DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Green Glade Top

Heklaður toppur úr DROPS Belle. Stykkið er heklað neðan frá og upp. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-42
DROPS Design: Mynstur vs-090
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-250-300-300-350 g litur 10, mosagrænn

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkja/stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur (þær koma í stað fyrsta stuðuls), þ.e.a.s. hoppið yfir fyrsta stuðul frá fyrri umferð. Síðasti stuðull í umferð er heklaður í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja (hún kemur í stað fyrstu fastalykkju), þ.e.a.s. hoppið yfir fyrstu lykkju frá fyrri umferð. Síðasta fastalykkja í umferð er hekluð í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á framstykki og bakstykki):
Aukið út með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul. Aukið út innan við 1 stuðul í hvorri hlið. Útauknar lykkjur halda áfram í stuðlum.

ÚRTAKA:
HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN ÞANNIG:
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er heklað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp. Stykkin eru saumuð saman og kantur er heklaður í kringum op í hálsmáli á toppnum.

FRAMSTYKKI:
Heklið 74-80-88-96-108-118 loftlykkjur - lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS Belle. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 70-76-84-92-104-114 loftlykkjum = 72-78-86-94-106-116 stuðlar. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING!
Aukið svona út með 4-4-4-5-5-5 cm millibili alls 4 sinnum = 80-86-94-102-114-124 lykkjur. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, heklið næstu umferð þannig: Heklið keðjulykkjur yfir fyrstu 8-8-9-10-13-15 stuðla í umferð, heklið þar til eftir eru 8-8-9-10-13-15 stuðlar í umferð = 64-70-76-82-88-94 stuðlar. Snúið stykkinu. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul og haldið áfram með úrtöku fyrir handveg í hvorri hlið: Heklið 2 ystu stuðla í hvorri hlið saman – sjá ÚRTAKA, endurtakið úrtöku í hverri umferð alls 6-6-6-7-7-8 sinnum = 52-58-64-68-74-78 stuðlar. Nú skiptist framstykkið og hvor hluti er heklaður til loka hvor fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, heklið 2 næstu stuðla saman, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 8-10-12-14-16-18 stuðlum, heklið 2 næstu stuðla saman, heklið 1 stuðul í næsta stuðul. Snúið og heklið frá miðju að framan, JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju við miðju að framan og 1 lykkju að hlið í hverri umferð eins og útskýrt er að ofan. Fækkið lykkjum svona þar til 4 stuðlar eru eftir í umferð. Heklið 4 síðustu stuðla saman 2 og 2 = 2 stuðlar. Klippið þráðinn og festið.

HÆGRA FRAMSTYKKKI (þegar flíkin er mátuð):
Hoppið yfir miðju 24-26-28-28-30-30 stuðla á framstykki (nú eru eftir 14-16-18-20-22-24 stuðlar að hlið), heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, heklið 2 næstu stuðla saman, heklið 1 stuðul í hvern og einn af næstu 8-10-12-14-16-18 stuðla, heklið 2 næstu stuðla saman, heklið 1 stuðul í næsta stuðul. Snúið og heklið frá hlið, JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju við miðju að framan og 1 lykkju í hlið í hverri umferð eins og útskýrt er að ofan. Fækkið lykkjum svona þar til 4 stuðlar eru eftir í umferð. Heklið 4 síðustu stuðla saman 2 og 2 = 2 stuðlar. Klippið þráðinn og festið.

BAKSTYKKI:
Heklið á sama hátt og framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma, en skiljið eftir 6 cm neðst í hvorri hlið = klauf.

KANTUR Í KRINGUM HÁLSMÁL:
Það á að hekla kant í kringum hálsmálið á framstykki og bakstykki. Fyrst eru stykkin hekluð saman með því að hekla loftlykkjuröð yfir hvora öxl. Byrjið á hægra framstykki, heklið 1 keðjulykkju efst í horni, heklið ca 3 til 11 loftlykkjur (deilanlegt með 2 + 1) – munið eftir LOFTLYKKJA og festið með keðjulykkju í horni á hægra bakstykki. Klippið þráðinn. ATH! Lengdin á loftlykkjuröð er hægt að stilla til að fá rétta lengd á toppnum, mátið e.t.v. toppinn. Heklið alveg eins loftlykkjuröð í vinstri hlið. Klippið þráðinn.
Framstykkið og bakstykkið hefur nú verið heklað saman yfir hvora öxl.

