DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5500.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

School Run

Prjónað vesti / slipover úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað með pepitamynstri, V-hálsmáli og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 228-35
DROPS Design: Mynstur x-470
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-350-400-450-450 g litur 05, dökk grár
200-200-250-250-250-300 g litur 63, perlugrár

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 7.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í prjónanúmeri 6.

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð með sléttprjóni eða 27 umferðir á hæðina með pepitamynstri = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5500.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 86 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 84 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 15) = 5,6.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 4. og 5. hverja lykkju og 5. og 6. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um V-hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 1 KANTLYKKJU:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 1 KANTLYKKJU:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-3 (á við um kant í hálsmáli):
Byrjið 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki í, lyftið 2 næstu lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Færið prjónamerkið að miðju lykkju.

LEIÐBEININGAR:
Þegar lykkjum er fækkað fyrir handveg og hálsmáli, á mynstrið að halda áfram yfir hvert annað eins og áður.
Ef ysta lykkjan að hliðum eða hálsmáli er lykkja sem á að lyfta, skiptið þessari lykkju út fyrir slétta lykkju í lit sem þessi umferð er prjónuð í.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp.
Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Síðan er prjónaður kantur í stroffprjóni í kringum hálsmál og handvegi.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 86-90-94-106-114-118 lykkjur á hringprjón 6 með litnum dökk grár í DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 5 cm.
Skiptið yfir á prjón 7. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 15-15-15-19-19-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 71-75-79-87-95-99 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 1 kantlykkja), prjónið A.2 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 17-18-19-21-23-24 mynstureiningar með 4 lykkjum – fyrsta mynstureining byrjar með perlugráum bakgrunni og dökk gráum lykkjum sem er lyft), prjónið fyrstu lykkju í A.2, þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins og endið með A.1 (= 1 kantlykkja). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Lesið LEIÐBEININGAR og fellið af 3 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum í hvorri hlið og síðan 1 lykkja 6-6-6-7-7-7 sinnum í hvorri hlið = 47-51-55-55-63-67 lykkjur. Prjónið áfram með mynstur eins og áður.
Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 15-19-23-23-23-27 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 15-15-15-15-19-19 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (stykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá þar sem úrtaka fyrir handveg byrjaði). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 86-90-94-106-114-118 lykkjur á hringprjón 6 með litnum dökk grár í DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 5 cm.
Skiptið yfir á prjón 7. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 15-15-15-19-19-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 71-75-79-87-95-99 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 1 kantlykkja), prjónið A.2 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 17-18-19-21-23-24 mynstureiningar með 4 lykkjum – fyrsta mynstureining byrjar með bakgrunni í litnum perlugrár og lykkjum í litnum dökk grár sem er lyft), prjónið fyrstu lykkju í A.2, þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins og endið með A.1 (= 1 kantlykkja). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Fellið síðan af fyrir handveg JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir V-hálsmáli. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í umferð (prjónamerkið er notað þegar lykkjur eru felldar af fyrir V-hálsmáli).
Lestu kaflann HANDVEGUR og V-HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram.

HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Munið eftir LEIÐBEININGAR og fellið af 3 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum í hvorri hlið og síðan 1 lykkja 6-6-6-7-7-7 sinnum í hvorri hlið.

V-HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af miðju lykkju með prjónamerki í frá réttu og hvort stykki er prjónað áfram fyrir sig. Setjið lykkjur í vinstri hlið (þegar flíkin er mátuð) á þráð eða hjálparprjón.

