Paula skrifaði:
Buongiorno, non riesco a capire quando lavorare il grigio perla e quando il grigio scuro. la spiegazione mi è un pochettino confusa. le sarei grata, se mi potesse spiegare quando cambiare colore. grazie mille
18.01.2024 - 16:25
Tessie Catsambas skrifaði:
Can we make this pattern with a tighter rib at the bottom that does not flare out like that? Or is there a reason why this pattern may not work with a tighter rib? If I wanted to make a tighter rib, by how many (if any) stitches should I reduce stitches where now 15 are prescribed?
04.01.2022 - 17:02DROPS Design svaraði:
Dear Tessi, the piece was ibntentionally made with a looser ribbing, as not to pull it in, because that shape suite the current fashion trends better. Furthermore, please understand that we cannot modify out patterns to each induvidual request. Having said that, if you really want to do a thighter rib, you might try to use smaller needles, or look for the stitches decreases after the ribbing and start with the stitchnumber that does not include these stitches. Happy Knitting!
05.01.2022 - 02:14
Isabelle skrifaði:
C'est à dire sans le point fantaisie mais en jersey tout simple
12.12.2021 - 16:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Isabelle, si vous souhaitez un modèle jersey, consultez ces modèles pour en trouver un qui sera à votre goût et à tricoter en jersey, ce sera bien plus simple si vous débutez de bien suivre un modèle prévu pour du jersey. Bon tricot!
13.12.2021 - 09:56
Isabelle skrifaði:
Bonjour je soushaite realiser ce pull mais je suis debutante , est ce que je peux le faire tout uni sans changer le nombre de mailles ? Merci pour votre aide
12.12.2021 - 15:59DROPS Design svaraði:
Bonjour Isabelle, si vous souhaitez le tricoter en uni, suivez bien les indications pour la taille choisie en augmentant/diminuant comme indiqué, en tricotant au point mousse, en suivant les diagrammes - pensez à bien réaliser votre échantillon pour vérifier vos mesures et pour que les dimensions finales soient justes. Cf FAQ. Bon tricot!
13.12.2021 - 09:54
Francine skrifaði:
Bonjour, est-ce que je pourrais tricoter le bas du chandail en rond ?Est-ce que j’éliminerais le A-1? Merci
24.10.2021 - 22:05DROPS Design svaraði:
Bonjour Francine, probablement, vous devrez juste adapter le point mousse en rond (alternez 1 tour endroit, 1 tour envers) et le point fantaisie. Bon tricot!
03.11.2021 - 07:20
Cambridge Connection#cambridgeconnectionvest |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað með pepitamynstri, köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-36 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 86 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 84 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 15) = 5,6. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 4. og 5. hverja lykkju og 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR: Þegar lykkjum er fækkað fyrir handveg og hálsmáli, á mynstrið að halda áfram yfir hvert annað eins og áður. Ef ysta lykkjan að hliðum eða hálsmáli er lykkja sem á að lyfta, skiptið þessari lykkju út fyrir slétta lykkju í lit sem þessi umferð er prjónuð í. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Síðan er prjónaður kantur í stroffprjóni í kringum hálsmál og handvegi. BAKSTYKKI: Fitjið upp 86-90-94-106-114-118 lykkjur á hringprjón 6 með litnum dökk grár í DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Skiptið yfir á prjón 7. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 15-15-15-19-19-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 71-75-79-87-95-99 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 1 kantlykkja), prjónið A.2 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 17-18-19-21-23-24 mynstureiningar með 4 lykkjum – fyrsta mynstureining byrjar með perlugráum bakgrunni og dökk gráum lykkjum sem er lyft), prjónið fyrstu lykkju í A.2, þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins og endið með A.1 (= 1 kantlykkja). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Lesið LEIÐBEININGAR og fellið af 3 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum í hvorri hlið og síðan 1 lykkja 6-6-6-7-7-7 sinnum í hvorri hlið = 47-51-55-55-63-67 lykkjur. Prjónið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 23-27-31-31-31-35 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 11-11-11-11-15-15 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (stykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá þar sem úrtaka fyrir handveg byrjaði). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 86-90-94-106-114-118 lykkjur á hringprjón 6 með litnum dökk grár í DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Skiptið yfir á prjón 7. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 15-15-15-19-19-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 71-75-79-87-95-99 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 1 kantlykkja), prjónið A.2 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 17-18-19-21-23-24 mynstureiningar með 4 lykkjum – fyrsta mynstureining byrjar með bakgrunni í litnum perlugrár og lykkjum í litnum dökk grár sem er lyft), prjónið fyrstu lykkju í A.2, þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins og endið með A.1 (= 1 kantlykkja). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Lesið LEIÐBEININGAR og fellið af 3 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum í hvorri hlið og síðan 1 lykkja 6-6-6-7-7-7 sinnum í hvorri hlið = 47-51-55-55-63-67 lykkjur. Prjónið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 48-50-52-52-54-56 cm, setjið miðju 13-17-17-17-17-19 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinnum, 2 lykkjur 1-1-2-2-2-2 sinnum og 1 lykkju 1-1-1-1-1-2 sinnum = 11-11-11-11-15-15 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (stykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá þar sem úrtaka fyrir handveg byrjaði). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu á annarri öxlinni og prjónið upp innan við 1 kantlykkju ca 72-84-92-96-96-104 lykkjur í kringum hálsinn (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 6 með litnum dökk grár (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið frá réttu í botni á öðrum handveginum og prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju ca 80-84-88-92-92-96 lykkjur í kringum handveg á stuttan hringprjón 6 með litnum dökk grár (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cambridgeconnectionvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.