Guru skrifaði:
Arcoiris de primavera / Spring rainbow
14.01.2022 - 20:03
Kirsty skrifaði:
Wild Meadow
14.01.2022 - 15:43
Elisa skrifaði:
Rainbow stripes
14.01.2022 - 15:26
Linda skrifaði:
Envy me
14.01.2022 - 15:20
Laura skrifaði:
Tutti frutti
14.01.2022 - 15:09
Mónica Martins skrifaði:
Primavera
14.01.2022 - 14:17
Aleksandra skrifaði:
Candy
14.01.2022 - 13:41
Florence skrifaði:
Carnival
14.01.2022 - 10:16
Johanna skrifaði:
Rainbow Rumours
14.01.2022 - 08:50
Lena skrifaði:
Sunshine Stripes
13.01.2022 - 22:09
Candy Stripes Cardigan#candystripescardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð einföld / basic peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í röndum. Stærð XS - XXL.
DROPS 231-1 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- TVEIR ÞRÆÐIR: Þar sem stykkið er prjónað með 2 þráðum, prjónið með þráðinn bæði innan í og utan með sömu dokkunni. SLÉTTPRJÓN: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Endurtakið þessar 2 umferðir. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir litina sem prjóna á. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka, neðan frá og upp í stykkjum og saumuð saman í lokin. Öll peysan er prjónuð með 2 þráðum. BAKSTYKKI: Fitjið upp 52-56-60-66-70-78 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum með litnum natur í DROPS Brushed Alpaca Silk – sjá TVEIR ÞRÆÐIR. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir í 2 þræði með litnum gallabuxnablár. Prjónið nú rendur eftir A.1 í SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið rendur eftir A.2 í sléttprjóni. A.2 er endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist ca 49-51-53-55-57-59 cm, endið eftir heila rönd með litnum natur, prjónið 2 umferðir sléttprjón með 2 þráðum með litnum rauður. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 31-33-35-38-40-44 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum með litnum natur í DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir í 2 þræði með litnum gallabuxnablár. Prjónið nú rendur eftir A.1 í sléttprjóni. Haldið svona áfram. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið rendur eftir A.2 í sléttprjóni. A.2 er endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist ca 28-28-28-29-30-31 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið sléttar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (1 lykkja færri) og prjónið síðustu 5 lykkjur slétt. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2-2-3-3-3-3 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-5-6-6-6 sinnum = 23-25-27-29-31-35 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 49-51-53-55-57-59 cm, endið eftir heila rönd með litnum natur, prjónið með 2 þráðum með litnum rauður þannig: Prjónið 4-5-5-6-6-7 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4-4-5-5-6-7 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum og prjónið 1-2-1-2-1-1 lykkjur slétt = 20-22-24-26-28-32 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 31-33-35-38-40-44 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum með litnum natur í DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Skiptið yfir í 2 þræði með litnum gallabuxnablár. Það er prjónuð 1 umferð fleiri með litnum natur á hægra framstykki en á vinstra framstykki þar sem litaskiptin eiga að vera í hlið en ekki fyrir miðju að framan. Prjónið nú rendur eftir A.1 í sléttprjóni. Haldið svona áfram. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið rendur eftir A.2 í sléttprjóni. A.2 er endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist ca 28-28-28-29-30-31 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi lykkjuna slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lykkjunni sem lyft var yfir á hægri prjón yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri), prjónið þær lykkjur sem eftir eru slétt. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2-2-3-3-3-3 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-5-6-6-6 sinnum = 23-25-27-29-31-35 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 49-51-53-55-57-59 cm, endið eftir heila rönd með litnum natur, prjónið með 2 þráðum með litnum rauður þannig: Prjónið 4-5-5-6-6-7 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4-4-5-5-6-7 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum og prjónið 1-2-1-2-1-1 lykkjur slétt = 20-22-24-26-28-32 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. ERMI: Fitjið upp 46-48-50-54-56-58 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum með litnum natur í DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir í 2 þræði með litnum gallabuxnablár. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Prjónið nú rendur eftir A.2 í sléttprjóni. A.2 er endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist 45-44-43-41-40-38 cm, endið eftir heila rönd með litnum natur, prjónið 2 umferðir sléttprjón með 2 þráðum með litnum rauður. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma frá yst á öxl og inn að miðju, saumið með 1 þræði með litnum rauður (miðju 11-11-11-13-13-13 cm á bakstykki er hálsmál). Setjið 1 prjónamerki í framstykkin og bakstykkið 19-20-21-22-23-24 cm frá axlasaumi og niður. Saumið ermar í á milli prjónamerkja á framstykki og bakstykki – miðja á ermi á að passa við axlasauminn – saumið með 1 þræði með litnum rauður. Saumið ermasauma og hliðarsauma í eitt, með 1 þræði með litnum natur, saumið í ystu lykkjubogana. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #candystripescardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.