls 8-9-10-11-13-14 sinnum, A.2, prjónið 3-3-2-3-1-3 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 6 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 99-109-117-129-145-159 lykkjur. Þegar stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 12-14-16-18-20-22 lykkjur, prjónið eins og áður þar til eftir eru 13-15-17-19-21-23 lykkjur í umferð, (1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) yfir næstu 12-14-16-18-20-22 lykkjur og 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATH: Ef það kemur kúla alveg við stroffprjónið í hvorri hlið, prjónið sléttprjón yfir lykkjur í kúlu til að koma í veg fyrir þetta. Þetta á einnig við þegar lykkjum er fækkað við handveg í hvorri hlið. Haldið áfram með mynstur með 12-14-16-18-20-22 lykkjur stroffprjóni og 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af 6-8-8-10-10-12 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu tveimur umferðum = 87-93-101-109-125-135 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með 6-6-8-8-10-10 lykkjur í stroffprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð alls 3-4-4-6-10-13 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 4-4-5-4-3-2 sinnum = 73-77-83-89-99-105 lykkjur. Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir á eftir síðustu úrtöku, prjónið 1 umferð frá réttu þegar auka á út um 8-10-10-10-10-14 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir ystu 7-7-9-9-11-11 lykkjur í hvorri hlið) = 81-87-93-99-109-119 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 7-8-9-9-10-11 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Skiptið yfir á prjón 2,5. Prjónið stroff frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3 cm. Fellið af aðeins laust. Bakstykkið mælist ca 35-37-39-40-42-44 cm. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið á sama hátt og bakstykki, en í stað þess að fella af allar lykkjur eftir stroff efst á bakstykki, prjónið band á öxl / hlýra frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 11-11-13-13-15-15 lykkjur og setjið þessar lykkjur á þráð fyrir band á öxl / hlýra, fellið af 59-65-67-73-79-89 lykkjur og prjónið eins og áður yfir síðustu 11-11-13-13-15-15 lykkjur. Prjónið síðan band á öxl / hlýra eins og útskýrt er að neðan. BAND Á ÖXL /HLÝRI: = 11-11-13-13-15-15 lykkjur á prjóni. Haldið áfram með prjón 2,5, stroffprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til band á öxl / hlýri mælist ca 14-14-14-16-16-16 cm (helmingur af lengdinni tilheyrir bakstykki). Fellið af. Prjónið hitt band á öxl / hlýra á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið bönd á öxlum / hlýra við bakstykkið – yst í hvorri hlið. Saumið hliðarsauminn innan við 1 kantlykkju. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #letterstojuliettop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.