DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1788.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Christmas Mice

Prjónaðar mýs / jólaskraut með norrænu mynstri og röndum úr DROPS Fabel. Þema: Jól.

DROPS Extra 0-1548
DROPS Design: Mynstur fa-485
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Stykkið mælist ca: Ummál = 17 cm. Lengd = 13 cm án skotts.

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 g litur 115, ljós grár
50 g litur 114, ljós perlugrár
50 g litur 106, rauður
50 g litur 400 svartur

1 mús er ca 14 g án fyllingar

FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1788.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

EYRA:
* 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* í sömu lykkju þar til alls 13 lykkjur eru fyrir eyra. Nú eru prjónaðar stuttar umferðir fram og til baka yfir eyrnalykkjurnar þannig: snúið stykkinu, prjónið brugðnar lykkjur frá röngu þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið, herðið á þræði, prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið, herðið á þræði, prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið, herðið á þræði, prjónið brugðnar lykkjur frá röngu þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið, herðið á þræði, prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina, snúið stykkinu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn dragist saman þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir aðra hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) = 1 lykkja eftir. Prjónið síðan eins og útskýrt er í uppskrift.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 11.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 11. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

MÚS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Allt stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá nefi að miðju á baki. Músin er fyllt með vatti. Síðan er skottið prjónað eins og hringlaga snúra.

HÖFUÐ:
Fitjið upp 4 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum svartur í DROPS Fabel. Skiptið 4 lykkjunum niður með 1 lykkju á hverjum prjóni (prjónið með 5. prjóninum).
Prjónið í hring eins og útskýrt er að neðan.
UMFERÐ 1. * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 8 lykkjur (2 lykkjur á hverjum prjóni).
UMFERÐ 2: Prjónið slétt (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat). Skiptið yfir í litinn ljós grár.
UMFERÐ 3: Prjónið slétt.
UMFERÐ 4: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 12 lykkjur (3 lykkjur á hverjum prjóni).
UMFERÐ 5: Prjónið slétt.
UMFERÐ 6: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 20 lykkjur (5 lykkjur á hverjum prjóni).
UMFERÐ 7: Prjónið slétt.
UMFERÐ 8: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 28 lykkjur (7 lykkjur á hverjum prjóni).
UMFERÐ 9: Prjónið slétt.
UMFERÐ 10: Í þessari umferð eru augun prjónuð, þ.e.a.s. umferðin er prjónuð þannig: Prjónið 8 lykkjur með litnum ljós grár, 1 lykkja með litnum svartur, 3 lykkjur með litnum ljós grár, 1 lykkja með litnum svartur, 15 lykkjur með litnum ljós grár. Síðan er prjónað með litnum ljós grár.
UMFERÐ 11: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 36 lykkjur (9 lykkjur á hverjum prjóni).
UMFERÐ 12: Prjónið slétt.
UMFERÐ 13: Prjónið slétt.
UMFERÐ 14: Í þessari umferð eru eyrun prjónuð, þ.e.a.s. umferðin er prjónuð þannig: Prjónið 9 lykkjur slétt í næstu lykkju (þ.e.a.s. fyrsta lykkjan í 2. umferð), prjónið EYRA – sjá útskýringu að ofan, prjónið 7 lykkjur slétt, í næstu umferð (þ.e.a.s. lykkja í 2. umferð) prjónið EYRA, prjónið sléttar lykkjur út umferðina.
UMFERÐ 15 * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 44 lykkjur (11 lykkjur á hverjum prjóni).
UMFERÐ 16: Prjónið slétt.
Prjónið síðan peysu með röndum eða peysu með norrænu mynstri eins og útskýrt er að neðan.

PEYSA MEÐ NORRÆNU MYNSTRI-1 (grunnlitur í litnum ljós perlugrár, «doppur» í litnum rauður):
Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið 4 umferðir í stroffprjóni.
Prjónið 1 umferð slétt með litinn ljós perlugrár þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 48 lykkjur. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með litnum rauður. Prjónið síðan bakhlið á músinni eins og útskýrt er að neðan.

PEYSA MEÐ NORRÆNU MYNSTRI-2 (grunnlitur í litnum rauður, «doppur» í litnum ljós perlugrár):
Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið 4 umferðir í stroffprjóni.
Prjónið 1 umferð slétt með litinn rauður þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 48 lykkjur. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með litnum ljós perlugrár. Prjónið síðan bakhlið á músinni eins og útskýrt er að neðan.

PEYSA MEÐ NORRÆNU MYNSTRI-3 (grunnlitur í litnum rauður, mynstur í litnum ljós perlugrár):
Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 5 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið 4 umferðir í stroffprjóni.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 48 lykkjur. Prjónið síðan A.3 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með litnum rauður. Prjónið síðan bakhlið á músinni eins og útskýrt er að neðan.

PEYSA MEÐ RÖNDUM-1 (stroffkantur í litnum ljós perlugrár):
Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 5 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 48 lykkjur. Prjónið síðan A.4 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með litnum ljós perlugrár. Prjónið síðan bakhlið á músinni eins og útskýrt er að neðan.

PEYSA MEÐ RÖNDUM-2 (stroffkantur í litnum rauður):
Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 5 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 48 lykkjur. Prjónið síðan A.5 hringinn (= 12 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með litnum rauður. Prjónið síðan bakhlið á músinni eins og útskýrt er að neðan.

