Kathryn skrifaði:
What does it mean to “knit all stitches together 2 and 2”, I’m struggling to find an answer online.
06.12.2024 - 18:23DROPS Design svaraði:
Dear Kathryn, it means that you knit 2 together over all of the stitches. So you decrease 1 stitch for every 2 stitches. For example if you had 12 stitches you knit 2 together 6 times on the round. Since you decrease 1 stitch for every 2 stitches you should have 6 stitches left after this. Happy knitting!
08.12.2024 - 13:15
Rebecca Luciette Sekse Lindskog skrifaði:
Etter vrangborden skal det strikkes vrangbord på de to første pinnene og glattstrikk på de to siste pinnene. Kan jeg få noe forklaring på når jeg prøver å strikke dette på glattstrikk, så blir det «vrangt» på fremsiden? Den forrige sokken måtte jeg strikke på vrangen helt til slutten, utrolig tungvint og tidskrevende!
24.04.2023 - 18:49DROPS Design svaraði:
Hej Rebecca, du fortsætter bare vrangborden ovenpå foden og de øvrige masker strikkes i glatstrik :)
25.04.2023 - 14:31
Rebecca Thorén skrifaði:
Hej! I storlek 41/43 måste varvet förskjutas 1 maska framåt så att varvet börjar mellan 2 rätmaskor - för att mönstret ska stämma uppepå? Jag förstår inte varför. Det blir ju en vridning i mönstret då, om man börjar \\\"ny\\\" resår mitt mellan två rm. Nu har jag stickat den delen några varv och enda resultatet är ju resår på ovansidan, slätstickning på undersidan, och resåren är förskjuten ett steg åt vänster. Varför?
23.03.2022 - 20:44
Deni skrifaði:
I'm knitting size 38 and came to working the toe.Can you explain where should I put markers-insert 1 marker on each side with 26 stitches both on top of and underneath the foot?
14.11.2021 - 15:14DROPS Design svaraði:
Dear Deni, you have just decreased for the top of the foot, so you have inserted stitch markers to mark the sides of the sock and should still be in the work. Now you need to check that after the decreases, there are 26 stitches between the stitch markers, both in the top of the foot and underneath the foot. Happy knitting!
14.11.2021 - 18:28
Shadow Spin#shadowspinsocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar fyrir herra úr DROPS Fabel. Stærð 38 - 46.
DROPS 224-29 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. SOKKUR: Fitjið upp 75-80-85 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með 1 þræði DROPS Fabel. Prjónið 1 umferð slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 6 cm. Fækkið nú um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu = 60-64-68 lykkjur. Haldið áfram með stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið þar til stykkið mælist 18-19-20 cm. Héðan er nú prjónað stroffprjón að framan og sléttprjón aftan á sokknum, en til að mynstrið komi til með að passa ofan á fæti á umferðin að byrja með 2-1-2 lykkjur slétt (í stærð 41/43 verður umferðin að færast til um 1 lykkju fram þannig að umferðin byrjar á milli 2 lykkja slétt). Prjónið stroff eins og áður yfir fyrstu 30-32-34 lykkjurnar, prjónið sléttprjón og fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir þær 30-32-34 lykkjur sem eftir eru = 54-58-62 lykkjur. Prjónið stroffprjón og sléttprjón svona þar til stykkið mælist 20-21-22 cm. Prjónið eins og áður yfir fyrstu 30-32-34 lykkjur og setjið þær síðan á þráð (= mitt ofan á fæti), nú eru 24-26-28 lykkjur eftir á prjóni fyrir hæl. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjurnar í 6-7-7 cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – héðan er nú stykkið mælt frá. Fækkið nú lykkjum fyrir hæl – sjá HÆLÚRTAKA! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 13-14-16 lykkjur hvoru megin við hæl og 30-32-34 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn (þessar lykkjur eru prjónaðar í stroffprjóni eins og áður) = 70-74-82 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 30-32-34 lykkjur ofan á fæti. Prjónið síðan lykkjur ofan á fæti í stroffprjóni og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjurnar á undan 30-32-34 lykkjum ofan á fæti snúnar slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjurnar á eftir 30-32-34 lykkjum ofan á fæti slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 9-9-11 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 20-22-24 cm mælt frá prjónamerki á hæl, nú eru eftir ca 4-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd fyrir tá. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið nú allar lykkjur í sléttprjóni JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 2 lykkjur snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6-3-2 sinnum = 12-16-16 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Klippið þráðinn og þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist 24-27-30 cm frá prjónamerki á hæl. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #shadowspinsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.