Amalie skrifaði:
Str. 7/8 forstykke. Jeg har 32 masker og der står: SAMTIDIG lukkes der af til ærmegab i begyndelsen af hver pind i hver side således: Luk 1 maske af 3 gange = 20-22-24-26-28-30 masker. Jeg lukker en maske 3 gange. Det kommer da aldrig til at give 26 masker?
09.03.2024 - 09:55DROPS Design svaraði:
Hei Amalie. Jo, du har 32 masker, så skal det felles til ermhull 1 maske 3 ganger på begynnelsen av HVER pinne. Så når du skal felles på begynnelsen av hver pinne, må du felle både fra retten og fra vrangen. 1 maske 3 ganger = 3 masker i hver side = 6 masker. 32 masker - 6 masker = 26 masker etter fellingene. mvh DROPS Design
18.03.2024 - 09:40
Agnes Holst Kazuhara skrifaði:
Der sker fejl ved valg til spørgsmål - de bliver opfattet som kommentar af systemet. Bedes rettet.\r\nJeg har så forgæves bestilt svar på spørgsmål.
30.01.2023 - 16:16
Agnes Holst Kazuhara skrifaði:
Hvor kan jeg finde en vest str. 13/14 år pige hhv dreng?
30.01.2023 - 16:09
Lexy Sellar skrifaði:
Are some of the stitch numbers incorrect for the shoulders on the back piece: On the next row cast off the middle 6-8-8-8-10-10 stitches for the neck and each shoulder is finished separately (= 7-8-9-10-10-11 stitches on each shoulder). On the piece you have 20-22-24-26-28-30 stitches so assuming the cast of stitch numbers are correct should the shoulders not be 7-7-8-9-9-10 stitches on each shoulder
27.01.2022 - 13:07DROPS Design svaraði:
Dera Mrs Sellar, correct, there was a mistake in the English pattern, thanks for noticing. Happy knitting!
28.01.2022 - 10:17
Willow Wood Vest#willowwoodvest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti / slipover fyrir börn úr DROPS Wish. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köntum í stroffprjóni. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 40-4 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Að lokum eru prjónaðar kantar í stroffprjóni í kringum hálsmál og í kringum báða handvegi. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 64-68-72-76-80-84 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 16-18-21-24-27-30 cm. Fellið nú af lykkjur fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 3 lykkjurnar í umferð, prjónið næstu 26-28-30-32-34-36 lykkjur, fellið af næstu 6 lykkjur, prjónið næstu 26-28-30-32-34-36 lykkjur og fellið af síðustu 3 lykkjur í umferð = 26-28-30-32-34-36 lykkjur á bakstykki og framstykki. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. FRAMSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka – JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 1 lykkju 3 sinnum = 20-22-24-26-28-30 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 26-29-33-36-40-43 cm. Í næstu umferð eru miðju 6-6-6-6-8-8 lykkjurnar settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (= 7-8-9-10-10-11 lykkjur á hvorri öxl). Haldið áfram í sléttprjóni og fækkið lykkjum í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 lykkju 1-2-2-2-2-2 sinnum = 6-6-7-8-8-9 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 33-36-40-44-48-52 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka – JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 1 lykkju 3 sinnum = 20-22-24-26-28-30 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 30-33-37-41-45-49 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 6-8-8-8-10-10 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (= 7-7-8-9-9-10 lykkjur á hvorri öxl). Haldið áfram í sléttprjóni. Í næstu umferð frá hálsmáli er fækkað um 1 lykkju í byrjun á umferð = 6-6-7-8-8-9 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 33-36-40-44-48-52 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant í ystu lykkjubogana – þannig að saumurinn verði ekki þykkur. KANTUR Í HANDVEG: Byrjið frá réttu neðst í handvegi og prjónið upp ca 40 til 48 lykkjur innan við 1 kantlykkju í kringum handveg, á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8 með DROPS Wish (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Passið uppá að kanturinn dragist ekki saman, en hann má heldur ekki vera með of margar lykkjur svo að kanturinn beygist út. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 ½ cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 32 til 52 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8 með DROPS Wish (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar kanturinn mælist ca 2½ cm. – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #willowwoodvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.