BAKHLIÐ Á MÚS:
= 48 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt með litnum ljós grár. Snúið stykkinu og festið alla þræði.
Snúið stykkinu til baka að réttu og fækkið lykkjum þannig:
UMFERÐ 1: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 12 sinnum = 36 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 12 sinnum = 24 lykkjur.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt.
UMFERÐ 5: Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 12 lykkjur eftir.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt.

Fyllið músina með vatti.

UMFERÐ 7: Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 6 lykkjur eftir.
UMFERÐ 8: Prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 3 lykkjur eftir.
Prjónið síðan skottið eins og útskýrt er að neðan.

SKOTT:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir 3 lykkjur með litnum ljós grár. * Færið lykkjurnar til baka að byrjun á prjóni, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá réttu yfir 3 lykkjur *, prjónið frá *-* þar til skottið mælist ca 10 cm. Klippið þráðinn og þræðið í gegnum lykkjurnar. Festið þráðinn vel og herðið aðeins að áður en hann er festur þannig að skottið beygist aðeins út.

STREKKING:
Til að eyrun standi fallega upprétt og verði stíf, er hægt að dýfa þeim í sykurvatn eða litlausan gosdrykk og látin þorna í réttu formi.

Mynstur

symbols = rauður
symbols = ljós perlugrár
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Christmas Mice

Jane, New Zealand

Christmas Mice

Hanna-Kaisa, Finland

Christmas Mice

Amy, United States

Christmas Mice

Emma, Finland

Christmas Mice

Katrin Bauer, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1548

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Alysa wrote:

Gama Казино: Шанс на Уникальные Выигрыши казино гама

22.01.2024 - 17:10

country flag Wanda wrote:

If the pattern available in English

01.12.2023 - 03:22

country flag Kate Painter wrote:

I do not understand how to create the ears using a repetition of K1 Y over until you have 13 stitches. Do you turn the work and purl and work up to 13 stitches? It doesn’t look like that’s what you do in the photo of the finished item. Thanks so much! I’m stuck!

04.12.2022 - 06:23

DROPS Design answered:

Dear Mrs Painter, when you have the 13 sts for the ear on the right needle, turn and purl 11 sts, turn, knit 9 sts, turn, purl 7 sts, turn, knit 5 sts, turn and purl 9, turn and cast off the 13 sts making 1 yarn over after every 2nd stitch (1 st left). Happy knitting!

06.12.2022 - 09:24

country flag Kathy Bone wrote:

I do not understand how to make the ears. Is there a video tutorial explaining it better? Thank you.

11.11.2022 - 22:18

DROPS Design answered:

Dear Kathy, all relevant available videos are under the pattern; there is no specific video for the ears. The technique used is the short rows technique, which you can find a video for here: https://www.garnstudio.com/video.php?id=66&lang=en. Happy knitting!

14.11.2022 - 00:02

country flag Abbie D wrote:

Is there a way to make this pattern larger? I wanting to have the circumference to be 12in or bigger when finished. My grandmother made a mouse like this (but bigger) for me when I was a child, and I would love to remake it.

14.03.2022 - 18:59

DROPS Design answered:

Dear Annie D, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, but you can play with the tension and number of strands worked, for example try a swatch with 2, 3 or 4 strands, tension will be different and make the mouses larger/bigger. Your DROPS store can for sure also assist you (even per mail or telephone) if you need more help . Happy knitting!

15.03.2022 - 09:49

country flag Petra wrote:

Hallo, leider komme ich mit dem Ohr nicht klar. Wie genau strickt man das? Bei mir gibt das ein riesen Loch.

20.01.2022 - 08:44

DROPS Design answered:

Liebe Petra, ja ein Loch will unten an dem Ohr entstehen, aber bei der nächsten Runde, können Sie die Maschen extra enger stricken, oder am Ende dieses Loch zusammennähen. Viel Spaß beim stricken!

20.01.2022 - 09:38

country flag Carmen-Gabriela wrote:

Oh ja, Danke! Der Hund ist hübsch. Nun habe ich eine Raupe bei Spielsachen (anhand ihres bebilderten Vorschlages beim Hund) entdeckt; diese ist auch süß als langes Zugluft-Tier. Prima!:)

23.12.2021 - 18:52

country flag Carmen-Gabriela wrote:

Wie süüüß:)! Ich könnte mir diese Mäuse in größer und länger gut als Zugluft-Mäuse vor die Tür vorstellen. Ich habe neulich einen liegenden Zugluft-Wichtel (= Zwerg) fertig zum Kauf gesehen, aber für 50,-- €!! Haben Sie Zugluft-Dackel, - Mäuse, -Zwerge oder ähnliches? - Sonst setze ich einer Schlummerrolle Ohren auf.

21.12.2021 - 18:31

DROPS Design answered:

Liebe Carmen-Gabriela, vielleicht kann Ihnen dieses Modell inspirieren? Hier finden Sie alles mit "Santa", einschl. Puppen; und hier finden Sie unsere Mäuse. Hoffentlich kann das Ihnen inspirieren! Viel Spaß beim stricken!

22.12.2021 - 07:01

country flag Deleuze Françoise wrote:

Merci pour ce cadeau. Mes chats vont adorer ces souris en habits de fête. Mouche, Crevette et Louloutte.

07.12.2021 - 11:29

country flag Heidemarie Küspert wrote:

Hallo, die Weihnachtsmäuse sind sehr schön, leider fehlt aber das Diagramm. Es geht ja auch ohne zum Stricken, dann einfach in Streifen.

06.12.2021 - 08:45