Playful Petals#playfulpetalstop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-24 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Stillið af að útaukningin sé gerð í umferð án mynsturs, þ.e.a.s. í umferð með sléttri tölu í mynsturteikningu. Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp að handveg. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig til loka máls. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón neðan frá og upp að handveg, síðan er handvegurinn prjónaður fram og til baka á hringprjóna til loka máls. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 224-240-256-288-304-336 lykkjur á hringprjón 2,5 með Safran. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 28-30-32-36-38-42 mynstureiningar með 8 lykkjum). Setjið 1 prjónamerki í 2. lykkju í umferð og 1 prjónamerki í 114.-122.-130.-146.-154.-170. lykkju í umferð. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin merkja hliðar á fram- og bakstykki. Haldið áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið. Stillið af að næsta umferð sé umferð með sléttri tölu í mynsturteikningu (þetta er mikilvægt til að koma í veg fyrir að prjóna mynstrið frá röngu þegar bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka) og prjónið næstu umferð þannig: Byrjið 2-3-3-4-4-4 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í byrjun á umferð, fellið af 5-7-7-9-9-9 lykkjur fyrir handveg (prjónamerki situr í miðju af þessum 5-7-7-9-9-9 lykkjum), prjónið eins og áður þar til 2-3-3-4-4-4 lykkjur eru eftir á undan næstu lykkju með prjónamerki í, fellið af 5-7-7-9-9-9 lykkjur fyrir handveg og prjónið eins og áður út umferðina. Bakstykkið og framstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 107-113-121-135-143-159 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-2-2-3 sinnum, 2 lykkjur 2-3-3-4-4-6 sinnum og 1 lykkja 4-4-4-6-6-7 sinnum í hvorri hlið = 85-87-95-95-103-103 lykkjur. ATH: Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í gatamynstri í hvorri hlið þegar fellt er af fyrir handveg, eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af, haldið áfram með mynstur eins langt og það gengur út í hvorri hlið og með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, fellið af miðju 49-51-51-51-51-51 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 16-16-20-20-24-24 lykkjur eftir á öxl (lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í gatamynstri eru prjónaðar í sléttprjóni). Prjónið þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 107-113-121-135-143-159 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-2-2-3 sinnum, 2 lykkjur 2-3-3-4-4-6 sinnum og 1 lykkja 4-4-4-6-6-7 sinnum í hvorri hlið = 85-87-95-95-103-103 lykkjur. ATH: Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í gatamynstri í hvorri hlið þegar fellt er af fyrir handveg, eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af, haldið áfram með mynstur eins langt og það gengur út í hvorri hlið og með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 41-43-45-46-48-50 cm, setjið miðju 35-37-37-37-37-37 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 16-16-20-20-24-24 lykkjur eftir á öxl (lykkjurnar sem ekki ganga jafnt upp í gatamynstri eru prjónaðar í sléttprjóni). Prjónið þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 64-72-80-88-96-104 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 2,5 með Safran. Prjónið 6 umferðir garðaprjón hringinn. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 8-9-10-11-12-13 mynstureiningar með 8 lykkjum). Setjið 1 prjónamerki í 2. lykkju í umferð. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – prjónamerkin merkja mitt undir ermi. Haldið áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 1-1-1-1½-1½-1½ cm millibili alls 6-5-4-4-3-2 sinnum = 76-82-88-96-102-108 lykkjur (lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í gatamynstri mitt undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar ermin mælist 9-9-9-8-8-6 cm, felli af fyrir handveg mitt undir ermi. Stillið af að næsta umferð sé á oddatölu í A.1, byrjið 2-3-3-4-4-4 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, fellið af 5-7-7-9-9-9 lykkjur (prjónamerkið situr í miðju af þessum 5-7-7-9-9-9 lykkjum) og prjónið eins og áður út umferðina. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinnum, 2 lykkjur 3-3-3-2-2-2 sinnum og 1 lykkja 8-8-8-12-12-15 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 19-19-19-20-20-20 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 20-20-20-21-21-21 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á framstykki/bakstykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu á annarri öxlinni og prjónið upp ca 120 til 132 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 2,5 með Safran. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #playfulpetalstop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.