Bruel skrifaði:
Bonsoir, je fais la taille 38. Le A1 ne correspond pas du tout aux 25 mailles au fur et à mesure des rangs. Tout se decale. Comment faire ?
30.08.2026 - 22:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bruel, mettez bien un marqueur avant et après vos 25 mailles de A.1 pour bien repérer ces mailles et les tricoter comme indiqué dans le diagramme, elles ne doivent pas se décaler, vous devez toujours avoir 17 m jersey avant A.1 au début du tour et 16 m jersey après les 25 m de A.1 à la fin du tour. Bon tricot!
01.09.2026 - 19:06
Lali skrifaði:
Buona sera, spiegazioni chiare ed è stato un divertimento farli! Grazie!
12.05.2025 - 20:51
Berit skrifaði:
Hei. Stemmer totalt antall masker etter at man har felt til hæl og strikket opp nye masker på sidene? I str M står det at jeg da skal ha 76 masker, men jeg har bare 74. Er oppskriften riktig?
10.07.2024 - 16:31DROPS Design svaraði:
Hei Berit. I str. 38/40. Når du har strikket hællfellingen ferdig skal du ha 15 masker på pinnen, så plukker du opp 16 masker langs siden på hælen, deretter strikker du de 29 maskene fra tråden og til slutt plukker du opp 16 masker langs den andre siden av hælen = 15+16+29+16= 76 masker. Sjekk om du har riktig antall masker etter hællfellingen og/eller om du har plukket opp riktig antall masker langs sidene . mvh DROPS Design
11.07.2024 - 06:51
Elvira skrifaði:
Non riesco a capire come si lavora questo schema potete aiutarmi co un video?
30.09.2023 - 13:39DROPS Design svaraði:
Buongiorno Elvira, non ci sono video specifici per questo schema: se ci spiega meglio la sua difficoltà possiamo provare ad aiutarla. Buon lavoro!
30.09.2023 - 14:20
Isolde skrifaði:
Wegbegleiter
18.01.2022 - 09:53
June Jumpers#junejumperssocks |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaðir sokkar / ökklasokkar með gatamynstri úr DROPS Fabel. Stærð 35 - 43.
DROPS 229-23 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 15-15-17 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um tá): Byrjið 3 lykkjum á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt merkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi og niður að tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 56-60-64 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Fabel. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2-2-3 cm. Eftir stroff eru prjónaðar 2 umferðir sléttprjón – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir = 54-58-62 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 15-17-19 lykkjur sléttprjón, A.1, prjónið 14-16-18 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 3-3-4 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er prjónaður hæll og fótur eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 14-15-16 lykkjur og haldið eftir lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 27-29-31 lykkjur á þráð (miðja ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 13-14-15 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 27-29-31 hællykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 6-6-6½ cm. Setjið 1 merki fyrir miðju í síðustu umferð – síðar er stykkið mælt frá þessu merki. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 15-15-17 hællykkjur, prjónið upp 16-16-17 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið 27-29-31 lykkjur af þræði í sléttprjóni og mynstur eins og áður (25 lykkjur gatamynstur með lykkjur af þræði í sléttprjóni í hvorri hlið) og prjónið upp 16-16-17 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hælnum = 74-76-82 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 merki hvoru megin við 27-29-31 lykkjur ofan á fæti. Haldið áfram með A.1 yfir miðju 25 lykkjur og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur á undan fyrra merki ofan á fæti slétt saman og prjónið fyrstu 2 lykkjur á eftir seinna merki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 11-10-11 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 cm frá merki á hæl, mælt undir fæti – stillið af að A.1 endar eftir heila mynstureiningu á hæðina, prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur að réttu máli. Nú eru eftir 4-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 merki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði merkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6-3-2 sinnum = 12-16-16 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-8-8 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið að þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá merki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #junejumperssocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 229-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.