Marianne skrifaði:
In A3 kun je de waaier beter wel in de vaste haken, anders verdwijnt de rand!! Zo wordt het precies zoals op de foto, waar duidelijk ook in de vaste gehaakt is.
13.06.2025 - 18:10
Sybille Felbermayr skrifaði:
Hallo. Ich häkel momentan A2. Bei der 2. Reihe mit der Noppe und 3 Stäbchen. Wenn ich das häkel habe ich 168 Maschen statt 128. Was mache ich falsch? Bitte helfen. Danke
21.01.2025 - 17:32DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Felbermayr, mit 128 Maschen wiederholen Sie A.2 insgesamt 32 Mal (32x4 M=128); so bei den 2 ersten Reihen A.2 sollen Sie immer noch 128 M haben, setzen Sie Markierer zwischen jedem A.2 ein, es kann Ihnen helfen, die Maschenanzahl in jedem A.2 zu prüfen. Viel Spaß beim Häkeln!
22.01.2025 - 08:46
Nyte skrifaði:
Hi, I believe Audrey is correct. The ridge will vanish in A3 if you crochet to the instructions. The ridge is formed by the tops of the treble crochet (the tops of the double crochet fold towards the back of the work). If you work the fan stitches into the tops of the treble crochet round you are working into the top of the ridge and making the ridge vanish. The photos look like the fan stitch is worked in the dc and not in the tr row below as stated. Does that sound right?
15.11.2024 - 23:33DROPS Design svaraði:
Dear Nyte, you need to insert the crochet hook in the treble crochet two rounds below, in the very same stitch where the double crochet had been worked. If the ridge dissapears then the gauge may not have been right when working these rows. Happy crochetting!
17.11.2024 - 21:10
Annet Boersma skrifaði:
Bij bestelling wordt het juiste huisnummer niet geaccepteerd
09.04.2024 - 13:34DROPS Design svaraði:
Dag Annet,
Het bestellen van garens gaat via een van de verkooppunten die onze artikelen verkopen; wij verkopen geen garens via de site, dus als je tegen dingen aanloopt bij het bestellen zou je even contact op moeten nemen met het betreffende verkooppunt.
09.04.2024 - 20:32
Lydia skrifaði:
Bij A.2: de bobbel van 15 steken is bijna niet te doen. Normaliter haak je een bobbel ook aan de verkeerde kant van het werk. Aangezien dit patroon rond gehaakt wordt, zie ik niet hoe ik dat dan moet doen. Kan ik met minder steken werken dan 15 ?
12.11.2023 - 23:09DROPS Design svaraði:
Dag Lydia,
Het kan inderdaad soms lastig gaan om zo'n bobbel te maken. Vaak komt dit doordat de steken of omslagen te strak gemaakt zijn. Maar je kunt natuurlijk ook bobbels met minder steken maken. Kijk gewoon wat voor jou het beste werkt.
15.11.2023 - 13:58
Audrey Cremin skrifaði:
In A3, after crocheting the round of double crochet to form the \'ridge\', when crocheting the fan in next round in the round of trebles , the lovely \'ridge\' disappears, so I must be doing something wrong as I can clearly see the ridge in the photos. Help please! I\'m using Drops Muskat and it\'s looking lovely. I love Drops patterns; I have been crocheting for 70 years. Audrey Cremin
11.05.2023 - 22:16DROPS Design svaraði:
Dear Audrey, the "ridge" is formed by a sort of relief-stitch. This is maintained by the gauge and, if you work too loosely, this " ridge" will end up opening up the more the garment is worked and the more it weighs. So, for it to no dissapear, you need to ensure that the gauge is tight enough. Hope this helps and happy crocheting!
14.05.2023 - 19:14
Monica skrifaði:
232-40_sand castle_taglia L sprone_lavoro A3 sulle 195 maglie precedenti ma dopo aver eseguito i giri 2 e 3 ci sono 65 ventaglietti per un totale di 260 maglie alte: a questo punto c'è qualcosa che non va perché nell'ultimo giro di A3 devo fare 33 aumenti per arrivare a 228 maglie! cosa sbaglio? grazie per l'aiuto.
09.05.2023 - 17:36DROPS Design svaraði:
Buonasera Monica, il motivo A.3 si lavora su 5 maglie, e sull'ultimo giro di A.3 deve aumentare 33 maglie passando da 195 a 228 maglie. Buon lavoro!
11.05.2023 - 21:50
Marcela Montenegro skrifaði:
Muy bello,lo podría hacer en lana pura 100%pura lana de oveja?
03.03.2023 - 20:22
Marcela Montenegro skrifaði:
Muy bello,lo podría hacer en lana pura 100%pura lana de oveja?
03.03.2023 - 20:19DROPS Design svaraði:
Hola Marcela, si la tensión de trabajo con tu hilo coincide con la del patrón puedes usar ese hilo para realizar la labor.
05.03.2023 - 19:10
Danielle Blais skrifaði:
Merci de votre réponse! Je n'avais pas remarqué le menu déroulant sous la photo.
