Astrid skrifaði:
Sehr gute und verständliche Anleitung. Socken passt super gut. Ev. wäre es, hilfreich Angaben zum Verbrauch der div. Grössen ca. zu erhalten. Danke
19.05.2023 - 12:12
Karen skrifaði:
AT THE SAME TIME on the first round decrease 2 stitches evenly. Is this at the beginning of the round.
15.09.2022 - 16:12DROPS Design svaraði:
Dear Karen, these 2 stitches should be decreased evenly on the round - read more how to decrease evenly here. Happy knitting!
16.09.2022 - 09:59
Andrea skrifaði:
Er staan 2 fouten in het patroon: -de markeerder moet gelijk bij het begin van de hiel geplaatst worden, niet bij het begin van de minderingen voor de hiel anders wordt de sok veel te lang - bij minderen voor de teen staat bij maat 43 dat je 16 steken overhoudt maar dit zijn er maar 8: 2x 9 plus 2x 2 = 18 + 4 = 22, 30 - 22 is 8.
15.06.2022 - 12:07
Andrea skrifaði:
Op de foto lijkt de hiel gelijk na de boord te beginnen, terwijl in het patroon staat dat je nog 4 cm na de boord moet breien. Dan wordt het toch geen enkelsok? Klopt dit wel?
13.06.2022 - 14:26DROPS Design svaraði:
Dag Andrea,
Het lijkt er inderdaad op dat er een foutje in het patroon is geslopen en dat je tricotsteek tot een totale lengte van 4 cm moet breien, in plaats van vanaf de boord. Ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling om te controleren, zodat het eventueel gecorrigeerd kan worden.
16.06.2022 - 22:19
Val skrifaði:
Relax socks
19.01.2022 - 15:19
Heather L Lewis skrifaði:
Sock Positive
16.01.2022 - 04:53
Aida Carla skrifaði:
Let's go
15.01.2022 - 09:39
Senrag Crafts skrifaði:
Summer Socks
14.01.2022 - 20:22
Sunny Sneaker#sunnysneakersocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar / ökklasokkar í sléttprjóni úr DROPS Fabel. Stærð 35 - 43.
DROPS 229-21 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 16-16-18 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um tá): Byrjið 3 lykkjum á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt merkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi og niður að tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 56-60-64 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Fabel. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2-2-3 cm. Eftir stroff er prjónað sléttprjón þar til stykkið mælist 3-3-4 cm frá uppfitjunarkanti - JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir = 54-58-62 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú hæl og fót eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 13-14-15 lykkjur og haldið eftir lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 28-30-32 lykkjur á þráð (miðja ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 13-14-15 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 26-28-30 hællykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 6-6-6½ cm. Setjið 1 merki fyrir miðju í síðustu umferð – síðar er stykkið mælt frá þessu merki. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 16-16-18 hællykkjur, prjónið upp 16-16-17 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttprjón yfir 28-30-32 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 16-16-17 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hælnum = 76-78-84 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 merki hvoru megin við 28-30-32 lykkjur ofan á fæti. Prjónið sléttprjón og fækkið lykkjum í hvorir hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra merki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna merki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 12-11-12 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 cm frá merki á hæl, mælt undir fæti. Nú eru eftir 4-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 merki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði merkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6-3-2 sinnum = 12-16-16 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-8-8 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið að þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá merki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunnysneakersocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 229-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.