GESQUIN skrifaði:
Bonjour. Pourriez vous me dire combien de pelotes faut il pour ce modèle car je crois que cela n'est pas indiqué ; ni le poids sur les pelotes. Pour une taille L. Merci
22.08.2026 - 18:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gesquin, vous trouverez la quantité requise pour chaque taille sous l'onglet "Explications" en haut de page, autrement dit, en taille L, il vous faudra 150 g DROPS Kid-Silk/25 g la pelote soit 6 pelotes DROPS Kid-Silk. Bon tricot!
24.08.2026 - 08:24
AREVALO skrifaði:
Je ne comprends pas la finition du col . pouvez vous m'apporter plus de details svp ? merci
22.07.2026 - 10:26DROPS Design svaraði:
Cf. réponse ci-dessous :)
04.08.2026 - 13:02
N AREVALO JIMENO skrifaði:
Comment se termine le col.on ne trouve pas de tuto sur ce modèle
16.07.2026 - 16:23DROPS Design svaraði:
Bonjour, il n'y a rien de particulier à faire: les derniers rangs de l'encolure dos se tricotent au point mousse (avant de rabattre les 21 à 29 m centrales), et vous tricotez 5 m point mousse côté encolure pour chaque épaule du dos. Pour les devants, vous tricotez avec 5 m point mousse (la bordure devant) - qui seront ensuite assemblées aux 5 m point mousse des épaules du dos. Bon tricot!
03.08.2026 - 16:41
Emmy skrifaði:
Hola habría alguna imagen de como queda el cuello y los hombros ya puestos?
05.07.2026 - 17:15
Ingrid skrifaði:
Hallo, ab welcher Stelle werden die 22 cm Armlochabnahme gemessen. Es kann doch nicht sein, dass dies vom Anschlage gemessen wird, denn am Schluß heißt es der Ärmel hat eine Länge von 23 cm. Ich bitte um schnelle Antwort da ich das Teil fertig stricken möchte.
06.01.2026 - 16:22DROPS Design svaraði:
Liebe Ingrid, die Maschen für die Armlöcher wird man nach 31-32-33-34-35-36 cm ab Anschlagskante gemessen, dann werden alle Maschen nach insgesamt 50-52-54-56-58-60 cm abgekettet so sind die Armlöcher 19-20-21-22-23-24 cm (wie bei der Skizze). Viel Spaß beim Stricken!
07.01.2026 - 07:46
Lone Clemensen skrifaði:
Hvis jeg kun har 17 masker tilbage når jeg har lukket af til ærmet, hvordan kan det så være stort nok til ærmegab? Det virker meget småt
17.11.2024 - 21:09DROPS Design svaraði:
Hej Lone, jo men de første masker og dem du lukkede af til ærmekuppel i hver side, hører også med til ærmet :)
22.11.2024 - 15:06
Kirsten De Krak skrifaði:
Hvis man vælger en str xxl er jeg i tvivl om målet omkring busten - mål på alle str for den sags skyld - det fremgår ikke i opskriften eller er der noget jeg har overset. På forhånd tak Mvh Kirsten de Krak
04.11.2024 - 16:35DROPS Design svaraði:
Hej Kirsten, jo du finder målene i måleskitsen nederst i opskriften. Hvis du strikker XXL så får du 63x2=126 cm i brystvidde :)
05.11.2024 - 08:21
Cindy Braeckman skrifaði:
Als de mouw 9cm meet wordt er afgekant voor de mouwkop. En als het werk 21cm meet wordt alles afgekant. Met andere woorden, de mouwkop heeft een hoogte van 12cm? Hoe moet ik die dan passen in de mouwopening van 20cm?
04.06.2024 - 18:55DROPS Design svaraði:
Dag Cindy,
De hoogte van de mouwkop is 12 cm, maar als je langs de rand van de mouwkop meet (dus over de breedte, dan heeft deze een heel andere maat.
12.06.2024 - 17:20
Camo Krage skrifaði:
Er der ikke fejl i mønsterforklaringen- der er to tegn for slå om for ekstra maske men ikke forklaring af indtag. Mangler beskrivelsen af halskanten ikke også? Hvor mange masker skal tages op for half kant? På forhånd tak.
