Sand Castle Top |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Cotton Light. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, sólfjaðramynstri og kúlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-39 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum (þær koma ekki í stað fyrsta stuðul) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Allar umferðir með fastalykkjum byrja með 1 loftlykkju (þær koma ekki í stað fyrstu fastalykkju) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í / um sömu lykkju. Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 84 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 32) = 2,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla til skiptis í ca annan hvern og 3. hvern stuðul. HEKLÐI 1 STUÐUL OG 1 ÞRÍBRUGÐINN STUÐUL SAMAN: Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju í umferðina fyrir neðan, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni, bregðið þræðinum 3 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni í kringum stuðulinn frá réttu á stykki 2 umferðum fyrir neðan (strikaða línan sýnir þríbrugðna stuðulinni), sækið þráðinn, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. HEKLIÐ 1 ÞRÍBRUGÐINN STUÐUL OG 1 STUÐUL SAMAN: Bregðið þræðinum 3 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni í kringum stuðul frá réttu á stykki 2 umferðum fyrir neðan (strikaða línan sýnir þríbrugðna stuðulinn), sækið þráðinn, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju í umferðina fyrir neðan, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ÚRTAKA (á við um kanta á ermum): Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptis fyrir fram- og bakstykki og kanta á ermum. Fram- og bakstykkið og kantar á ermum er síðan heklað í hring hvort fyrir sig. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 84-86-90-92-96-102 loftlykkjur - lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 4,5 með DROPS Cotton Light og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR = 84-86-90-92-96-102 stuðlar. Heklið 2 umferðir til viðbótar með 1 stuðul í hvern stuðul. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Heklið A.1 yfir allar lykkjur. Í síðustu umferð í A.1 er aukið út um 32-38-38-40-40-42 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (útaukningsumferð er merkt með ferningi í hlið á mynsturteikningu) = 116-124-128-132-136-144 lykkjur. Heklið A.2 yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í 3. umferð í A.2 er aukið út um 28-36-36-36-36-40 stuðla jafnt yfir = 144-160-164-168-172-184 lykkjur. Í 4. umferð í A.2 er aukið út 26-25-31-32-38-41 stuðla jafnt yfir = 170-185-195-200-210-225 lykkjur. Heklið A.3 yfir allar lykkjur. Í síðustu umferð í A.3 er aukið út um 22-25-33-34-36-39 stuðla jafnt yfir = 192-210-228-234-246-264 lykkjur. Heklið A.4 yfir allar lykkjur. Í 6. umferð í A.4 er aukið út um 18-25-27-21-34-36 stuðla jafnt yfir = 210-235-255-255-280-300 lykkjur. Heklið nú mynstur eins og útskýrt er að neðan. JAFNFRAMT sem stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Lestu allan kaflann áður en þú heklar áfram. Heklið A.3 yfir allar lykkjur. Í síðustu umferð í A.3 er aukið út um 0-0-0-25-30-35 lykkjur jafnt yfir = 210-235-255-280-310-335 lykkjur. Heklið A.5 yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 22-23-24-26-28-30 cm frá prjónamerki (útaukning hefur verið gerð til loka), skiptið stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Stillið af að næsta umferð sé umferð einungis með stuðlum eða stuðlum/kúlum. Heklið yfir fyrstu 60-68-73-80-91-100 lykkjur, hoppið yfir næstu 45-49-54-60-64-67 lykkjur fyrir ermi og heklið 10-9-9-10-9-10 loftlykkjur undir ermi, heklið yfir næstu 60-69-74-80-91-101 lykkjur eins og áður, hoppið yfir næstu 45-49-54-60-64-67 lykkjur fyrir ermi og heklið 10-9-9-10-9-10 loftlykkjur undir ermi, heklið umferðina saman eins og áður. Klippið þráðinn. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-155-165-180-200-221 lykkjur. Færið umferðina til þannig að hún byrji mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fastalykkju í 5. loftlykkju undir annarri erminni, 3 loftlykkjur, heklið A.5 hringinn yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 0-0-0-0-0-1 lykkju (fyrsta lykkjan í A.5 er hekluð í sömu loftlykkju og fastalykkjan) = 140-155-165-180-200-220 lykkjur. Endurtakið A.5 á hæðina þar til stykkið mælist 17-18-19-19-19-19 cm frá skiptingu, stillið af að síðasta umferðin sé umferð einungis með stuðlum. Heklið A.6 yfir allar lykkjur. Klippið þráðinn og festið þegar A.6 hefur verið heklað til loka. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl. KANTUR Á ERMUM: Heklið nú yfir de 45-49-54-60-64-67 lykkjur sem hoppað var yfir þannig: Heklið 1 fastalykkju í 5. loftlykkju sem var hekluð undir ermi, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í/um hverja lykkju (fyrsti stuðullinn er heklaður í sömu loftlykkju og fastalykkjan) = 55-58-63-70-73-77 stuðlar. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið um 8-6-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 47-52-57-64-67-71 lykkjur. Klippið þráðinn og festið. Heklið hinn kant á ermi á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið kant í kringum hálsmál þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju efst í hálsmáli. Klippið þráðinn og festið. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Jeanne Buijs-de Wit wrote:
Ik heb een kleine maat dus wil ik maat s maken. Daarbij moet ik 84 losse haken. Maar ik krijg die losse ring niet om mijn hoofd. Ik neem toch aan dat het in een stuk wordt gehaakt. Kan ik ook meer losse haken en naderhand minder meerderen ? Graag uw advies.
29.03.2024 - 13:19DROPS Design answered:
Dag Jeanne,
De lossenring moet je vrij los haken, anders past het inderdaad niet over je hoofd. Zorg ervoor dat je niet op het uiteinde van de haaknaald haakt, anders worden de steken te strak. Je zou ook een naald dikker kunnen nemen voor de lossenlus van de hals.
03.04.2024 - 21:11Ester Montero wrote:
En abanico de A3, después de una vuelta de puntos bajos, dice que debo trabajar en el punto alto de la vuelta anterior, no sé dónde introducir el ganchillo. Me podrían ayudar? Gracias
28.07.2023 - 11:37DROPS Design answered:
Hola Ester, tienes que pinchar en el punto alto dos vueltas debajo, en el mismo donde se había introducido el punto bajo.
29.07.2023 - 16:41Eva wrote:
Hallo, ich kann leider nicht nachvollziehen, wie bei A1 ein Stäbchen um eine Masche herum gehäkelt wird. Auch in dem Video wird mir dieser Schritt nicht ersichtlich. Gäbe es eine genauere Erklärung dazu, wo genau die Nadel eingestochen und der Faden geholt wird? Vielen Dank
29.06.2023 - 22:08DROPS Design answered:
Liebe Eva, in A.1 wird man Reliefstäbchen häkeln, in diesem Video zeigen wir, wie man ein Stäbchen um das vorige Stäbchen häkelt. Viel Spaß beim häkeln!
30.06.2023 - 07:52Desislava Abadzhieva wrote:
Hello may i ask you how to use my yarn 100 %cotton 100 gr =260 mt , 10/10 - 20/34 how to use it for this pattern Thank you!
10.04.2023 - 20:59DROPS Design answered:
Dear Mrs Abadzhieva, sorry we cannot help with a yarn we do not know, but you can read more info about the yarn used in this pattern here. Happy crocheting!
11.04.2023 - 14:18Lorena Giovannelli wrote:
Avevo visto sui modelli primavera estate un top, maglia con maniche a sbuffo e cardigan tutto coordinato di colore giallo con delle rouches realizzato con all'uncinetto con cotone , ma non li ritrovo sui modelli attualmente disponibili. Avete per caso le spiegazioni da darmi? Grazie.
19.04.2022 - 18:07DROPS Design answered:
Buonasera Lorena, i modelli della collezione estiva continueranno ad essere pubblicati sul sito durante tutta la stagione. Continui a tenerlo monitorato. Buon lavoro!
19.04.2022 - 21:25