Asbjørg Vestli skrifaði:
For meg ser det ut som det starter med 7 staver i ringen av luftmasker, men ingen luftmaske imellom. Stemmer det? Jeg får da ikke fordelt stavene rundt hele ringen.
11.11.2023 - 10:42DROPS Design svaraði:
Hei Asbjørg. Du har en luftmaskering på 4 luftmasker og det skal gå å hekle 7 staver i ringen. Om du ikke får det til, kan du prøve en Magisk cirkel istedenfor luftmaskeringen, se videoen: Hvordan hekle magisk cirkel. Evnt kan du hekle 4 luftmasker og hekle 6 staver i den 1. luftmaske og deretter stramme med endetråden. mvh DROPS Design
13.11.2023 - 13:59
Agnetha skrifaði:
Väldigt krångliga beskrivningar där man får fara upp och ner för att förstå. Synd för det är väldigt fina mönster. Ser många som skriver att de vill ha en beskrivning och inte mönster. Får försöka hitta nåt annat eller hitta på själv. Tycker om er amönsnter men många är väldigt omständliga
06.11.2023 - 11:23
Kat Dyess skrifaði:
The images for the charts have broken links and I am unable to even begin the project. Could I please have some help with this please? I am very excited to get started.
08.04.2023 - 13:19DROPS Design svaraði:
Dear Kat, the chart seems fine on our end. Sometimes they may appear as broken links beacuse they take too long to load. In those cases, we recommend trying again at another time. Happy crochetting!
08.04.2023 - 20:18
Jacqu skrifaði:
Is there a written pattern for these Christmas baubles? I’m only able to find the chart.
22.11.2022 - 11:00DROPS Design svaraði:
Dear Jacqu, there is only diagram to this pattern - but this lesson might help you understanding how to read diagram. Happy crocheting!
22.11.2022 - 15:49
Sharon skrifaði:
These are really nice . I used dark red for all the flower shapes with, mustard, apple and cream for the other rows . I used Paris and drops metallic thread together. On 3.75 hook. I found single crochet better for the last row otherwise the centre band was too wide. I slipstitched them together , filled with white batting and wool scraps in the middle.
05.11.2022 - 14:52
Susan Metzger skrifaði:
I don’t understand chart. Are there 6 or 7 rows? Do u have this written out
12.12.2021 - 21:55DROPS Design svaraði:
Dear Susan, there are no written out instruction. If you count the starting chainstitch round there are 7 rounds Happy Stitching!
13.12.2021 - 04:00
Ariane De Koning skrifaði:
Can I find the patron in the Dutch ?
04.12.2021 - 11:48DROPS Design svaraði:
Dear Ariane, you can choose the language below the photo of the pattern; the Dutch version is called Nederlands. You can also find it in the following link:https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=10633&cid=7 Happy crochetting!
05.12.2021 - 16:08
Christmas Flowers#christmasflowersbaubles |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaðar jólakúlur úr DROPS Muskat. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1546 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LITUR-1: UPPFITUN og UMFERÐ 1: Leir UMFERÐ 2: Ljós moldvarpa UMFERÐ 3 og 4: Salvíugrænn UMFERÐ 5: Ljós moldvarpa UMFERÐ 6: Leir LITUR-2: UPPFITJUN og UMFERÐ 1: Ljós moldvarpa UMFERÐ 2: Salvíugrænn UMFERÐ 3 og 4: Vínrauður UMFERÐ 5: Salvíugrænn UMFERÐ 6: Ljós moldvarpa LITUR-3: UPPFITJUN og UMFERÐ 1: Salvíugrænn UMFERÐ 2: Vínrauður UMFERÐ 3 og 4: Ljós moldvarpa UMFERÐ 5: Vínrauður UMFERÐ 6: Salvíugrænn LITUR-4: UPPFITJUN og UMFERÐ 1: Vínrauður UMFERÐ 2: Ljós moldvarpa UMFERÐ 3 og 4: Muskat UMFERÐ 5: Vínrauður UMFERÐ 6: Ljós moldvarpa LITUR-5: UPPFITJUN og UMFERÐ 1: Natur UMFERÐ 2: Leir UMFERÐ 3 og 4: Ljós moldvarpa UMFERÐ 5: Leir UMFERÐ 6: Natur LITUR-6: UPPFITJUN og UMFERÐ 1: Salvíugrænn UMFERÐ 2: Vínrauður UMFERÐ 3 og 4: Leir UMFERÐ 5: Vínrauður UMFERÐ 6: Salvíugrænn LITASKIPTI: Til að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit er síðasta keðjulykkjan í umferð hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni inn í fyrstu lykkju í byrjun á umferð, bregðið þræðinum einu sinni um heklunálina með nýja litnum og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- JÓLAKÚLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Jólakúlurnar eru heklaðar í mismunandi litasamsetningum. Hver jólakúla er hekluð í hring frá miðju og út í 2 alveg eins hálfar kúlur. Hálfu kúlurnar eru saumaðar saman eins og útskýrt er í uppskrift og síðan fylltar með vatti. Að lokum er hekluð lykkja. HÁLF KÚLA: Sjá LITUR-1 til LITUR-6 í útskýringu að ofan. Byrjið með heklunál 3,5 og uppfitjunar lit í DROPS Muskat. Heklið 4 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA og tengið saman í hring með 1 keðjulykkkju í fyrstu loftlykkju. Haldið áfram í óskaðri litasamsetningu, sjá LITASKIPTI og heklið mynsturteikningu A.1 hringinn. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka, klippið þræðin og festið. Heklið hálfa kúlu alveg eins, en þegar A.1 hefur verið heklað til loka eru þræðirnir klipptir frá – ATH: Þráðurinn frá síðustu umferð er klipptur ca 40 cm frá stykki, þannig að endinn sé nægilega langur til að sauma saman bæði stykkin. FRÁGANGUR: Leggið báðar hálfu kúlurnar saman – passið uppá að byrjun umferðar mætist á báðum hálfu kúlunum. Byrjið sauminn við byrjun á umferð og saumið saman bæði stykkin með spori í aftari lykkjubogann í hverja lykkju umferðina hringinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Skiljið eftir smá op í lok umferðar. Fyllið jólakúluna með vatti og saumið síðan aftur síðasta opið. Byrjun á umferð er nú mitt undir jólakúlu. LYKKJA: Haldið kúlunni þannig að byrjun á umferð verði mitt undir jólakúlu. Heklið 1 keðjulykkju mitt á jólakúluna með sama lit og síðasta umferð á jólakúlu, heklið 20 loftlykkjur og festið loftlykkjuröð með 1 keðjulykkju mitt á jólakúlu. Klippið þráðinn frá og festið. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #christmasflowersbaubles eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1546
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.