15.01.2024 - 09:35DROPS Design svaraði:
Hej Camo, så er diagramteksten rettet - tak for info :)
16.01.2024 - 14:23
Daphne skrifaði:
I would like to see a picture of the back. I don't understand what it's supposed to look like at the neck.
16.09.2023 - 23:11DROPS Design svaraði:
Dear Daphne, we don't have any pictures of the back; all of the available photos have been posted online. The neck edge on the back is the last section of the back: an edge worked in garter stitch and it should have a round shape and go right around the neck at the back. Happy knitting!
17.09.2023 - 23:29
Violet Meadow Cardigan#violetmeadowcardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni, með v-hálsmáli og stuttum puffermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-56 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 6, 17 og 28 cm M: 6, 17 og 29 cm L: 6, 18 og 30 cm XL: 6, 14, 22 og 31 cm XXL: 6, 14, 23 og 32 cm XXXL: 6, 8, 24 og 33 cm ÚRTAKA (á við um v-hálsmálI) Öll úrtaka er gerð frá réttu: VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka, á hringprjóna í stykkjum. Ermar eru prjónaðar fram og til baka. Stykkið er prjónað neðan frá og upp. BAKSTYKKI: Fitjið upp 93-103-113-125-135-149 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-20-22-26-26-30 lykkjur jafnt yfir = 77-83-91-99-109-119 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hvorri hlið þannig: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-3-4-5-7-9 sinnum og 1 lykkja 2-2-3-4-4-4 sinnum = 59-61-63-65-67-69 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 33-35-37-37-39-41 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 21-23-25-25-27-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 18-18-18-19-19-19 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með 5 lykkjur garðaprjón við háls, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 52-56-62-68-72-80 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu og frá hlið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-10-12-14-13-16 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 43-46-50-54-59-64 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Nú er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli og handveg, þetta er gert á sama tíma, lestu því allan næsta kafla áður en þú prjónar: V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fækkið um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli innan við 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 1 cm millibili alls 16-17-18-18-19-20 sinnum. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handvegi í hlið eins og á bakstykki. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 18-18-18-19-19-19 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 52-56-62-68-72-80 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu og frá miðju að framan þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-10-12-14-13-16 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 43-46-50-54-59-64 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram, þegar stykkið mælist 6 cm, byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Nú er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli og handvegi, þetta er gert á sama tíma, lestu því allan næsta kafla áður en þú prjónar: V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fækkið um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli innan við 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 1 cm millibili alls 16-17-18-18-19-20 sinnum. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handvegi í hlið eins og á bakstykki. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 18-18-18-19-19-19 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. STUTTAR PUFFERMAR: Fitjið upp 48-50-52-54-56-58 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 13 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 61-63-65-67-69-71 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: 12-13-11-12-10-11 lykkjur slétt, aukið síðan út um 12-12-14-14-16-16 lykkjur yfir næstu 36-36-42-42-48-48 lykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju, endið með 13-14-12-13-11-12 lykkjur slétt = 73-75-79-81-85-87 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið. Prjónið síðan mynstur í næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-0-2-3-5-2 lykkjur sléttprjón, A.1 alls 8-9-9-9-9-10 sinnum, endið með 4-1-3-4-6-3 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með A.1 á hæðina. Þegar stykkið mælist 9 cm eru fellda af 4 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum. Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið með því að prjóna 3 fyrstu og 3 síðustu lykkjur í umferð saman (þær lykkjur sem ekki passa inn í mynstur eru prjónaðar í sléttprjóni). Endurtakið úrtöku í 8-.8.-6.-6.-6.-6. hverri umferð alls 3-3-4-4-4-4 sinnum = 53-55-55-57-61-63 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-20-21-22-24-25 cm prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 2-4-1-3-1-3 lykkjur jafnt yfir í umferð = 51-51-54-54-60-60 lykkjur. Í næst umferð eru allar lykkjur prjónaðar 3 og 3 brugðið saman = 17-17-18-18-20-20 lykkjur. Fellið af. Stykkið mælist ca 21-21-22-23-25-26 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #violetmeadowcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-56
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.