Fiona skrifaði:
Can you explain when you say: Cast off 3-3- 5 -6-8-8 stitches 1 time, 2 stitches 3 times, then 1 stitch on each side. Thank you
22.02.2025 - 21:06DROPS Design svaraði:
Dear Fiona, you cast off at the beginning of all rows from the right side and the wrong side. So, cast off 3 (or as many stitches as necessary for your size) stitches at the beginning of the row from the right side and another 3 stitches at the beginning of the row from the wrong side (so 1 time on each side in total). Then cast off 2 stitches at the beginning of the next 6 rows (3 from the right side, 3 from the wrong side). Then cast off only 1 stitch on each side until the sleeve measures 51 cm (ensure to cast off the same number of stitches from the right and wrong side). Happy knitting!
24.02.2025 - 00:44
Alex skrifaði:
For a M sized in Alaska yarn (750 g) i need 15 balls of yarn?? Seems like a lot and i am a super beginner in this craft! Thank you! 🥰
16.02.2025 - 17:51DROPS Design svaraði:
Hi Alex, Drops Nepal comes in 50 g balls. So for size M (700g) you need 14 balls of wool. This is a heavy-weight jacket and therefore uses a larger quantity of yarn. Happy knitting!
17.02.2025 - 07:12
Lineke Puper skrifaði:
Rechter voorpand Ik ben bij armsgat Ik heb 8 steken aan de verkeerde kant afgekant Hoe nu verder ? Moet ik aan de verkeerde kant gewoon 2 st samenbreien of aan de goede kant en welke steken dan St 2 en 3 of 3 en 4 etc
29.11.2024 - 14:09DROPS Design svaraði:
Dag Lineke,
Je breit verder en op de volgende naald kant je 1 steek af aan de verkeerde kant, dus weer aan de kant van het armsgat. Deze 1 steek afkanten doe je in totaal 5 keer voor maat XXL of 8 keer als je maat XXXL breit.
01.12.2024 - 13:30
Marjan skrifaði:
Ik ben nu bezig met de mouwkoppen, waarin ook steeds geminderd wordt aan het begin van de naald, tenminste voor zover ik het heb begrepen. Moet ik hier ook een ribbelkantsteek maken?
11.10.2024 - 16:43DROPS Design svaraði:
Dag Marjan,
Nee, dit is voor de mouwkop niet nodig. De mouwkop wordt in het armsgat genaaid en dat is een andere soort naad als onder de mouw.
12.10.2024 - 08:34
Lily skrifaði:
Bij al de leveranciers van Drops garen hier in Nederland is het garen: Drops loves you 9 nr. 119 niet leverbaar. Daarom stelde ik deze vraag bij jullie op de site. ( had ik in het Engels gedaan, misschien niet zo slim) Als ik in Engeland moet bestellen kost het mij te veel aan portokosten. Ik wil alleen vragen of die bij de Nederlandse leveranciers binnenkort weer te verkrijgen is.
01.07.2024 - 14:56DROPS Design svaraði:
Dag Lily,
Deze kleur is niet uit de handel, maar ik kan helaas niet zeggen wanneer hij weer leverbaar is via de winkels in Nederland. Misschien kun je een verzoek bij je (web)winkel doen om deze kleur weer in te kopen.
01.07.2024 - 20:52
Lily skrifaði:
I have a question about Drops ❤️ you, number 119! I am knitting a cardigan with it and am short 3 balls. It cannot be ordered anywhere, it says temporarily sold out or unavailable. Will it come back and when? If not, I'll have to come up with something else. I would like to finish the cardigan.
01.07.2024 - 09:51DROPS Design svaraði:
Dear Lily, are you talking about Drops Loves You 9? you can find it here, including colour 119 that is still available, ask your Drops store when they can get some more back for you. Happy knitting!
01.07.2024 - 13:37
Marianne S Rokke skrifaði:
Hei. Har strikket denne jakken i Nepal str.L, og den er en storfavoritt!! Har veldig lyst til å strikke den i et tynnere garn, strikkefasthet 26-27m x 10 cm. Hvordan skal jeg isåfall beregne garnmengde, og hvilken str. bør jeg endre til mtp.maskeantall? Mvh, Marianne S. Røkke
13.03.2024 - 22:49
Katelijne Lesieur skrifaði:
Zou het kunnen dat er bij patroon nr ne-355 een foutje staat in de beschrijving? Bij rechtervoorpand staat aan 37 cm hoogte kant 3 st af ah begin vd volgende naald ad verkeerde kant vr het armsgat en daarna minder 1 steek ah einde van elke nld ad VERKEERDE kant . Ik denk dat dit de goede kant moet zijn anders zit je langs de halskant . Vr linkervoorpand net andersom .
26.01.2024 - 09:58
Virginie skrifaði:
Bonjour. J'aimerai avoir une petite précision. Lorsque les explications disent : monter 101 mailles (y compris une maille lisière de chaque côté), est ce que les mailles lisières sont comprises dans les 101 mailles ? Ou est ce que je dois les monter en plus et donc avoir 103 mailles ? Merci pour votre réponse.
