Emma skrifaði:
Hei. Strikker denne genseren nå, vil bare gjøre dere på at det er en feil i felling av arme i str L. Der står det at det skal felles totalt 13 ganger og at man da går fra 60 masker til 36, men dette stemmer ikke. Etter å ha felt 12 ganger har man gått fra 60 til 36 masker. Ville bare gjøre dere oppmerksomme på det:)
16.12.2021 - 08:13
Patrizia Pascali skrifaði:
Buongiorno chiedo scusa ma non trovo le indicazioni per lavorare le 2" coste" subito dopo l'avvio delle maglie. Potete aiutarmi? Grazie
31.05.2021 - 11:13DROPS Design svaraði:
Buonasera Patrizia, la ringraziamo per la segnalazione che inoltriamo al settore design. 1 costa è costituita da 2 ferri legaccio, per cui dovrà lavorare 4 ferri legaccio dopo aver montato le maglie. Buon lavoro!
31.05.2021 - 22:20
Lavender Rose Sweater#lavenderrosesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-34 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 3,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Aukið út um alls 8 lykkjur í hverri útaukningsumferð. RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Þegar stykkið mælist 2 cm í öllum stærðum eftir skiptingu fyrir handveg er skipt yfir í ljung. Prjónið með litnum ljung í 22 cm, prjónið síðan með litnum fjólublá þoka til loka. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Í næstu umferð þegar aukið er út er prjónað þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt í þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt. Haldið svona áfram með útaukningu, þ.e.a.s. byrjið 1 lykkju fyrr á undan prjónamerki í hvert skipti sem aukið er út. RENDUR Á ERMI: Þegar stykkið mælist 5-5-5-6-6-6 cm frá skiptingu fyrir handveg er skipt yfir í litinn ljung. Prjónið með litnum ljung í 22 cm, prjónið síðan með litnum fjólublá þoka til loka. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Aukið er út fyrir laskalínu. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á hringprjón 5 með litnum hveiti. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-28-28-32-36-40 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 100-108-112-120-128-136 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt á bakstykki. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (án þess að prjóna lykkjurnar): Teljið 19-21-22-23-25-27 lykkjur og setjið 1. prjónamerki hér (= hálft bakstykki), teljið 12-12-12-14-14-14 lykkjur (= ermi), og setjið 2. prjónamerki hér, teljið 38-42-44-46-50-54 lykkjur (= framstykki) og setjið 3. prjónamerki hér. Teljið 12-12-12-14-14-14 lykkjur (= ermi) og setjið 4. prjónamerki hér. Það eru 19-21-22-23-25-27 lykkjur fram að 1. prjónamerki (= hálft bakstykki). Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 16-18-20-22-23-24 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 228-252-272-296-312-328 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-21-23-24-26-28 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Prjónið frá byrjun á umferð þannig: Prjónið 35-39-42-45-49-52 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-48-52-58-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 70-78-84-90-98-104 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 44-48-52-58-58-60 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 35-39-42-45-49-52 lykkjurnar (= hált bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 152-168-184-196-216-232 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur í hvorri hlið á stykki = 76-84-92-98-108-116 lykkjur á milli prjónamerkja. Sjá RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI og haldið áfram hringinn í sléttprjóni JAFNFRAMT sem stykkið mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6-6-7-7-7-7 cm millibili alls 7-7-6-6-6-6 sinnum í hvorri hlið = 180-196-208-220-240-256 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 42-42-42-43-43-43 cm frá skiptingu í öllum stærðum – þegar ca 1 cm er eftir til loka máls. Skiptið yfir á prjón 5 og prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 44-48-52-58-58-60 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-54-60-66-68-72 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjurnar og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Sjá RENDUR Á ERMI og prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-2-2-3-3-2 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum með 4½-3½-2½-2-2-2 cm millibili alls 8-10-13-14-14-15 sinnum = 34-36-36-38-40-42 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 37-36-34-34-33-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) eða prjónið að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3 cm að loka máli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir = 40-40-40-44-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 40-39-37-37-36-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lavenderrosesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.