17.01.2023 - 18:10
Sand Castle#sandcastle |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Cotton Light. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, sólfjaðramynstri og kúlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-40 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum (þær koma ekki í stað fyrsta stuðul) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Allar umferðir með fastalykkjum byrja með 1 loftlykkju (þær koma ekki í stað fyrstu fastalykkju) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í / um sömu lykkju. Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 84 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 32) = 2,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla til skiptis í ca annan hvern og 3. hvern stuðul. HEKLÐI 1 STUÐUL OG 1 ÞRÍBRUGÐINN STUÐUL SAMAN: Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju í umferðina fyrir neðan, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni, bregðið þræðinum 3 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni í kringum stuðulinn frá réttu á stykki 2 umferðum fyrir neðan (strikaða línan sýnir þríbrugðna stuðulinni), sækið þráðinn, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. HEKLIÐ 1 ÞRÍBRUGÐINN STUÐUL OG 1 STUÐUL SAMAN: Bregðið þræðinum 3 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni í kringum stuðul frá réttu á stykki 2 umferðum fyrir neðan (strikaða línan sýnir þríbrugðna stuðulinn), sækið þráðinn, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju í umferðina fyrir neðan, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð í umferð einungis með stuðlum. Heklið 1 stuðul, heklið 2 næstu stuðla saman þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri), heklið þar til 3 lykkjur eru eftir, heklið 2 næstu lykkjur saman og endið með 1 stuðli í síðustu lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptis fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið og ermar er síðan heklað í hring hvort fyrir sig. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 84-86-90-92-96-102 loftlykkjur - lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 4,5 með DROPS Cotton Light og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR = 84-86-90-92-96-102 stuðlar. Heklið 2 umferðir til viðbótar með 1 stuðul í hvern stuðul. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Heklið A.1 yfir allar lykkjur. Í síðustu umferð í A.1 er aukið út um 32-38-38-40-40-42 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (útaukningsumferð er merkt með ferningi í hlið á mynsturteikningu) = 116-124-128-132-136-144 lykkjur. Heklið A.2 yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í 3. umferð í A.2 er aukið út um 28-36-36-36-36-40 stuðla jafnt yfir = 144-160-164-168-172-184 lykkjur. Í 4. umferð í A.2 er aukið út 26-25-31-32-38-41 stuðla jafnt yfir = 170-185-195-200-210-225 lykkjur. Heklið A.3 yfir allar lykkjur. Í síðustu umferð í A.3 er aukið út um 22-25-33-34-36-39 stuðla jafnt yfir = 192-210-228-234-246-264 lykkjur. Heklið A.4 yfir allar lykkjur. Í 6. umferð í A.4 er aukið út um 18-25-27-21-34-36 stuðla jafnt yfir = 210-235-255-255-280-300 lykkjur. Heklið nú mynstur eins og útskýrt er að neðan. JAFNFRAMT sem stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Lestu allan kaflann áður en þú heklar áfram. Heklið A.3 yfir allar lykkjur. Í síðustu umferð í A.3 er aukið út um 0-0-0-25-30-35 lykkjur jafnt yfir = 210-235-255-280-310-335 lykkjur. Heklið A.5 yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá prjónamerki (útaukningar hafa verið gerðar til loka), skiptið stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Stillið af að síðasta umferð og næsta umferð sé umferð einungis með stuðlum eða stuðlum/kúlum. Heklið yfir fyrstu 60-68-73-80-91-100 lykkjur, hoppið yfir næstu 45-49-54-60-64-67 lykkjur fyrir ermi og heklið 10-9-9-10-9-10 loftlykkjur undir ermi, heklið yfir næstu 60-69-74-80-91-101 lykkjur eins og áður, hoppið yfir næstu 45-49-54-60-64-67 lykkjur fyrir ermi og heklið 10-9-9-10-9-10 loftlykkjur undir ermi, heklið umferðina saman eins og áður. Klippið þráðinn. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-155-165-180-200-221 lykkjur. Færið umferðina til þannig að hún byrji mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fastalykkju í 5. loftlykkju undir annarri erminni, 3 loftlykkjur, heklið A.5 hringinn yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 0-0-0-0-0-1 lykkju (fyrsta lykkjan í A.5 er hekluð í sömu loftlykkju og fastalykkjan) = 140-155-165-180-200-220 lykkjur. Endurtakið A.5 á hæðina þar til stykkið mælist 19-19-20-20-20-20 cm frá skiptingu, stillið af að síðasta umferðin sé umferð einungis með stuðlum. Heklið A.6 yfir allar lykkjur. Klippið þráðinn og festið þegar A.6 hefur verið heklað til loka. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl. ERMI: Heklið nú yfir de 45-49-54-60-64-67 lykkjur sem hoppað var yfir: Heklið 1 fastalykkju í 5. loftlykkju sem var hekluð undir ermi, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hverja af 5 loftlykkjum (fyrsti stuðullinn er heklaður í sömu loftlykkju og fastalykkjan), 1 stuðull í hverja og eina af næstu 0-2-2-0-2-1 lykkjum, A.5 alls 9-9-10-12-12-13 sinnum, 1 stuðull í hverja af næstu 0-2-2-0-2-1 lykkjum og 1 stuðull í hverja af síðustu 5-4-4-5-4-5 loftlykkjum = 55-58-63-70-73-77 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri undir ermi eru heklaðar í stuðlum. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með ca 3½-3-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 8-9-11-14-15-16 sinnum = 39-40-41-42-43-45 lykkjur. Þegar ermin mælist 36-34-34-32-31-29 cm frá skiptingu, stillið af að síðasta umferðin sé umferð einungis með stuðlum, heklið A.6 yfir allar lykkjur. Klippið þráðinn og festið þegar A.6 hefur verið heklað til loka. Ermin mælist ca 41-39-39-37-36-34 cm frá skiptingu. Heklið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI. Heklið kant í kringum hálsmál þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju efst í hálsmáli. Klippið þráðinn og festið. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sandcastle eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.