Byrjið aftan á vinstra bandi fyrir öxl á bakstykki (= keðjulykkja í loftlykkjuröð), heklið 1 keðjulykkju + 3 loftlykkjur í fyrstu loftlykkju (= kemur í stað fyrsta stuðul), heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju frá loftlykkjuröð, heklið 2 stuðla um hverja umferð með stuðlum niður meðfram vinstra framstykki þar til hoppað er yfir stuðla fyrir hálsmáli (= 12-14-16-18-20-22 stuðlar), heklið 1 stuðul í hvern stuðul mitt að framan, jafnframt er aukið út um 1 stuðul yfir þessa 24-26-28-28-30-30 stuðla (= 25-27-29-29-31-31 stuðlar), heklið 2 stuðla um hverja umferð með stuðlum upp að hægra framstykki (= 12-14-16-18-20-22 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju frá loftlykkjuröð, heklið 2 stuðla um hverja umferð með stuðlum niður meðfram hægra bakstykki þar til hoppað er yfir stuðla fyrir hálsmáli (= 12-14-16-18-20-22 stuðlar), heklið 1 stuðul í hvern stuðul mitt að aftan, jafnframt er aukið út um 1 stuðul yfir þessa 24-26-28-28-30-30 stuðla (= 25-27-29-29-31-31 stuðlar), heklið 2 stuðla um hverja umferð með stuðlum upp að vinstra horni á bakstykki (= 12-14-16-18-20-22 stuðlar).

Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli horna og hálsmáls mitt að aftan og mitt að framan, hér á að fækka lykkjum (= 4 prjónamerki).

UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur (koma í stað fyrsta stuðul), (* 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, 1 stuðul í næsta stuðul *, heklið frá *-* þar til 2 stuðlar eru eftir niður að prjónamerki, hoppið yfir næstu 4 stuðla, heklið 1 stuðul í næsta stuðul), heklið frá (-) þar til 1 stuðull er eftir, endið með 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 stuðul og heklið 1 keðjulykkju í byrjun á umferð.

UMFERÐ 2: Heklið 3 loftlykkjur, * heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul í hverja loftlykkju þar til 1 stuðull er eftir á undan prjónamerki, hoppið yfir 2 næstu stuðla *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

UMFERÐ 3: Heklið 3 loftlykkjur, (* 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, 1 stuðull í næsta stuðul *, heklið frá *-* þar til 1 stuðull er eftir niður að prjónamerki, hoppið yfir næstu 2 stuðla, heklið 1 stuðul í næsta stuðul *), heklið frá (-) þar til 1 stuðull er eftir, endið með 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 stuðul og heklið 1 keðjulykkju í byrjun á umferð.

UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul/um hverja loftlykkju.

HEKLAÐUR KANTUR Í KRINGUM HANDVEG:
Heklið 1 kant í kringum hvorn handveg, byrjið neðst þar sem lykkjum var fækkað fyrir handveg, heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul, 2 fastalykkjur um hverja umferð með stuðlum og 1 fastalykkja í hverja loftlykkju. Heklið í kringum allan handveginn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Heklið alveg á sama hátt í kringum hinn handveginn.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-42

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Petra De Trift wrote:

Hoi, ik heb net 1 kant klaar maar ik merk dat ik het voorpand nogal kort vind. Klopt het dat dit een kort patroon is? Ik heb graag dat het tot mijn heupen valt. Kan ik dan het best na de eerste 8 cm, nog 5 cm bij doen? Of valt dit dat dan veel te lang? Ben anders bang dat met het bukken of armen omhoog te doen, er huid te zien zal zijn

22.07.2023 - 08:39

DROPS Design answered:

Dag Petra,

Het is inderdaad een kort patroon. Je zou er inderdaad nog een aantal centimeters aan kunnen haken, alleen zie je dat wel, omdat je de andere kant op haakt. Houd er ook rekening mee dat je misschien moet meerderen omdat de heupen breder zijn (afhankelijk van hoe lang je hem maakt.

