Maria Marcela skrifaði:
Hola, no puedo ver ni descargar los diagramas del patrón
10.02.2022 - 20:10
Karina skrifaði:
No se pueden ver los diagramas
09.02.2022 - 00:48
Sofie Deylgat skrifaði:
Primavera
01.02.2022 - 11:42
Samantha skrifaði:
Heather
17.01.2022 - 10:40
Luise skrifaði:
Dandelion
16.01.2022 - 10:57
Heather L Lewis skrifaði:
Sweet as Lace
16.01.2022 - 04:50
ByMiep skrifaði:
Lavender fields
15.01.2022 - 18:31
Annie Charland skrifaði:
Lily of the valley
15.01.2022 - 05:32
Constance Yaksic skrifaði:
Cotton candy
15.01.2022 - 00:24
Linda Andrusa skrifaði:
Whipped Cream
14.01.2022 - 14:54
Tree of Life#treeoflifesweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með gatamynstri og kúlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-3 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um ermi): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki (2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið. Lykkjurnar eru síðan prjónaðar í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í næst síðustu umferð áður en lykkjur eru settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið lykkjur af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 4, 14, 24, 33 og 42 cm M: 5, 15, 25, 35 og 44 cm L: 4, 12, 20, 28, 36 og 44 cm XL: 4, 13, 22, 30, 38 og 46 cm XXL: 4, 13, 22, 30, 38 og 46 cm XXXL: 5, 14, 23, 32, 40 og 48 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp og er saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 88-96-108-120-128-140 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 11-11-17-17-19-19 lykkjur jafnt yfir = 77-85-91-103-109-121 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið lykkjur af fyrir handvegi í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 3-3-3-5-5-7 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-0-1-2-3 sinnum og 1 lykkja 1-1-2-2-2-2 sinnum = 69-77-81-85-87-91 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-48-50-52-54 cm, fellið af miðju 25-25-27-27-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (22-26-27-29-29-31 lykkjur eftir á hvorri öxl). Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 20-24-25-27-27-29 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram fram og til baka eins og áður þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 52-56-60-64-68-76 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Fyrsta umferð er frá röngu og er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, brugðnar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Næsta umferð er frá réttu og er prjónuð þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, prjónið A.1 JAFNFRAMT er fækkað um 0-0-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir og fækkið um 8-8-7-5-8-10 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 44-48-51-57-60-66 lykkjur. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjón, 9-13-14-20-21-27 lykkjur í sléttprjóni (brugðið frá röngu), A.1, 1 lykkja slétt og endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið síðan frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, A.1, 9-13-14-20-21-27 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 3-3-3-5-5-7 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-0-1-2-3 sinnum og 1 lykkja 1-1-2-2-2-2 sinnum = 40-44-46-48-49-51 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-44-44-46-46-48 cm, prjónið yfir fyrstu 14 lykkjur frá réttu, setjið síðan þessar lykkjur á þráð fyrir hálsmáli (þ.e.a.s. 5 kantlykkjur að framan, 1 lykkja brugðið og 8 lykkjur frá A.1) = 26-30-32-34-35-37 lykkjur á öxl. Haldið nú áfram með garðaprjón, sléttprjón og A.1 yfir lykkjur sem ganga jafnt upp í mynstur. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2-2-3-3-4-4 sinnum = 20-24-25-27-27-29 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni, sléttprjóni og A.1 þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI. Fitjið upp 52-56-60-64-68-76 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Fyrsta umferð er frá röngu og er prjónuð þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Næsta umferð er frá réttu og er prjónuð þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 17-21-21-25-29-37 lykkjur og fækkið um 8-8-7-5-8-10 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.1 JAFNFRAMT er fækkað um 0-0-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir, 1 lykkja brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 44-48-51-57-60-66 lykkjur. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, A.1, 9-13-14-20-21-27 lykkjur í sléttprjóni (brugðið frá röngu) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 9-13-14-20-21-27 lykkjur sléttprjón, A.1, 1 lykkja brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 3-3-3-5-5-7 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-0-1-2-3 sinnum og 1 lykkja 1-1-2-2-2-2 sinnum = 40-44-46-48-49-51 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-44-44-46-46-48 cm, prjónið næstu umferð frá réttu eins og áður þar til 14 lykkjur eru eftir, setjið síðustu 14 lykkjurnar á þráð fyrir hálsmáli = 26-30-32-34-35-37 lykkjur á öxl. Haldið nú áfram með garðaprjón, sléttprjón og A.1 yfir lykkjur sem ganga jafnt upp í mynstur. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2-2-3-3-4-4 sinnum = 20-24-25-27-27-29 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni, sléttprjóni og A.1 þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 50-54-54-58-62-62 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 8-10-8-10-10-8 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-52-54 lykkjur. Þegar ermin mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 6-5-4½-4-3-2½ cm millibili alls 6-7-8-8-9-11 sinnum = 54-58-62-64-70-74 lykkjur. Þegar ermin mælist 46-46-45-43-43-41 cm, fellið af lykkjur fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum, 1 lykkju 2 sinnum, síðan eru felldar af 2 lykkjur þar til stykkið mælist 51 cm, fellið síðan af 3 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í og saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið tölur í vinstri kant að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp kant í kringum hálsmál frá réttu á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund þannig: Setjið 14 lykkjur af þræði frá hægra framstykki á hringprjón og prjónið þær slétt, prjónið upp ca 56 til 76 lykkjur innan við 1 kantlykkju að lykkjum á þræði á vinstra framstykki og setjið þessar 14 lykkjur af þræði á hringprjón og prjónið þær slétt = ca 84 til 104 lykkjur. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #treeoflifesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.