Pia skrifaði:
Guten Tag Irgendwie verstehe ich die Anleitung zum Fertigstellen am V-Ausschnitt nicht. Wenn ich die Maschenzahl durch 4+3 aufnehme geht es doch mit dem Rippenmuster nicht auf...
04.02.2025 - 17:12DROPS Design svaraði:
Liebe Pia, aber unten am V-Halsauschnitt muss die Mittelre Masche eine rechte Masche sein, und beidseitig bei der 1. Runde 2 linke Maschen und 2 re/2 li die ganze Runde, das geht nur mit einer Maschenanzahl teilbar durch 4+3. Viel Spaß beim Stricken!
05.02.2025 - 07:48
Corinne Moser skrifaði:
Bonjour, il est noté x centimètres jusqu'aux emmanchures dans le design, est-ce que les côtes sont comprises ? Merci pour votre réponse 😊
30.09.2024 - 18:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Moser, tout à fait, mesurez à partir du rang de montage, côtes comprises. Bon tricot!
01.10.2024 - 08:57
Corinne Moser skrifaði:
Bonjour, il est noté x centimètres jusqu'aux emmanchures, est-ce que les côtes sont comprises ? Merci pour votre réponse 😊
30.09.2024 - 18:21
Babé Alberti skrifaði:
Comment choisir la bonne ...taille L ou XL ? merci
08.05.2024 - 14:59DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Alberti, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma, c'est la méthode la plus simple pour trouver la taille adéquate - retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!
08.05.2024 - 15:48
Maria skrifaði:
Hi! Can you please explain more what “ Decrease like this every 2nd row 4-4-5-5-6-6 times and every 4th row 6-6-6-6-6-6 times” for the left and right shoulders of front panel? To me as a beginner, this sounds like just decrease one stitch every other row until I hit the total number of stitches for the shoulder? Thanks!
06.08.2023 - 05:49DROPS Design svaraði:
Dear Maria, you decrease 1 stitch for the neck every 2nd row (= every other row) 4-4-5-5-6-6 times (depending on your size) and then every 4th row (that is, 3 rows without decreases and 1 row with decreases or every 2nd row from the same side) 6-6-6-6-6-6 times. Now you should have the correct number of stitches for the shoulders. Happy knitting!
06.08.2023 - 22:02
Sabine skrifaði:
Hallo ! Wie groß ist denn das Model auf dem Foto und welche Größe trägt sie? das wäre toll zu wissen! Danke und lieben Gruß
05.11.2022 - 23:59DROPS Design svaraði:
Liebe Sabine, unsere Modell tragen entweder S oder M - um Ihre Größe zu finden, messen Sie am besten eine ähnliche Kleidung, die Sie haben und Ihnen gefallen - dann vergleichen Sie diese Maßen mit den in der Maßskizze - hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!
07.11.2022 - 08:57
Marion skrifaði:
Nachdem ich die Abnahme beim V-Ausschnitt für die linke Seite gemacht habe, habe ich noch 16 Maschen übrig. Es sollen noch 10 Maschen übrig sein. Was habe ich falsch gemacht. Die Anleitung sagt, daß bei der Abnahme 10 Maschen abgenommen werden. Die zweite Frage ist - Warum soll neben der Mittelmasche die nächste Masche auch still gelegt werden?
28.01.2022 - 16:57Marion svaraði:
Oh man, ich habe herausgefunden, daß ich die Maschen nach dem Bündchen nicht abgenommen habe ..... sorry
28.01.2022 - 17:15
Cornelia skrifaði:
Hallo,\r\nIch wollte fragen, mit welcher Wolle das Modell auf dem Foto gestrickt wurde und ob man das vielleicht bei allen Fotos ergänzen könnte, die oder im Titeltragen? Ist sonst das erstgenannten das Fotobeispiel?Lieben Dank!
26.12.2021 - 12:55DROPS Design svaraði:
Liebe Cornelia, das Modell auf dem Foto wird mit 1 Faden Air + 1 Faden Brushed Alpaca Silk gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
03.01.2022 - 14:39
Susanne Bøhvad skrifaði:
Der står at man skal lukke af til ærmegab når arbejdet måler 28 cm, på tegningen ser det da ud som om der først skal lukkes af når arbejdet måler 64/66 cm, så hvad er rigtigt ?
