Annette Schwarz skrifaði:
Hallo liebes Team. Ich habe Probleme bei der Zunahme der Ärmel. Ich verstehe einfach nicht wie man das Muster bei den Zunahmen weiterführt . Und fange ich in der Reihen mit den rechtes gestrickten Maschen an zuzunehmen oder in der Reihe 1 links 3 rechts … ? Den Makierer setzte ich vor einer links gestrickten Masche !? Vielen Dank erstmal LG Annette
25.01.2025 - 20:18DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Schwarz, die neue Masche am Ende der Runde soll wie die nächste Masche gestrickt werden, und die neue Masche am Anfang der Runde soll wie die vorige Masche gestrickt werden, so wird sich das Muster erbreitern, aber und sich nicht verschieben. Viel Spaß beim Stricken!
27.01.2025 - 10:03
Claudia skrifaði:
Kann man den Pullover statt in Runden auch einzeln Rückenteil und Vorderteil stricken? Stricke ich Diagramm A2 dann wie folgt: 1. Reihe auf rechte Seite: 1 links, 3 rechts, 1 links, 3 rechts usw 2. Reihe: alle Maschen links Diese 2 Reihen wiederholen?
13.12.2024 - 09:20DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, über eine Maschenanzahl teilbar durch 3 wird man A.1 so stricken, dh die letzte Maschen der Hinreihe wird wie die 1. Masche A.1 gestrickt; bei A.2 sollen Sie dann eine Maschenanzahl teilbar durch 4+1 - dazu kommen noch 2 Randmaschen (1 beidseitig). Bei den Rückreihen lesen Sie die Diagramme links nach rechts und wie unter" in Rückreihen" in der Zeichungbeschreibung erkärt = die 1. Masche A.1/A.2 wird rechts bei den Rückreihen gestrickt, die 2. Masche A.1/die 3 letzten Maschen A.3 sind Glattrechts gestrickt.. Viel Spaß beim Stricken!
16.12.2024 - 09:26
Claudia skrifaði:
In den Diagrammen sind die Hinreihen angezeigt?
13.12.2024 - 01:16DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, alle Reihen sind im Diagram gezeichnet; in Runden lesen Sie jede Reihe rechts nach links, in Hin und Rückreihen lesen Sie die Rückreihen links nach rechts. Viel Spaß beim Stricken!
13.12.2024 - 07:49
Sławomira skrifaði:
Gdzie znajdę schemat A1 i A2?
29.05.2024 - 15:42DROPS Design svaraði:
Witaj Sławomiro, schematy A.1 i A.2 znajdują się po prawej stronie schematycznego rysunku miar, na dole strony. Pozdrawiamy!
29.05.2024 - 15:59
Nadezhda skrifaði:
Hello, are we supposed to work several repeats of diagram A1 and A2 in width?
09.11.2023 - 23:16DROPS Design svaraði:
Dear Nadezhda, repeat the diagrams all the round/row, this means when working A.1 repeat the 2 sts in diagram (= alternately 1 stitch in garter stitch, 1 stitch in stocking stitch), and when working A.2 repeat the 4 sts all the row (= 1 stitch in garter stitch, 3 sts in stocking stitch). Happy knitting!
10.11.2023 - 09:34
Les skrifaði:
Hello - I’m working on the sleeves now & having trouble with the sleeve ribbing increase. I can’t seem to make it blend well. After the yarn over, do I turn them into knits or purls or does it change after every increase?how can I join the ribbing pattern seamlessly? Thanks!
13.05.2023 - 22:18DROPS Design svaraði:
Dear Les, the yarn overs are worked inside A.2. Every time you increase a stitch, you need to check in the pattern if the corresponding stitch should be knitted or purled. The sleeve is worked in the round, so it has no seams; the increases will always be visible, but they have been placed in a not too visible place of the sleeve. Happy knitting!
14.05.2023 - 19:27
Les skrifaði:
Hello! For the back piece - the instructions after the neck cast off is confusing for me! Can someone help clarify? "Work in stocking stitch and cast off 1 stitch on next row from the neck = 21-24-24-24-25-28 stitches remain on row." Do I cast off one stitch EVERY row on the neck edge until I reach 21sts? Then the shoulder is worked until the piece measures 46cm? Thanks!
