Margareth skrifaði:
Fantasy triangle
19.01.2022 - 13:16
ByMiep skrifaði:
Cleo. Short for Cleopatra. The pattern reminds me of Egyptian hiëroglyfs. The green is the color of the banks of the river Nile.
15.01.2022 - 18:37
Conny skrifaði:
Fertile border
15.01.2022 - 11:08
Tora skrifaði:
Garden Party
15.01.2022 - 04:20
Margarita skrifaði:
Todoterreno
14.01.2022 - 19:57
Nikag skrifaði:
Summer chill
14.01.2022 - 18:35
Saara skrifaði:
Green Candy
14.01.2022 - 16:43
Treasure Hunt#treasurehunttop |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með hringlaga berustykki, gatamynstri og ¾ löngum ermum með pífu. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-21 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.4). ÚRTAKA (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 228 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 11,4. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna til skiptis ca 10. og 11. hverja lykkju og 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón neðan frá og upp. Fram- og bakstykki og ermar er sett saman, áður en berustykkið er prjónað í hring að loka máli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 228-252-273-300-330-363 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Haldið áfram með stroffið svona í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20-22-25-26-30-33 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 208-230-248-274-300-330 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 23-24-25-25-25-25 cm, fellið af fyrir handvegi í hvorri hlið þannig: Fellið af 3-4-4-5-5-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 98-107-116-127-140-153 lykkjur sléttprjón, fellið af 6-8-8-10-10-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið 98-107-116-127-140-153 lykkjur sléttprjón, fellið af 3-4-4-5-5-6 lykkjur fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 140-147-154-161-168-175 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með DROPS Safran. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.2 alls 20-21-22-23-24-25 sinnum hringinn á ermi. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 60-63-66-69-72-75 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-6-4 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½.-2.-1½.-1.-1.-1 cm millibili alls 8-9-12-16-17-17 sinnum = 76-81-90-101-106-109 lykkjur (skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir því sem fleiri lykkjur eru auknar út). Þegar ermin mælist 27-26-26-24-23-21 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 3-4-4-5-5-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 70-73-82-91-96-97 lykkjur sléttprjón, fellið af 3-4-4-5-5-6 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn. Prjónið hina ermina á sama hátt. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón 3 og fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 336-360-396-436-472-500 lykkjur. Prjónið 2-2-2-2-4-10 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan A.3 í kringum berustykki. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.4 í kringum berustykki. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.4, er lykkjum fækkað jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚRTAKA: Ör-1: Fækkið um 12-12-12-16-16-20 lykkjur jafnt yfir = 324-348-384-420-456-480 lykkjur. Ör-2: Fækkið um 24-24-36-42-54-54 lykkjur jafnt yfir = 300-324-348-378-402-426 lykkjur. Ör-3: Fækkið um 28-36-44-36-42-48 lykkjur jafnt yfir = 272-288-304-342-360-378 lykkjur. Ör-4: Fækkið um 40-40-48-62-72-74 lykkjur jafnt yfir = 232-248-256-280-288-304 lykkjur. Ör-5: Fækkið um 40-40-40-48-48-56 lykkjur jafnt yfir = 192-208-216-232-240-248 lykkjur. Ör-6: Fækkið um 42-52-56-64-68-68 lykkjur jafnt yfir = 150-156-160-168-172-180 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 20-21-22-24-26-28 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar var sett saman (það eru ca 2-3-4-4-5-5 cm sléttprjón eftir A.4) – JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 30-32-32-34-34-36 lykkjur jafnt yfir = 120-124-128-134-138-144 lykkjur. Prjónið síðan kant í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið A.5 hringinn þar til kantur í hálsmáli mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #treasurehunttop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.