DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7436.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cosy Mosey

Prjónað vesti úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með V-hálsmáli, köntum í stroffprjóni og með vösum. Stærð S - XXXL.

DROPS 226-35
DROPS Design: Mynstur ai-345
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-200-200-250-250-250 g litur 02, hveiti
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-100-100-125-125-150 g litur 05, beige

DROPS TALA, Buffelhorn, NR 536: 4 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 60 og 80 cm.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7436.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 11) = 4,9. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkin og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna og saumað saman. Að lokum er prjónaður stroffprjón í kringum handveg, í kringum kanta að framan og í kanti í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 64-72-80-84-92-100 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 5 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 9 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
5 lykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir næstu 54-62-70-74-82-90 lykkjur og fækkið jafnframt um 11-15-17-17-19-21 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, 5 lykkjur garðaprjón = 53-57-63-67-73-79 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 8.
Prjónið nú 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið og sléttprjón yfir miðju 43-47-53-57-63-69 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið lykkjur af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 5-5-5-5-7-8 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1-1-2-3-3-4 sinnum = 41-45-49-51-53-55 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, fellið af miðju 19-19-21-21-23-23 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 10-12-13-14-14-15 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 32-36-40-44-48-52 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 5 lykkjur garðaprjón.
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 9 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
1 lykkja garðaprjón, sléttar lykkjur yfir næstu 26-30-34-38-42-46 lykkjur og fækkið jafnframt um 6-8-9-11-12-13 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, 5 lykkjur garðaprjón = 26-28-31-33-36-39 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 8.
Prjónið nú sléttprjón, 1 kantlykkja garðaprjón við miðju að framan og 5 lykkjur garðaprjón að hlið. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 5-5-5-5-7-8 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1-1-2-3-3-4 sinnum. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 39-41-42-44-45-47 cm, byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli. Fækkið um 1 lykkju í byrjun á umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 4-4-5-5-6-6 sinnum og í 4. Hverri umferð 6-6-6-6-6-6 sinnum. Þegar allar úrtökur fyrir V-hálsmáli hafa verið gerðar eru 10-12-13-14-14-15 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 32-36-40-44-48-52 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
5 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja garðaprjón.
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 9 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
5 lykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir næstu 26-30-34-38-42-46 lykkjur og fækkið jafnframt um 6-8-9-11-12-13 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, 1 kantlykkja garðaprjón = 26-28-31-33-36-39 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 8.
Prjónið nú sléttprjón, 1 kantlykkja garðaprjón við miðju að framan og 5 lykkjur garðaprjón að hlið. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 5-5-5-5-7-8 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1-1-2-3-3-4 sinnum. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 39-41-42-44-45-47 cm, byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli. Fækkið um 1 lykkju í lok á umferð frá réttu þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 kantlykkja garðaprjón (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 4-4-5-5-6-6 sinnum og í 4. Hverri umferð 6-6-6-6-6-6 sinnum. Þegar allar úrtökur fyrir V-hálsmáli og handveg er lokið eru 10-12-13-14-14-15 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori.
Saumið hliðarsauma frá handveg og niður í ystu lykkjubogana, en skiljið eftir ca 17 cm fyrir klauf í hvorir hlið.

KANTUR ERMI:
Byrjið mitt undir ermi og prjónið upp 72 til 84 lykkjur jafnt yfir innan við 1 kantlykkju með 1 þræði í hvorri tegund og hringprjón 7. Lykkjufjöldinn verðu að vera deilanlegur með 4.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

V-HÁLSMÁL:
Setjið eitt prjónamerki mitt aftan í hnakka. Prjónamerkin eru notuð þegar lykkjur eru prjónaðar fyrir kant að framan og kant í hálsmáli.
Hægri kantur að framan:
Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki með hringprjón 7 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) og prjónið upp 93 til 113 lykkjur upp að prjónamerki aftan í hnakka.
Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 1. Snúið og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, jafnframt því sem lykkjur eru auknar út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn þar sem úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjar með því að prjóna þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 4 sinnum (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka, en eftir 1 cm er fellt af fyrir 4-4-4-4-4-4 hnappagötum jafnt yfir. Efsta hnappagatið á að vera staðsett nákvæmlega þar sem úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjar og neðsta hnappagatið á að vera ca 9 cm frá neðri kanti.
Hnappagat = sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 lykkjur saman. ATH: Það er fallegast ef fellt er af í brugðinni einingu (séð frá réttu). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar kantur að framan mælist ca 4 cm – munið eftir AFFELLING.
Vinstri kantur að framan:
Byrjið frá réttu við prjónamerki mitt aftan í hnakka með hringprjón 7 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) og prjónið upp 93 til 113 lykkjur niður að neðst á fram- og bakstykki.
Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 1. Snúið og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, jafnframt því sem lykkjur eru auknar út með því að slá uppá prjóninn þar sem úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjar með því að prjóna þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 4 sinnum (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón.
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

