Alexandra Marshall skrifaði:
I'm about to make this top in Melody and I wanted to link to the original pattern on Ravelry but you don't have it there. You have so many of your patterns in Ravelry but not this one! Anyway, temporarily I've started my project on Ravelry with the picture above and a link to this page on your website, but please add it in! It's lovely and I can't wait to knit with Melody. (I love your yarn and patterns and I'm lucky to have a yarn store nearby that sells some of your yarn.)
05.02.2023 - 20:13DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Marshall, thanks for noticing, pattern is now in Ravelry. Happy knitting!
06.02.2023 - 10:56
Mathilde skrifaði:
Hvor mye garn trenger man til ensfarget?
27.03.2022 - 13:05DROPS Design svaraði:
Hej Mathilde, du kan gøre det at du sammenligner målene med denne model Rivers Rest Sweater i Melody som er strikket i en tråd DROPS Melody, vælg garnforbruget på den størrelse som passer dig.
30.03.2022 - 14:43
Veerle Theunis skrifaði:
Springwaves
14.02.2022 - 15:09
Jan Savage skrifaði:
I love this pattern. It feels so summery and reminds me of colourful sticks of rock candy, which I think would be a good name.
04.02.2022 - 12:51
Mette skrifaði:
Cookie Carnival
19.01.2022 - 22:15
Johanna skrifaði:
SpringSymphony
18.01.2022 - 20:41
Kjersti skrifaði:
Lollipop
16.01.2022 - 12:38
Sabine skrifaði:
Sunny seaside
14.01.2022 - 22:57
Kirsty skrifaði:
Cup Cake
14.01.2022 - 15:45
Linda skrifaði:
Free as a Bird
14.01.2022 - 15:20
Pastel Spring#pastelspringsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með röndum og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-7 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Þegar stykkið hefur verið saumað saman, prjónið kant í hálsmáli í hring í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 79-85-91-97-105-117 lykkjur á hringprjón 5 með litnum natur í DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig (1. umferð = rétta): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið sléttprjón í röndum eftir mynsturteikningu A.1, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 7-7-7-7-7-9 lykkjur jafnt yfir = 72-78-84-90-98-108 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.2 á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið. Fellið af 4-6-7-8-10-13 lykkjur í byrjun á hvorri af 2 næstu umferðum = 64-66-70-74-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 22-24-24-26-28-28 lykkjur af fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 20-20-22-23-24-26 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur eins og á bakstykki og prjónið ´á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm. Setjið nú miðju 16-18-18-20-22-22 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 20-20-22-23-24-26 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 52-54-56-58-60-62 lykkjur á sokkaprjóna 5 með litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á sokkaprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum, þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.2 til loka máls. Þegar stykkið mælist 31-29-29-28-27-24 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4 cm millibili alls 4 sinnum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Þegar ermin mælist 47-45-44-44-42-40 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjóna að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 49 cm í öllum stærðum, þ.e.a.s. það er klauf 2-4-5-5-7-9 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 5 og litinn natur, byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 54 til 70 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til kanturinn í hálsmáli mælist 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pastelspringsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.