Therese skrifaði:
Fortsett fellingen på samme måte ved å strikke til det gjenstår 1 maske mindre før det tas 1 maske løs av, til det er 14-14-16 masker igjen på pinnen.Det er på hælfellingen.
18.08.2022 - 15:55DROPS Design svaraði:
Hei Therese. Fremdeles uklart på hva du mener er selve feilen på hælfellingen (og hvilken str). Har test strikket alle str. og har man 24-25-28 masker til hæl skal man ha etter å ha strikket HÆLFELLING som forklart i oppskriften ha 14-14-16 masker igjen på pinnen. Usikker på hvordan hælen strikkes, ta gjerne en titt på hjelpevideoen: Hvordan felle til hæl på en sokk (standard metode) mvh DROPS Design
22.08.2022 - 11:25
Therese skrifaði:
Eg har studere oppskriften og så merket en feil på oppskrift
16.08.2022 - 10:51DROPS Design svaraði:
Hej Therese, skriv gerne hvor og hvad i opskriften som er fejl, så skal vi se på det :)
17.08.2022 - 13:29
Cristina skrifaði:
È possibile realizzare questo modello in cotone? Grazie per la cortese attenzione
10.03.2022 - 19:42DROPS Design svaraði:
Buonasera Cristina, può utilizzare dei filati del gruppo filati B, come Muskat, Cotton Light, Belle o Cotton Merino. Buon lavoro!
10.03.2022 - 23:09
Wilma skrifaði:
Cupcake
18.01.2022 - 08:20
Kirsty skrifaði:
Strawberry Marshmallow
14.01.2022 - 15:48
Dea skrifaði:
Sporty Line
14.01.2022 - 15:06
Pink Volcano#pinkvolcanosocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar / ökklasokkar í sléttprjóni með röndum úr DROPS Karisma. Stærð 35 - 43.
DROPS 229-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA (á við um tá): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi og niður að tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 52-56-60 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum millibleikur í DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 10-10-12 umferðir stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Skiptið yfir í litinn sítróna og prjónið 3 umferðir stroff. Skiptið yfir í litinn millibleikur og prjónið 3 umferðir stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið sléttprjón með litnum millibleikur þar til stykkið mælist 6-6-7 cm – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56 lykkjur. Prjónið nú hæl og fót eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 12-13-14 lykkjur með litnum millibleikur og haldið eftir lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24-26-28 lykkjur á þráð (mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 24-26-28 hællykkjur á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir í litinn sítróna og prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 6-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – síðar er stykkið mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið HÆLÚRTAKA með litnum sítróna – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku er skipt yfir í litinn natur og næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 14-14-16 hællykkjur, prjónið upp 13-13-14 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttprjón yfir 24-26-28 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 13-13-14 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hælnum = 64-66-72 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 24-26-28 lykkjur ofan á fæti. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum natur og fækkið lykkjum hvoru megin við 24-26-28 lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 10-9-10 sinnum = 44-48-52 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-19-22 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Nú eru eftir 4-5-5 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 22-24-26 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-5-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-5-6 sinnum = 8-8-8 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið að þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pinkvolcanosocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 229-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.