03.12.2021 - 23:29DROPS Design svaraði:
Hei Susanne. Du feller av til ærmegab / ermhull /under erme når arbeidet måler 28 cm (om du strikker str. XL), mens hele vesten, fra oppleggskant til skulder måler ca 64 cm. mvh DROPS Design
07.12.2021 - 10:16
Chantal Dionne skrifaði:
Le diagramme des mesures ne télécharge pas pour ce modèle (226-36). Je sais que vous venez de le mettre en ligne. Je vais revérifier plus tard. Merci pour la belle collection que vous venez de nous partager!
08.10.2021 - 14:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Dionne, et merci; nous avons effectivement de nouveau quelques soucis d'affichage des images, nous sommes désolés pour ce désagrément, soyez assurée que nous faisons le maximum pour régler ce problème le plus rapidement possible. Merci pour votre compréhension et patience. Bon tricot!
08.10.2021 - 15:24
Cork Oak#corkoakslipover |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk eða DROPS Wish. Stykkið er prjónað með V-hálsmáli og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-36 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 11) = 4,9. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman og lykkjum er ekki fækkað yfir lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka hringprjón og saumað saman. Að lokum er prjónað stroff í kringum handveg og í kringum kant í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 64-72-80-84-92-100 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir) eða 1 þráð DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka svona. Þegar stroffið mælist 9 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 lykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir næstu 54-62-70-74-82-90 lykkjur og fækkið jafnframt um 11-15-17-17-19-21 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, 5 lykkjur garðaprjón = 53-57-63-67-73-79 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið nú 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið og sléttprjón yfir miðju 43-47-53-57-63-69 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 5-5-5-5-7-8 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1-1-2-3-3-4 sinnum (= 6-6-7-8-10-12 lykkjur færri fyrir handveg í hvorri hlið)= 41-45-49-51-53-55 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 19-19-21-21-23-23 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 10-12-13-14-14-15 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 64-72-80-84-92-100 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir) eða 1 þræði DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka svona. Þegar stroffið mælist 9 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 lykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir næstu 54-62-70-74-82-90 lykkjur og fækkið jafnframt um 11-15-17-17-19-21 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, 5 lykkjur garðaprjón = 53-57-63-67-73-79 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið nú 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið og sléttprjón yfir miðju 43-47-53-57-63-69 lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki (= alls 6-6-7-8-10-12 lykkjur færri fyrir handveg í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 31-33-34-36-37-39 cm, skiptist stykkið fyrir V-hálsmáli þannig: Setjið miðju lykkjuna í umferð á þráð (= miðjulykkja) – miðjulykkjan á að vera á þræði alveg þar til kantur í hálsi er prjónaður. Setjið lykkjur á eftir miðjulykkju (séð frá réttu) á þráð eða látið þær hvíla á öðrum prjóni og prjónið vinstra framstykki. Vinstri öxl: Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli. Fækkið um 1 lykkju í lok umferðar frá réttu þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 4-4-5-5-6-6 sinnum og í 4. hverri umferð 6-6-6-6-6-6 sinnum. Þegar öll úrtaka fyrir V-hálsmáli hefur verið gerð til loka eru 10-12-13-14-14-15 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af. Hægri öxl: Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli. Fækkið um 1 lykkju í lok byrjun á umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 4-4-5-5-6-6 sinnum og í 4. hverri umferð 6-6-6-6-6-6 sinnum. Þegar öll úrtaka fyrir V-hálsmáli hefur verið gerð til loka eru 10-12-13-14-14-15 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður í ystu lykkjubogana, en skiljið eftir ca 17 cm fyrir klauf í hvorri hlið. KANTUR í HANDVEGI: Byrjið mitt undir ermi og prjónið upp 72 til 84 lykkjur jafnt yfir innan við 1 kantlykkju með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish á hringprjón 7. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. V-HÁLSMÁL: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp með 1 þræði af DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish á hringprjón 7 ca 91 til 107 lykkjur í kringum hálsmál (meðtalin þessi eina lykkja á þræði að framan = miðjulykkja). Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið), en yfir miðjulykkjuna mitt að framan er prjónuð 1 lykkja slétt í stað 2 lykkjur slétt og stillið af að það komi 2 lykkjur brugðið hvoru megin við miðjulykkju mitt að framan. JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt að framan þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan sléttu lykkju mitt að framan, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Með þessu þá kemur v-hálsmálið til með að leggjast fallega að hálsinum og slétta lykkjan kemur til með að fylgja með eins og bein lína mitt að framan. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist ca 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #corkoakslipover eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.