Josephina skrifaði:
Kan ik dit patroon ook breien van 2 draden drops alpaca, of wordt het dan te dik of te zwaar. Of is 1 draad nepal of 1 draad air beter. Vrgr Josephina
25.09.2021 - 20:50DROPS Design svaraði:
Dag Josephina,
Ja, dat kan prima. 2 draden DROPS alpaca komt overeen met een garendikte uit garengroep C. Maak wel eerst even een proeflapje en pas eventueel de naalddikte aan zodat de stekenverhouding klopt.
02.10.2021 - 12:50
Josephina skrifaði:
Kan ik dit patroon ook breien met 1 draad alpaca en 1 draad kid silk, zonder aanpassingen van het patroon, want beide wolsoorten hebben dezelfde steken verhouding volgens mij. Ik hoor graag van u. Met vriendelijke groet, Josephina Rietstra
13.09.2021 - 11:46DROPS Design svaraði:
Dag Josephina,
Ja zeker, dat kan. Je hebt dan ongeveer dezelfde stekenverhouding. Maak wel altijd even een proeflapje en pas eventueel de naalddikte aan om de juiste stekenverhouding te krijgen. Veel breiplezier!
17.09.2021 - 10:11
Inke Jörgensen skrifaði:
So lovely!
24.08.2021 - 21:17
Corrie skrifaði:
Attractive, nice fit. Gorgeous colour.
09.08.2021 - 10:44
Екатерина skrifaði:
Model "Blackberry necklace"
06.08.2021 - 10:43
Veronica Canelo skrifaði:
Adorable quisiera tejerlo para mi madre como regalo de cumpleaños🎁👵
05.08.2021 - 15:43
Anne Hoffmann skrifaði:
Ich würde dieses Model Brombeere nennen.
03.08.2021 - 16:32
Blackforest Memories#blackforestmemoriessweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, laskalínu og blaðamynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-3 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 190 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 31,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 31. og 32. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis 30. og 31. hver lykkja og 31. og 32. hver lykkja slétt saman. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í – í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 19-20-21-22-23-24 mynstureiningar með 4 lykkjum) í 4 cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= miðja að framan). Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið A.2 hringinn (= 19-20-21-22-23-24 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 190-200-210-264-276-288 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 10-10-10-15-15-15 cm frá prjónamerki við hálsmál. Prjónið 2 umferðir sléttprjón og aukið jafnframt út um 6-0-2-0-4-0 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 196-200-212-264-280-288 lykkjur. Nú eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þessi prjónamerki eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og prjónamerkin eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar: Teljið 30-31-33-40-44-46 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 36-36-38-50-50-50 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 60-62-66-80-88-92 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 36-36-38-50-50-50 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 30-31-33-40-44-46 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= ½ bakstykki). Prjónið sléttprjón fram hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 0-2-3-0-2-3 sinnum á hæðina og síðan í 4. hverri umferð alls 5-5-5-5-4-5 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 236-256-276-304-328-352 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til berustykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsinn. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 35-38-41-45-50-54 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki) setjið næstu 48-52-56-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 70-76-82-90-100-108 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 70-76-82-90-100-108 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-168-184-200-224-240 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hlið á stykki – mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónið sléttprjón yfir lykkjur á bakstykki fram að prjónamerki í hlið – umferðin byrjar nú við prjónamerkið. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 27 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú á að auka út lykkjum til að stroffið sem prjóna á síðar dragi ekki stykkið saman. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 24-26-28-30-34-36 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 180-194-212-230-258-276 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð í hring (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 48-52-56-62-64-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-66-72-76-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi – þ.e.a.s. mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi -sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3 cm millibili alls 3-3-3-4-4-4 sinnum á hæðina = 50-54-60-64-68-72 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-36-34-35-33-32 cm frá skiptingu (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-14-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 38-40-42-44-46-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLIN! Ermin mælist ca 43-42-40-40-39-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blackforestmemoriessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.