24.07.2023 - 20:08

country flag Anna wrote:

Dzień dobry. Na końcu części PRAWY PRZÓD i LEWY PRZÓD jest napisane: "Zamykać tak samo, aż zostaje 4 słupki. Przerobić każde 2 kolejne słupki z 4 ostatnich słupków razem = 2 słupki". Skoro każdy pierwszy słupek w rzędzie ma być zastąpiony 3 oczkami łańcuszka, to jak te 3 oczka łańcuszka przerobić razem z następnym słupkiem?

10.07.2023 - 21:17

DROPS Design answered:

Witaj Aniu, zamykasz w ten sposób ponad 4 ostatnimi słupkami. Patrz ZAMYKANIE OCZEK: PRZERABIAĆ 2 SŁUPKI RAZEM, wykonasz tą sekwencję 2 razy. Pozdrawiamy!

11.07.2023 - 17:31

country flag Darlene Huber wrote:

Re: Left front piece ( when garment is worn) What does this mean? Am I supposed to crochet this piece while wearing the garment?? This makes nos sense. Can you please clarify what one is to do when working this part?

21.06.2023 - 21:00

DROPS Design answered:

Hi Darlene, This means that the piece you are working is the left front piece on the finished garment. Happy knitting!

22.06.2023 - 05:36

country flag Brisli wrote:

Bonjour, Je ne comprend pas bien les diminutions en lien avec les 4 marqueurs. Où se font-elles. Est-ce qu’il y a des diminutions au milieu dos et devant? Donc, on diminuerait 4 fois? Et, rang 1: crocheter de" (-)"  , je ne comprend pas ce que cela implique comme répétition. Il n’y a pas de repère concernant le nombre de brides restantes à chaque rang. Merci!

09.08.2022 - 22:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Brisli, on diminue effectivement 4 fois car on place 4 marqueurs (2 pour le devant et 2 pour le dos, entre le milieu et chacune des pointes) cf réponse précédente - répétez de *à* jusqu'à ce qu'il reste 2 brides avant le marqueur, sautez ensuite 4 brides et répétez la séquence; autrement dit, vous allez ainsi crocheter tout le tour (1 ml, sautez 1 bride, 1 bride dans la bride suivante) en sautant 4 brides à chacun des marqueurs = vous allez diminuer un total de 16 mailles (4 mailles à chaque marqueur). Bon crochet!

10.08.2022 - 08:52

country flag Brisli wrote:

Bonjour! pouvez-vous m',expliquer où placer les marqueurs "entre chaque pointe » svp? Merci!

09.08.2022 - 20:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Brisli, vous devez placez les marqueurs entre chacune des pointes du haut du dos et du devant et le milieu du dos/le milieu du devant, autrement dit, dans le schéma, les marqueurs seront au milieu de la partie oblique. Bon crochet!

10.08.2022 - 08:46

country flag Lourdes Vena Moreno wrote:

Me gustaría que las explicaciones también fueran en español

28.05.2022 - 17:35

DROPS Design answered:

Hola Lourdes, Es un modelo de la nueva colección y ya está disponible en español.

30.05.2022 - 12:43

country flag Emilie Caluwaerts wrote:

Hoi, Ik ben een beginnende haker en ik zag de mooie patronen en garen. Maar ik zag dat er nergens bijstond voor welke moeilijkheidsgraad ( voor de beginnende haker) de patronen zijn? Ik zou heel graag vanalles bestellen, maar ik weet niet waar beginnen. Lieve groetjes Emilie

27.05.2022 - 20:51

DROPS Design answered:

Dag Emilie,

We hebben inderdaad geen moeilijkheidsgraad aangegeven, omdat het per persoon heel verschillende is en afhankelijk van welke technieken je beheerst. Bij elk patroon zijn video's toegevoegd van de gebruikte technieken. Je kunt ook de vaak gestelde vragen raadplegen en bij tips en hulp kijken voor basislessen. Je kunt ook altijd een vraag achterlaten, zodat iemand van ons kan helpen. Of bij een breiclub of verkooppunt in de buurt vragen om hulp.

28.05.2022 - 18:40

country flag Val wrote:

Nuit sous les figuiers

19.01.2022 - 15:16

country flag Carol wrote:

Stepping out

19.01.2022 - 06:10

country flag Astrid wrote:

Sommerminner

17.01.2022 - 12:42