Amy skrifaði:
Stricke ich die erste Reihe des diagramms 4 mal in einer Reihe oder die ersten 4 Reihen des diagramms in einer Reihe? Ich stricke zum ersten Mal mit Muster, deshalb die vielen Fragen 😵💫 Danke im Vorraus!
12.06.2025 - 19:23DROPS Design svaraði:
Liebe Amy, ja genau, wenn Sie das Diagram 4 Mal wiederholen sollen, dann Stricken Sie zuerst 4 Mal die 1. Reihe, dann bei der 2. Reihe (Rückreihe) stricken Sie 4 Mal die 2. Reihe usw. Hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim Stricken!
13.06.2025 - 07:32
Amy skrifaði:
Ich stricke die Anleitung in Größe S, und ich verstehe die Stelle: “die ersten 0-0-0-11-11-11 Maschen von A.1 stricken, ” nicht. Wenn ich die ersten 0 Maschen Stricken soll, soll ich also gar keine Maschen von dem Diagramm Stricken?
12.06.2025 - 15:18DROPS Design svaraði:
Liebe Amy, in S stricken Sie die 67 Maschen so: 3 Krausrechte Maschen, 1 M glattrechts, 4 Mal die 14 Maschen A.1 = 56 Maschen, 4 Maschen glattrechts und 3 Maschen krausrechts = 3+1+56+4+3=67 Maschen - in diese Größe brauchen Sie nicht noch einige Maschen A.1 zu stricken. Viel Spaß beim Stricken!
12.06.2025 - 16:01
Faith skrifaði:
I am working pattern Purely Spring in small size. Pattern says to work 3 stitches in garter, 1 stitch in stocking stitch, 56 stitches in pattern, 4 stitches in stocking stitch, 3 stitches in garter. I have done this on right side. On wrong side do I follow this same sequence (3,1,56,4,3), or do I follow what was previously worked (3,4,56,1,3)?
30.05.2025 - 15:47DROPS Design svaraði:
Dear Faith, you worked over the stitches of stocking stitch with stocking stitch, the stitches of the pattern over the stitches of the pattern, e.t.c. Otherwise the pattern will get misaligned. So you work: [3,4,56,1,3] back. Happy knitting!
31.05.2025 - 23:04
Simona skrifaði:
Salve, le maglie della spalla destra che risultano lavorate prima devo riprenderle per unirle con quelle di sinistra e le nuove maglie? Non ho capito bene l'unione del lavoro Grazie
06.08.2023 - 08:28DROPS Design svaraði:
Buongiorno Simona, quando unisce il lavoro deve lavorare le maglie della spalla sinistra, avviare a nuovo le maglie del collo e lavorare le maglie della spalla destra che erano state messe in sospeso. Buon lavoro!
09.08.2023 - 08:21
Jo skrifaði:
"Vivia Tank"
20.01.2021 - 02:02
Lis Faarvang skrifaði:
"Den lette"
07.01.2021 - 16:53
Purely Spring#purelyspringtop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og hnútum. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-14 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um útaukningu fyrir handveg): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið þannig: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur garðaprjón. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur A.1. ÚRTAKA (á við um hliðar): Fækkið um 1 lykkju á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið um 1 lykkju á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 kantlykkja í garðaprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Framstykkið og bakstykkið er prjónað ofan frá og niður. BAKSTYKKI: Hægri öxl: Fitjið upp 17-17-17-19-19-19 lykkjur á hringprjón 4 með Cotton Light. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 lykkjum GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8-8 cm – stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá röngu, klippið þráðinn frá. Geymið stykkið. Vinstri öxl: Fitjið upp 17-17-17-19-19-19 lykkjur á hringprjón 4 með Cotton Light. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 lykkjum garðaprjón, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8-8 cm – stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá röngu. Prjónið nú bæði stykkin saman þannig: Prjónið eins og áður yfir 17-17-17-19-19-19 lykkjur á vinstri öxl, fitjið upp 33-35-37-37-39-41 lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli, prjónið 17-17-17-19-19-19 lykkjur á hægri öxl = 67-69-71-75-77-79 lykkjur. Prjónið nú áfram í sléttprjóni, 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið og miðju 39-41-43-43-45-47 lykkjurnar eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju lykkjurnar, prjónið mynstur þannig: 3 lykkjur garðaprjón, 1-2-3-0-1-2 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 56 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið fyrstu 0-0-0-11-11-11 lykkjurnar í A.1, 4-5-6-2-3-4 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Jafnframt þegar stykkið mælist 13-12-12-11-10-8 cm, aukið út um 1 lykkju fyrir handveg í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 5-7-9-11-14-18 sinnum. Í lok næstu 2 umferða eru fitjaðar upp 4-6-7-8-10-12 lykkjur fyrir handveg = 85-95-103-113-125-139 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með eins margar lykkjur af A.1 og pláss er fyrir og prjónið garðaprjón yfir ystu 7-9-10-11-13-15 lykkjurnar í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir þessar lykkjur, prjónið 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, mynstur A.1 eins og áður og þær lykkjur sem eftir eru að hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 12-13-14-15-16-17 cm = 81-91-99-109-121-135 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm frá handveg – stillið af að ekki sé endað mitt í gatamynstri/hnút og prjónið jafnvel nokkrar umferðir í sléttprjóni til að ná réttri lengd eftir síðasta gatamynstri/hnút, skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af – sjá AFFELLING. Bakstykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana með lykkjuspori innan við uppfitjunarkanta. Saumið hliðarsaum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #purelyspringtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.