HÆGRI HLIÐ (þegar flíkin er mátuð):
Haldið áfram fram og til baka eins og áður og haldið áfram með affellingu fyrir handveg eins og útskýrt er að ofan. Að auki er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-3-4-4-4-6 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 6-7-8-8-8-8 sinnum = 15-15-15-15-19-19 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (stykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá þar sem affelling byrjaði fyrir handveg). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

VINSTRI HLIÐ (þegar flíkin er mátuð):
Setjið lykkjur af þræði eða hjálparprjóni á prjón 7. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og haldið áfram með affellingu fyrir handveg. Að auki er lykkjum fækkað fyrir V-hálsmáli við miðju að framan – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-3-4-4-4-6 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 6-7-8-8-8-8 sinnum = 15-15-15-15-19-19 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (stykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá þar sem affelling byrjaði fyrir handveg). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu á annarri öxlinni og prjónið upp innan við 1 kantlykkju ca 92-100-106-110-114-120 lykkjur í kringum hálsinn á hringprjón 6 með litnum dökk grár (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2).
Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – stillið af að það komi 1 lykkja slétt mitt að framan neðst niðri í V-hálsmáli. Prjónið stroff hringinn í 3 cm, en til að stroffið leggist fallega mitt að framan, fækkið um 2 lykkjur mitt að framan – sjá ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð þar til kanturinn mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.

KANTUR Í HANDVEGI:
Byrjið frá réttu í botni á öðrum handveginum og prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju ca 80-84-88-92-92-96 lykkjur í kringum handveg á stuttan hringprjón 6 með litnum dökk grár (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4).
Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu með litnum perlugrár
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu með litnum dökk grár
symbols = lyftið lykkjunni yfir á hægri prjón (án þess að prjóna lykkjuna) eins og prjóna eigi brugðið, passið uppá að þráðurinn liggi frá röngu á stykki (frá þér, séð frá réttu)
symbols = lyftið lykkjunni yfir á hægri prjón (án þess að prjóna lykkjuna) eins og prjóna eigi brugðið, passið uppá að þráðurinn liggi frá röngu á stykki (að þér, séð frá röngu)
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Jannie Hansen wrote:

I bagstykket (og resten af opskriften), er det nødvendigt at skifte til parpinde, eller kan man fortsætte med rundpind?? Jeg har udskiftelige rundpinde.

04.02.2023 - 10:03

DROPS Design answered:

Hei Jannie. Du kan bruke rundpinne 7 (og strikke frem og tilbake med rundpinne). mvh DROPS Design

06.02.2023 - 09:02

country flag Michèle Tremblay wrote:

Bonjour, Peut on faire ce modèle avec des broches droites car je n’aime pas les broches circulaires. Si oui est ce la même grosseur? Merci de me répondre et bravo pour votre site si simple a comprendre

05.01.2023 - 14:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tremblay et merci; vous pouvez effectivement tricoter le dos et le devant sur des aiguilles droites - on utilise ici des circulaires pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles. Seul le col V et la bordure des manches se tricote en rond, il vous faudra alors adapter ces deux bordures en conséquence. Bon tricot!

05.01.2023 - 15:21

country flag Stelly wrote:

Bonjour je suis en train de réaliser ce modèle School Run DROPS 228-35. Je ne comprends pas quoi faire des 2 mailles restantes quand on suit le motif après avoir répéter A.2 4 fois. Le diagramme ne le précise pas. Merci de votre aide

09.12.2022 - 15:11

DROPS Design answered:

Bonjour Stelly, vous devez tricoter ainsi, vu sur l'endroit: A.1 (= 1 m lis), puis répéter 17-18-19-21-23-24 fois les 4 mailles de A.2, tricotez ensuite la 1ère maille de A.2 pour que le motif soit symétrique, et terminez par A.1. Vu sur l'envers, tricotez A.2, la 1ère m de A.2 (celle de droite dans le diagramme)), puis répétez A.2 en le lisant de gauche à droite et terminez par A.1. Bon tricot!

09.12.2022 - 16:16

country flag Linda Ferré wrote:

Bonjour j adore ce modèle DROPS 228-35 je voudrais savoir on je peut acheter la laine j habite à NANTES Loire Atlantique merci d avance

15.11.2021 - 15:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ferré et merci. Nous n'avons actuellement pas de magasin à Nantes, mais vous pourrez trouver la liste de tous les revendeurs DROPS en France ici. Bon tricot!

16.11.2021 - 09:30

country flag Patricia Thibert wrote:

Un esprit couture très chic j'adore

03.08.2021 - 17:13