03.02.2023 - 04:52DROPS Design svaraði:
Hi Les, You had 69 stitches before casting off 25 stitches for the neck, leaving you with 22 stitches on each shoulder. The instructions are to cast off 1 stitch on the next row from the neck (which leaves you with 21 stitches). Continue working to correct length. Happy knitting!
03.02.2023 - 06:53
Blownsoto skrifaði:
Obliva Blownsoto Albully
22.05.2022 - 11:42
Mona skrifaði:
When is Kid silk shade 34 going to come back in stock? I really need to know because I have an unfinished project that needs it.
07.03.2022 - 18:50DROPS Design svaraði:
Dear Mona, we are expecting Kid-Silk 34 back in stock week 11, ie from next week (14/03), please contact your DROPS store, they will then let you know - even per mail or telephone- when they will get some back in stock. Happy knitting!
08.03.2022 - 10:59
Marie-Andrée Gratton skrifaði:
Bonjour, Est-il possible d'avoir une correspondance grandeur ( S, M etc.) avec les mensurations de poitrine en cm. ou en po. Ex: je mesure 88 cm. + 10cm (pour de l'ampleur) = 98cm. quelle grandeur choisir? Merci pour votre aide Marie-Andrée
03.01.2022 - 15:06DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gratton, vous retrouverez toutes les mesures finales des vêtements dans les schémas du bas de page; mesurez un vêtement similaire dont vous aimez la forme pour trouver votre taille. Plus d'infos sur les tailles ici. Bon tricot!
04.01.2022 - 06:54
Wild Mint Tea#wildmintteasweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-5 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í þannig: Prjónið fram að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir, svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur (A.2). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig til loka máls. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli á stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 152-168-176-192-216-232 lykkjur á hringprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn. Haldið svona áfram með mynstur þar til kanturinn mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð og 1 prjónamerki eftir 77.-85.-89.-97.-109.-117. lykkju í umferð (prjónamerkin eru sett í sléttprjónaða lykkju). Nú eru 75-83-87-95-107-115 lykkjur á framstykki og bakstykki á milli lykkja með prjónamerki í – prjónamerkin merkja hlið á fram- og bakstykki. Prjónið síðan A.2 hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-30-31 cm, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 3-4-4-8-11-12 lykkjum á undan fyrstu lykkju með prjónamerki í, fellið af 7-9-9-17-23-25 lykkjur fyrir handveg (= lykkja með prjónamerki + 3-4-4-8-11-12 lykkjur hvoru megin við hana), prjónið eins og áður yfir næstu 69-75-79-79-85-91 lykkjur, fellið af 7-9-9-17-23-25 lykkjur fyrir handveg (= lykkja með prjónamerki + 3-4-4-8-11-12 lykkjur hvoru megin við hana) og prjónið eins og áður yfir þær 69-75-79-79-85-91 lykkjur sem eftir eru. Bakstykki og framstykki er síðan prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 69-75-79-79-85-91 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, fellið af miðju 25-25-29-29-33-33 lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 21-24-24-24-25-28 lykkjur eftir í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 69-75-79-79-85-91 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 39-41-43-44-46-48 cm, setjið miðju 11-11-13-13-17-17 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-1-1-1-1 sinnum, 2 lykkjur 3-3-2-2-2-2 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-2-2-2 sinnum = 21-24-24-24-25-28 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 40-44-44-48-48-52 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn. Haldið svona áfram með mynstur þar til kanturinn mælist 8 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð (prjónamerkið er sett í garðaprjóns lykkju). Prjónamerkið merkir mitt undir ermi og er notað þegar auka á út mitt undir ermi. Prjónið nú A.2 hringinn. Þegar stykkið mælist 10-10-10-12-13-13 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3½-3-2½-2-2 cm millibili alls 12-12-14-14-16-16 sinnum = 64-68-72-76-80-84 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-51-51-49-47-45 cm (það er styttra máli í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Í næstu umferð er lykkjan felld af með prjónamerki = 63-67-71-75-79-83 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-53-53-54-53-52 cm frá uppfitjunarkanti – ermakúpan mælist ca 2-2-2-5-6-7 cm frá þar sem lykkjan með prjónamerki var felld af. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermakúpu við handveg innan við 1 kantlykkju. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handveg – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp ca 68 til 90 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið A.1 hringinn – en stillið af þannig að mynstrið passi fallega yfir lykkjur á þræði að framan. Haldið svona áfram þar til kanturinn mælist 5-5-5-6-6-6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING! |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wildmintteasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.