14.01.2024 - 23:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Virginie, les mailles lisières sont comprises dans le nombre de mailles à monter, vous n'avez pas besoin de les ajouter, montez simplement 101 mailles. Bon tricot!
15.01.2024 - 10:02
Elly skrifaði:
Sorry, gevonden.
12.10.2023 - 19:21
Stone Fences Jacket#stonefencesjacket |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Stykkið er prjónað með köntum í stroffprjóni og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-23 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 109 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 27) = 3,96. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna 3. og 4. hverja lykkju slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur. ÚRTAKA-2 (á við um handveg og hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN Á UMFERÐ ÞANNIG: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og sett saman eins og útskýrt er í uppskrift. Í lokin er prjónaður kantur að framan og kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 101-109-117-129-143-155 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4,5 með DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1, þannig að stroffið byrjar og endar alveg eins og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 25-27-29-33-37-39 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 76-82-88-96-106-116 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 3-3-5-6-8-8 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 70-76-78-84-90-100 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum fyrir handveg þannig: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin á stykki í hverri umferð frá réttu alls 2-3-3-4-5-8 sinnum – sjá ÚRTAKA-2 = 66-70-72-76-80-84 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 30-30-32-32-34-34 lykkjur fyrir hálsmáli (= 18-20-20-22-23-25 lykkjur á hvorri öxl). Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er fækkað um 1 lykkju = 17-19-19-21-22-24 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 50-54-58-64-72-78 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4,5 með DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, A.1 þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 11-12-13-15-18-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 39-42-45-49-54-59 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 3-3-5-6-8-8 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá röngu fyrir handveg = 36-39-40-43-46-51 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum fyrir handveg þannig: Fækkið um 1 lykkju í lok hverrar umferðar frá réttu alls 2-3-3-4-5-8 sinnum = 34-36-37-39-41-43 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm, prjónið fyrstu 10-10-10-10-11-11 lykkjur frá réttu áður en þær eru settar á þráð fyrir hálsmáli, prjónið út umferðina. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur í byrjun hverrar umferðar frá réttu alls 7-7-8-8-8-8 sinnum = 17-19-19-21-22-24 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 50-54-58-64-72-78 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4,5 með DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, 1 lykkja brugðið, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 11-12-13-15-18-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 39-42-45-49-54-59 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 3-3-5-6-8-8 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá réttu fyrir handveg = 36-39-40-43-46-51 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum fyrir handveg þannig: Fækkið um 1 lykkju í byrjun hverrar umferðar frá réttu alls 2-3-3-4-5-8 sinnum = 34-36-37-39-41-43 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm, prjónið fyrstu 10-10-10-10-11-11 lykkjur frá röngu áður en þær eru settar á þráð fyrir hálsmáli, prjónið út umferðina. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu alls 7-7-8-8-8-8 sinnum = 17-19-19-21-22-24 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 64-66-68-72-74-74 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4,5 með DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 12 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 18-18-18-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-52-54-54 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 14 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 10-7½-5½-5½-4-3 cm millibili alls 4-5-6-6-7-9 sinnum = 54-58-62-64-68-72 lykkjur. Þegar ermin mælist 46-46-44-44-42-40 cm, fellið af lykkjur fyrir ermakúpu í hvorri hlið þannig: Fellið af 3-3-5-6-8-8 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum, fellið síðan af 1 lykkju í hvorri hlið þar til ermin mælist 51 cm. Fellið síðan af 3 lykkjur í hvorri hlið 1 sinni. Fellið af – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 52 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermi. Saumið sauma undir ermi og síðan niður yfir fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjónið upp ca 91 til 107 lykkjur innan við 1 kantlykkju með hringprjón 4,5 og DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1. Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan A.1 með 1 kantlykkju garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 2½ cm, fellið af fyrir 5-5-6-6-6-6 hnappagötum. Neðsta hnappagatið á að vera ca 3 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið ½ cm frá þar sem kraginn var prjónaður upp. Þau 3-3-4-4-4-4 hnappagöt sem eftir er staðsett jafnt yfir með ca 8 till 10 cm millibili. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Haldið áfram fram og til baka í stroffprjóni þar til stykkið mælist 4½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu efst á vinstra framstykki og prjónið upp jafn margar lykkjur og á hægri kanti að framan innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni niður yfir vinstra framstykki með hringprjón 4,5 og DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan A.1 með 1 kantlykkju garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 4½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið tölur í vinstri kant að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu, yst í hægri kanti að framan og prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 4,5 með DROPS Nepal eða DROPS Alaska þannig: Prjónið upp ca 107 til 125 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1. Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 15 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Brjótið niður stroffið efst í hálsi að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það kanturinn í hálsmáli verði ca 7 cm. Saumið stroffið þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan á kanti að framan með smáu spori. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stonefencesjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.