Spring Bloom |
|
|
|
Heklaður toppur úr DROPS Muskat. Stykkið er heklað ofan frá og niður með opi mitt aftan í hnakka. Stærð XS - XXL.
DROPS 220-15 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls. ÚTAUKNING (á við um handveg): Aukið út um 1 lykkju þannig: Heklið 1 loftlykkju í lok umferðar (= 1 ný lykkja). Aukið út um 3 loftlykkjur þannig: Heklið 3 loftlykkjur í lok umferðar (= 3 nýjar lykkjur). Í næstu umferð á eftir útaukningu, heklið 1 stuðul í hverja og eina af nýjum loftlykkjum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er heklað fram og til baka hvort fyrir sig og heklað er ofan frá og niður. Þegar stykkin hafa verið hekluð til loka eru þau saumuð saman. Að lokum er heklaður kantur í kringum handvegi og í hálsmáli. FRAMSTYKKI: Hægri öxl: Heklið 18-19-20-20-21-21 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 14-15-16-16-17-17 loftlykkjum = 15-16-17-17-18-18 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar heklaðar hafa verið 7-7-7-9-9-9 umferðir með stuðlum, klippið þráðinn frá og geymið stykkið. Heklið nú vinstri öxl. Vinstri öxl: Heklið 18-19-20-20-21-21 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 14-15-16-16-17-17 loftlykkjum = 15-16-17-17-18-18 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar heklaðar hafa verið 7-7-7-9-9-9 umferðir með stuðlum, heklið næstu umferð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af 15-16-17-17-18-18 stuðlum á vinstri öxl, heklið 32-32-32-34-34-36 loftlykkjur (= hálsmál), heklið 1 stuðul í hvern af 15-16-17-17-18-18 stuðlum á hægri öxl – passið uppá að heklað sé frá röngu þannig að áferðin verði alveg eins á hægri og vinstri öxl. Nú eru 62-64-66-68-70-72 stuðlar í umferð. Haldið áfram fram og til baka með stuðlum. Þegar stykkið mælist 10-11-12-11-12-11 cm frá öxl, byrjar útaukning í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚTAUKNING. Aukið út um 1 lykkju 3-2-1-1-1-1 sinnum, 3 lykkjur 0-1-2-3-3-4 sinnum og 5-6-7-7-11-13 lykkjur 1 sinni = 78-86-94-102-112-124 lykkjur. Stykkið mælist ca 18-19-20-21-22-23 cm frá öxl og niður. Haldið áfram fram og til baka með stuðlum þar til stykkið mælist alls 42-44-46-48-50-52 cm frá öxl og niður. Klippið þráðinn frá og festið. BAKSTYKKI: Hægri öxl: Heklið 18-19-20-20-21-21 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 14-15-16-16-17-17 loftlykkjum = 15-16-17-17-18-18 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir með stuðlum, klippið þráðinn frá. Heklið 16-16-16-17-17-18 lausar loftlykkjur (= hálsmál), heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul á öxl – passið uppá að heklað sé frá réttu þannig að önnur hver umferð á öxl er hekluð frá réttu og röngu = 31-32-33-34-35-36 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að auka út lykkjum fyrir handveg, jafnframt þegar stykkið mælist 15 cm er stykkið lagt til hliðar og vinstri öxl er hekluð. Síðan er vinstri öxl og hægri öxl heklaðar saman, þannig að það myndist op/klauf mitt að aftan. Lestu því allan næsta kafla áður en þú heklar. Þegar stykkið mælist 10-11-12-11-12-11 cm frá öxl, byrjar útaukning fyrir handveg í hlið – aukið er út í lok hverrar umferðar frá réttu – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið út um 1 lykkju 3-2-1-1-1-1 sinnum, 3 lykkjur 0-1-2-3-3-4 sinnum og 5-6-7-7-11-13 lykkjur 1 sinni, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15 cm frá öxl – stillið af að síðasta umferðin sem er hekluð sé frá röngu, klippið þráðinn frá. Geymið stykkið. Heklið vinstri öxl. Vinstri öxl: Heklið 18-19-20-20-21-21 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 14-15-16-16-17-17 loftlykkjum = 15-16-17-17-18-18 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa við með. Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar heklaðar hafa verið 3 umferðir með stuðlum, heklið 16-16-16-17-17-18 loftlykkjur í lok 3. umferðar (= hálsmál). Heklið 3 loftlykkjur til að snúa við með og heklið síðan með 1 stuðli í hverja lykkju = 31-32-33-34-35-36 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með stuðlum. Aukið út fyrir handveg alveg eins og á hægri öxl, en aukið er út í lok hverrar umferðar frá röngu. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15 cm – stillið af að síðasta umferðin sé hekluð frá röngu, heklið vinstri og hægri öxl saman frá réttu þannig: Heklið eins og áður yfir lykkjur á vinstri öxl, heklið síðan yfir lykkjur frá hægri öxl. Nú myndast op mitt aftan á bakstykki. Haldið áfram fram og til baka með stuðlum og útaukningu fyrir handveg í hvorri hlið. Þegar öll útaukning hefur verið gerð gerðar fyrir handveg eru 78-86-94-102-112-124 lykkjur og stykkið mælist ca 18-19-20-21-22-23 cm frá öxl. Haldið áfram fram og til baka með stuðlum þar til stykkið mælist alls 42-44-46-48-50-52 cm frá öxl og niður. Klippið þráðinn frá og festið. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið hliðarsauma og skiljið eftir smá op fyrir klauf ca 5 cm í hvorri hlið neðst á toppnum. KANTUR Í HANDVEGI: Í handveg er heklaður kantur þannig – byrjið mitt undir ermi með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju: UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í næstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* umferðina hringinn – stillið af að heklaður sé sá fjöldi fastalykkja/loftlykkja sem er deilanlegt með 6, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, * hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 2 fastalykkjur um næstu loftlykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 1 stuðul um næstu loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 2 fastalykkjur um loftlykkjur *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Í kringum hálsmál er heklaður kantur þannig – byrjið mitt að aftan neðst í opi/klauf og heklið fyrstu umferð frá röngu: UMFERÐ 1: Heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja, 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* 12 sinnum upp meðfram klauf, haldið síðan áfram alveg eins í kringum hálsmál og heklið alveg eins 12 sinnum niður meðfram hinni hlið á opi/klauf að aftan – stillið af að heklaður sé sá fjöldi fastalykkja/loftlykkja sem er deilanlegur með 6, endið með 1 fastalykkju neðst í opi/klauf. Snúið stykkinu og heklið umferð 2 frá réttu. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, * hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 2 fastalykkjur um næstu loftlykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 1 stuðul um næstu loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 2 fastalykkjur um næstu loftlykkju *, heklið frá -*-* umferðina hringinn, endið með 1 fastalykkju neðst í opi/klauf. Nú er kantur í hálsi saumaður neðst við op/klauf þannig: Leggið vinstri hlið af kanti yfir hægri hlið af kanti og saumið nokkur spor í gegnum bæði lögin þannig að kantarnir festist saman. Saumið tölur í hægri hlið á opi/klauf. Tölum er hneppt í gegnum loftlykkjubogana í vinstri hlið í kanti. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (9)
Maria Luisa wrote:
Hi! I am going to crochet this top, I have got the yarn! My question is about sizing: I am a size 12 uk and my bust measurement is 39 inches. Which size do you advise me to make? I have made a crochet top from your website before, I made it a size medium and it was a bit big on me. Would be very grateful for your advice. Thank you.
20.05.2022 - 18:10DROPS Design answered:
Dear Maria Luisa, measure a similar garment you have and like the size and compare these measurements to those in the chart, this is the best way to find the matching size; Read more here. Happy crocheting!
