Catharina Almén skrifaði:
Hej igen, fick det rätt nu, så bortse från min kommentar. Hälsningar Catharina Almén
30.01.2023 - 14:04
Catharina Almén skrifaði:
Hej, när jag skulle göra hoptagningar för häl stämde inte stl 38-40. Efter hoppträning ska det vara 14 maskor kvar, jag får 16. Om det istället görs fösta hoppträningen vid 8 maskor från slutet blir det rätt. Nu har jag tagit upp hoptagningarna två gånger och jag får 16 maskor kvar. Jag får väl fuska i slutet och sticka de två sista maskorna i slutet på räta och aviga varvet!\r\nHälsningar \r\nCatharina Almén
30.01.2023 - 13:10
Roberta skrifaði:
Buongiorno e grazie per i filati e i modelli. Una curiosità: mi chiedo il motivo per cui dopo l\'avvio, si esegue quasi sempre un giro a diritto anche prima di iniziare un bordo a coste:\r\nGrazie per la cortese risposta.
23.09.2022 - 15:57DROPS Design svaraði:
Buonasera Roberta, serve a non stringere troppo con l'avvio. Buon lavoro!
27.09.2022 - 21:56
Léonard Michelle skrifaði:
Bonjour , seulement pour dire merci pour les explications des modèles, savoir détailler les explications pas a pas pour bien se faire comprendre ce n est pas facile, les chaussettes ! ! Oh la la merci de tout cœur
20.08.2022 - 17:05
VIVIANNE VERRY skrifaði:
SPRING TIME
17.01.2022 - 15:05
Silje skrifaði:
Flowerpower
16.01.2022 - 00:25
Folk Dancer#folkdancersocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar í sléttprjóni með röndum úr DROPS Karisma. Stærð 35 - 43.
DROPS 229-26 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um tá): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi og niður að tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 56-60-64 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum sítróna í DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4-4½-5 cm með litnum sítróna, 3 umferðir með litnum millibleikur, 3 umferðir með litnum sítróna, 3 umferðir með litnum millibleikur. Prjónið síðan stroff með litnum sítróna þar til stykkið mælist 12-14-16 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið sléttprjón með litnum sítróna þar til stykkið mælist 13-15-17 cm – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56 lykkjur. Prjónið nú hæl og fót eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 12-13-14 lykkjur með litnum sítróna og haldið eftir lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24-26-28 lykkjur á þráð (mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 24-26-28 hællykkjur á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir í litinn millibleikur og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 6-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – síðar er stykkið mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið HÆLÚRTAKA með litnum millibleikur – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku er skipt yfir í litinn natur og næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 14-14-16 hællykkjur, prjónið upp 13-13-14 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttprjón yfir 24-26-28 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 13-13-14 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hælnum = 64-66-72 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 24-26-28 lykkjur ofan á fæti. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum natur og fækkið lykkjum hvoru megin við 24-26-28 lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 10-9-10 sinnum = 44-48-52 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-19-22 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Nú eru eftir 4-5-5 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 22-24-26 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-5-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-5-6 sinnum = 8-8-8 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið að þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #folkdancersocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 229-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.