Szidonia skrifaði:
Came out a little big, but they are very cute!
25.05.2026 - 14:13
Els skrifaði:
Kan je ook een gaatjesrij maken? Of leent het model zich hier niet toe? In welke rij en om de hoeveel steken zou je het eventueel kunnen doen? Mvg
08.02.2026 - 09:09DROPS Design svaraði:
Dag Els,
Ja, dat zou wel kunnen. Het hangt een beetje van je persoonlijke smaak of het doel af waar en hoe je dit precies doet. Het is voor ons helaas niet mogelijk om patronen aan te passen naar persoonlijke wensen.
08.02.2026 - 12:40
Em skrifaði:
Hej! Kan ni förtydliga det inom pilarna nedan? Fortsätt fram och tillbaka, men nu stickas det 1 maska mer för varje varv som stickas över hälen. För att det inte ska bli hål i övergångarna —> lyfts tråden före maskan som stickas mer upp och sätts vriden på stickan. Sticka tråden tillsammans med maskan.
19.05.2024 - 22:01DROPS Design svaraði:
Hej Em, se videoen hvordan man gør: Hur man stickar häl diagonalt på en socka
22.05.2024 - 15:23
Lili skrifaði:
Hi How to saw the sock? By using DOUBLE POINTED NEEDLES it is not circular. Something wrong Help
11.05.2024 - 13:03DROPS Design svaraði:
Dear Lili, when working on double pointed needles you are working in the round, look for example at this video where we show how to work another sock pattern in the round on double pointed needles. Happy knitting!
13.05.2024 - 08:42
Leslie Cohen skrifaði:
For 2.5 mm double-pointed needles -- what would be the US equivalent size? thank you!
26.02.2023 - 16:24DROPS Design svaraði:
Dear Leslie, US equivalent size is 1.5. You can click on the scroll down menu below the photo and choose English (US/IN) as you like. Happy knitting!
26.02.2023 - 16:38
Goon Hiay skrifaði:
May I know how to knit and calculate or work for a baby with high instep. Thanks for the help. I am doing a toe up socks.
13.10.2022 - 10:12DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Hiay, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every request - you can take inspiration from on of our toe-up patterns in adult size - or contact your yarn store for any further individual assistance. Thanks for your comprehension. Happy knitting!
13.10.2022 - 13:12
Unicorn Party Socks#unicornpartysocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar fyrir börn úr DROPS Fabel. Stærð 0 - 4 ára.
DROPS Baby 43-26 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLL: Prjónað er fram og til baka í sléttprjóni. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 1 lykkja er eftir, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið stykkinu. Haldið svona áfram fram og til baka þar til eftir eru 8-8-10-10 (10-12) lykkjur mitt á prjóni. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – þetta prjónamerki er notað síðar til að mæla lengd fótar frá. Haldið áfram fram og til baka, en nú er prjónuð 1 lykkja fleiri í hvert skipti sem prjónað er yfir hælinn. Til að koma í veg fyrir að það myndist göt í skiptingunni er þræðinum lyft á undan lykkjunni sem prjónuð til viðbótar upp og sett snúin á prjóninn. Prjónið þráðinn saman við lykkjuna. Prjónið svona þar til prjónað hefur verið yfir allar lykkjur á hæl. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Byrjið 2 lykkjum á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt merkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 44-48-52-52 (56-60) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Fabel. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7-8-9-10 (11-12) cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 40-44-48-48 (52-56) lykkjur. Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur í 2 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú hæl og fót eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Haldið eftir fyrstu 18-18-22-22 (22-26) lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið síðustu 22-26-26-26 (30-30) lykkjur á þráð (miðja ofan á fæti). Prjónið HÆLL – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælinn eru lykkjur af þræði settar til baka á prjóninn = 40-44-48-48 (52-56) lykkjur. Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 7-8-9-10 (11-13) cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Nú eru eftir 3-3-3-3 (4-4) cm að loka máli. TÁ: Setjið 1 merki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 20-22-24-24 (26-28) lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón, jafnframt í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði merkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-5-6-6 (7-8) sinnum = 8-12-12-12 (12-12) lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið að þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12-13 (15-17) cm frá merki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #unicornpartysocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.