23.05.2022 - 09:06Marjolein Abeln wrote:
Bij uitleg welke maat haaknaald lijkt het advies net verkeerd om. Heb je teveel steken pak dan grotere naald?
09.05.2022 - 16:32Lieze wrote:
Heyy Heb al vraag gesteld ma ik snap het nog steeds niet. Bij de smal moet je 3 keer in 1 steek gaan enzo maar ik snap niet wat je bedoelt met die 3x in 1steek..? Kunt u het uitleggen aub..?
09.04.2022 - 13:11DROPS Design answered:
Dag Lieze,
Bovenaan bij de uitleg voor het patroon (tip voor het meerderen) staat dit uitgelegd; je meerdert 3 steken aan door 3 lossen aan het eind van de toer te haken en op de volgende toer haak je 1 stokje in elk van de nieuwe lossen.
14.04.2022 - 11:30Lieze wrote:
Hallo, ik heb een vraagje. bij de linkerschouder te haken( heb het al aan het rechter schouder gehaakt) daaronder staat er ergens bij TIP VOOR HET MEERDEREN: meerder 3-2-1-1-1 keer in 1 steek, 0-1-2-3-3-4 keer in 3 steken en dan nog iets gelijkaardigs... ik snap hierbij niet wat je moet doen? kunt u me helpen? ( heb trouwens de versie voor de M. mvg
06.04.2022 - 22:01DROPS Design answered:
Dag Lieze,
De serie getallen refereert aan de verschillende maten, dus als je bijvoorbeeld mat S haakt, neem je het eerste getal. Je meerdert dan dus 3 keer 1 steek en nog eens 0 keer 3 steken en tot slot 1 keer 5 steken.
09.04.2022 - 10:04Sofie wrote:
Hejsa! Jeg forsøger at hækle denne top i str. S, og ser på forstykket at jeg skal lave udtagninger og gå fra 62 masker til 78. Men 1 maske 3 gange og 5 masker en gang giver kun 70 masker, og stykket bliver helt skævt i den ene side hvor der er hæklet 5 nye masker. Er der noget jeg har misforstået?
07.09.2021 - 16:14DROPS Design answered:
Hej Sofie. Du ska ta ut masker i hver side, så du tar ut 8 m på hver side. 62+8+8=78 m. Mvh DROPS Design
08.09.2021 - 08:08Louise wrote:
Skal der laves 3 lm både i starten og slutningen af rækken, for at kunne hækle kanten pæn hele vejen rundt?
03.09.2021 - 21:40DROPS Design answered:
Hei Louise. Du hekler 3 luftmasker på begynnelsen av hver rad, - les Hekleinformasjon i oppskriften. Disse 3 luftmaskene erstatter IKKE første stav, men du kommer opp i "høyden" med stavene som skal hekles på raden. Du avslutter hver rad med 1 stav. Snu og start med 3 luftmasker. mvh DROPS design
13.09.2021 - 11:26Krista De Backer wrote:
Bij het meerderen van 1 steek bij de armsgaten moet je 1 losse haken. Moet je dan ook 3 keerlossen erbij haken? Dus 4 lossen haken in totaal? Groetjes
14.08.2021 - 13:59DROPS Design answered:
Dag Krista,
Ja, je haakt inderdaad gewoon 3 keerlossen zoals anders, daarna haak je een stokje in de nieuwe losse, dit is de meerdering. Vervolgens haak je verder over de toer.
17.08.2021 - 12:38Mette Krogh wrote:
Hvad er maskesting til at sy toppen sammen med. Kan kun finde maskesting til strik
28.07.2021 - 12:56DROPS Design answered:
Hej Mette, Se den video "Sy hæklede ruder sammen" så får du en fin søm :)
04.08.2021 - 08:44Valerie wrote:
C est une petit top d 'été comme on les adore de chez drop.
07.04.2021 - 08:15