Chantale SEREDIAK skrifaði:
Bonjour Diagramme A3 : la torsade se fait sur combien de rgs svp
14.11.2024 - 20:30DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Serediak, la torsade de A.3 se fait sur un seul rang; vous tricotez la 1ère torsade de A.3 au 7ème rang, puis vous tricoterez les 13 rangs de la fin du diagramme et vous reprenez le diagramme au 1er rang + les 6 rangs du début avant la torsade suivante = vous aurez ainsi 19 rangs entre chaque torsade. Bon tricot!
15.11.2024 - 09:07
Suzy skrifaði:
Bonjour, puis-je tricoter le dos sans les torsades, comment faire merci
28.01.2024 - 12:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Susy, il vous faudra alors recalculer le nombre de mailles nécessaire, car il faut plus de mailles pour tricoter des torsades/le point fantaisie que pour tricoter en jersey. Bon tricot!
29.01.2024 - 12:13
Simonetta skrifaði:
Sugerencia: En cada patrón, podríais poner videos de cómo hacer , los gráficos específicos A1 - A2 - A3, Gracias!
08.01.2024 - 13:43
Achint Sandhu skrifaði:
Loved the pattern
01.01.2022 - 16:49
Patricia Thibert skrifaði:
C'est la rentrée
03.08.2021 - 17:20
December Tide Vest#decembertidevest |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk eða DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köðlum, háum kraga og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-40 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 58 lykkjur) mínus kantlykkjur (t.d. 4 lykkjur) og deilið þessum 54 lykkjum með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 2,7. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur). Ef auka á út þá er í þessu dæmi slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju og ekki er lykkjum aukið út yfir kantlykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkið er síðan saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður hár kragi í hálsmáli og kantur í kringum handveg í stroffprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 126-134-142-154-170-182 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjum er fækkað og aukið út þannig: Prjónið 58-62-66-72-80-86 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 20-20-21-23-25-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið A.1 yfir miðju 9 lykkjurnar (= 9 lykkjur fleiri), prjónið sléttprjón yfir síðustu 59-63-67-73-81-87 lykkjur og fækkið jafnframt um 21-21-22-24-26-27 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 94-102-108-116-128-138 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, 11-15-18-18-24-29 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 23-23-23-27-27-27 lykkjur), prjónið A.3 (= 18 lykkjur), prjónið A.2 (= 23-23-23-27-27-27 lykkjur), prjónið 11-15-18-18-24-29 lykkjur sléttprjón og endið með 4 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-2-3-3-4 sinnum og 1 lykkju 3-5-5-5-9-11 sinnum í hvorri hlið = 78-82-84-88-92-94 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 6-8-9-7-9-10 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ca 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 11 lykkjur mitt að aftan með því að prjóna miðju 22 lykkjur slétt saman 2 og 2 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður) = 67-71-73-77-81-83 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 25-25-27-27-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 19-21-21-23-24-25 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 1 lykkju yfir ysta kaðal við handveg = 18-20-20-22-23-24 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina alveg eins. Bakstykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Fitji upp jafn margar lykkjur og á bakstykki og prjónið alveg eins og á bakstykki þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist ca 51-53-54-56-57-59 cm. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 11 lykkjur mitt að framan með því að prjóna miðju 22 lykkjurnar slétt saman 2 og 2 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður) = 67-71-73-77-81-83 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 15-15-17-17-19-19 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 26-28-28-30-31-32 lykkjur á hvorri öxl. Prjónið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 19-21-21-23-24-25 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 1 lykkju yfir ysta kaðal að handveg = 18-20-20-22-23-24 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina alveg eins. Framstykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur – byrjið við handveg og saumið þar til eftir eru ca 15 cm neðst á fram- og bakstykki (= klauf). Saumið ermakúpuna við handveg innan við 1 kantlykkju. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handveg – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp frá réttu ca 88 til 104 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 8-8-8-10-10-10 cm, aukið allar 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið. Haldið áfram með stroff með 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið. Þegar stroffið mælist 11-11-11-13-13-13 cm, fellið af með sléttum lykjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið við botninn á handveg og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 96-100-104-108-112-116 lykkjur í kringum handveg á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #decembertidevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.