Dominique skrifaði:
Bonsoir, Combien faut-il commander de pelotes de 25 gr pour une taille L en sachant que pour ce modèle je vais faire des côtes 1/1 sur 6 cm pour le dos et devant ainsi que les manches dans une autre laine Merci
25.08.2023 - 22:15
Hilary Knight skrifaði:
How much of the yarn do I need to purchase for a size 14 jumper
27.12.2022 - 16:12DROPS Design svaraði:
Hi Hilary, You will find a size-chart at the bottom of the pattern giving all the measurements in the different sizes. Happy festive season!
28.12.2022 - 12:00
Jane Milliken skrifaði:
Please disregard the question I just sent you. I have realized that I am no supposed to be using A.4 yet. Apologies.
07.08.2022 - 01:44
Jane Milliken skrifaði:
In the pattern diagrams, rows 11, 13, 15, 17, and 19 begin with a knit 2 together. Where does the extra stitch come from?
07.08.2022 - 01:37
Pia Kampp Sørensen skrifaði:
Jeg har ingen kommentar, for opskriften er god til mig😊
14.06.2022 - 09:41
Jenny skrifaði:
1.Bij de stekenverhouding staat niet gespecifieerd welk nr van breinaald hier gebruikt wordt. Ik veronderstel voor de tricotsteek 4,5 en voor patroon 5? 2. Bij de benodigdheden staan enkel rondbreinaalden, maar aangezien hier vanonder naar boven en elk stuk apart gebreid wordt, kan dit toch even goed met de gewone breinaalden? Rondbreinaalden zijn niet zo handig als je het niet gewoon bent.
28.04.2022 - 12:10DROPS Design svaraði:
Dag Jenny,
Voor de stekenverhouding gebruik je de dikste naald. (De dunne naald wordt alleen voor de randen gebruikt) De stekenverhouding wordt uitgedrukt in tricotsteek. Bij het breinen in patroon is hier rekening mee gehouden. Als het niet echt nodig is, kun je inderdaad de betreffende delen met rechte naalden breien in plaats van met de rondbreinaald. Houd er wel rekening mee dat je spanning /stekenverhouding verschillend kan zijn omdat je met rechte naalden misschien meer ontspannen breit. Dit zie je mogelijk in het breiwerk.
04.05.2022 - 08:53
Inge Knudsen skrifaði:
Kan jeg strikke denne model rundt i stedet for frem og tilbage?
20.04.2022 - 14:39
Malin skrifaði:
Endless Summer Nights
15.01.2022 - 11:34
Leonor skrifaði:
Roaring 20s
14.01.2022 - 19:15
Lila Mist#lilamistsweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-24 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið, framstykkið og ermar er prjónað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp. Frágangur á stykkjum er eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring á stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 87-99-99-111-123-135 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir næstu 7 lykkjur, A.2 yfir næstu 72-84-84-96-108-120 lykkjur (= 6-7-7-8-9-10 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.3 yfir næstu 6 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til fyrstu 4 umferðir í A.1 til A.3 hafa verið prjónaðar til loka á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú mynstur frá umferð með ör. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð með ör. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm (mælt frá þar sem mynstrið sveigist niður á móti – þetta á við í gegnum alla uppskriftina). Nú eru felldar af 6-6-6-6-12-12 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 75-87-87-99-99-111 lykkjur. Nú er mynstrið prjónað í mismunandi stærðum þannig – stillið af að byrjað sé í réttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið haldi áfram eins og áður: Stærð S, M, L og XL: Prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.4 yfir næstu lykkju, A.2 yfir næstu 60-72-72-84 lykkjur (= 5-6-6-7 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.5 yfir næstu 12 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 52-54-56-58 cm. Prjónið síðan frá Allar stærðir að neðan. Stærð XXL og XXXL: Prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 7 lykkjur, A.2 yfir næstu 84-96 lykkjur (= 7-8 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.3 yfir næstu 6 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 60-62 cm. Prjónið síðan frá Allar stærðir að neðan. Allar stærðir: Fellið nú af miðju 25-25-27-27-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 24-30-29-35-34-40 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm – yfir ystu lykkjur við hálsmál sem ekki ganga jafnt upp í heilli mynstureiningu af A.2 er prjónað sléttprjón eða garðaprjón eins og útskýrt er í A.2, en ekki er prjónaður uppsláttur og úrtaka. Fellið af – sjá AFFELLING. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki. Prjónið mynstur og fellið lykkjur af fyrir handveg alveg eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist ca 46-48-49-51-52-54 cm – nú eru eftir ca 8-8-9-9-10-10 cm að loka máli, setjið miðju 13 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Prjónið nú hvora öxl til loka hvora fyrir sig og mynstur er prjónað og úrtaka eins og útskýrt er að neðan - lestu því kaflann MYNSTUR og ÚRTAKA áður en þú prjónar áfram. MYNSTUR: Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður, en yfir ystu lykkjur við hálsmál sem ekki ganga jafnt upp í heilli mynstureiningu af A.2, prjónið sléttprjón eða garðaprjón eins og útskýrt er í A.2, en ekki er prjónaður uppsláttur og úrtaka. ÚRTAKA: Fellið af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3-3-4-4-5-5 sinnum = 24-30-29-35-34-40 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 53-55-57-57-59-61 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið mynstur fram og til baka þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1-2-3-3-4-5 lykkjur slétt, A.4 yfir fyrstu lykkju, A.2 yfir næstu 36 lykkjur (= 3 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.5 yfir næstu 12 lykkjur, 1-2-3-3-4-5 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til fyrstu 4 umferðir í mynsturteikningu hafa verið prjónaðar til loka á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið áfram með mynstri frá umferð með ör. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð með ör. Þegar stykkið mælist 10-10-10-8-7-4 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin á ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 4-3½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 10-11-11-13-14-15 sinnum = 73-77-79-83-87-91 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 50-48-49-47-44-41 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi – prjónamerkin merkir hvar botninn á handveg byrjar. Prjónið mynstur eins og áður þar til ermin mælist alls 53-51-52-50-51-48 cm. Fellið af – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið saum undir ermum og síðan niður yfir hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu með hringprjón 4,5 og DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið upp 68 til 80 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í kringum kant í hálsmáli. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað í hring á hringprjóna – sjá útskýringu að ofan. Fellið af – sjá AFFELLING. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lilamistsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.