VASI:
Fitjið upp 15 lykkjur með 3 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk á hringprjón 7. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir í 1 þráð DROPS Air og 1 þráð DROPSA Brushed Alpaca Silk.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar vasinn mælist 10 cm, fellið af. Prjónið annan vasa til viðbótar á sama hátt.
Staðsetjið vasana á hvoru framstykki. Neðri kanturinn á vasanum á að vera þar sem stroffið endar neðst og hliðin á vasanum á að vera meðfram kanti í garðaprjóni í hlið. Saumið vasann niður með smáu ósýnilegu spori.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Y M Markerink wrote:

Graag zou ik willen weten hoeveel garen ik nodig heb voor dit patroon maat xxxl

17.03.2024 - 14:01

DROPS Design answered:

Dag Y M Markerink,

Bovenaan bij de materialenlijst staat per maat aangegeven hoeveel gram je nodig hebt. (Het eerste getal geldt voor maat S, het tweede getal voor maat M, enzovoort). 1 bol weegt meestal 50 gram, maar let erop dat dit per garensoort verschillend kan zijn. Dus als er bijvoorbeeld 400 gram staat dan zou je 8 bollen nodig hebben als 1 bol 50 gram weegt.

17.03.2024 - 18:55

country flag Corina Avram wrote:

Me again. I am trying to understand exactly how many stitches to cast on for the right side. The pattern says 32 (size S), but how many edge sts should I add? 1 or 2? Thanks for all the clarifications :)

18.01.2024 - 14:05

DROPS Design answered:

Dear Mrs Avram, don't add any extra stitches, in size S you just need 32 sts and work them as explained from RS: 1 edge stitch, *K2, P2* until 7 sts remain, finish with K3 and 5 front band stitches in garter stitch. Happy knitting!

19.01.2024 - 08:21

country flag Corina Avram wrote:

Thank you for the help! Please explain more clearly the shoulder part. "Cast off 1 stitch on the next row from the neck = 10-12-13-14-14-15 stitches on the shoulder. Continue working until the piece measures 64-66-68-70-72-74 cm from the shoulder. Cast off". How do I cast off "1 sts from the neck"? Do I then continue knitting until I have 64cm (size S) and then prepare the cast off for the other shoulder? Thanks

18.01.2024 - 11:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Avram, let's say you cast off the middle stitches for neck on a row from RS then you will finish each shoulder separately and cast off for neck at the beginning of next row starting from neck: at the beginning of the next row from WS on right shoulder, then continue as before until piece measures 64 cm, cast off all stitches and work the left shoulder starting from WS and cast off 1 st at the beginning of next row from neck = at the beg of first row from RS. Happy knitting!

19.01.2024 - 08:18

country flag Corina Avram wrote:

Hello again :) I assume that the sleeve edge should be knitted with 60cm needles, so that are worked in the round. Is there a way to work them with 80cm? I only have these available. What would be the best way? I am thinking of working the edge separately and then sewing it together. Please illuminate me :) thanks

18.01.2024 - 07:01

DROPS Design answered:

Dear Mrs Avram, sure you can use a 80 cm needle using the magic loop technique. Happy knitting!

18.01.2024 - 09:06

country flag Corina Avram wrote:

Hello! I am getting a different knitting tension for this pattern, 1.2 sts/cm in needles 8mm and I like to keep the gauge like this. For Size S, should I cast the sts needed for M so I don't get a vest that's too small? How would you advise? Thank you!

17.01.2024 - 06:52

DROPS Design answered:

Hi Corina, It is easier to increase your needle size and try to get the 11 sts per 10 cm, as stated in the knitting tension (remember to use 1 strand of each quality when working your swatch). Then you can follow the stitch number and row number for the size you are working. Happy crafting!

17.01.2024 - 08:08