Tone K Johansen skrifaði:
I oppskriften står det at en skal begynne arbeidet med å legge opp på pinne nr 4 og strikke mønster A1. Deretter skal en bytte til pinne nr 3. Er det riktig ?? Videre i mønsteret står det at når en begynner på armen skal en legge opp masker på pinne nr 3, strikke mønster A4 og bytte til pinne nr 3..... Her må det være noe feil. .....
10.04.2021 - 16:54DROPS Design svaraði:
Hei Tone. Det er riktig det som står i oppskriften. Man starter nede med pinne 4 slik at ikke hullmønstret skal trekke seg sammen (heller være videre nederst). mvh DROPS design
26.04.2021 - 12:47
Ingrid skrifaði:
Ingrid Blouse
22.01.2021 - 08:06
Maija skrifaði:
Summer Whisper
12.01.2021 - 10:37
Sylvaine skrifaði:
Audrey
09.01.2021 - 13:03
JewelsHavana skrifaði:
"Oklahoma"
07.01.2021 - 18:08
Summer Land#summerlandtop |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Baby Merino. Stykkið er prjónað með gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 223-19 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið síðan umferð 2. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 204 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 17. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 17. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur eins og áður (prjónamerkið situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð í hring á hringprjón, neðan frá og upp, að handveg. Hér skiptist stykkið og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 204-228-252-276-300-324 lykkjur á hringprjón 4 með Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 yfir allar lykkjur (= 17-19-21-23-25-27 mynstureiningar með 12 lykkjum). Prjónið A.1 1 sinni á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið síðan eftir A.2 yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 12 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – sjá ÚTAUKNING = 216-240-264-288-312-336 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar eftir A.2 á breiddina. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað eftir A.3 yfir allar lykkjur (= 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar með 12 lykkjum). Haldið áfram með þetta mynstur. Prjónið þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 4 lykkjur í umferð, prjónið næstu 100-112-124-136-148-160 lykkjur, fellið af næstu 8 lykkjur, prjónið næstu 100-112-124-136-148-160 lykkjur og fellið af síðustu 4 lykkjurnar. Héðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 100-112-124-136-148-160 lykkjur. Haldið áfram með A.3 eins og áður. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið, fellið af í byrjun á hverri umferð frá réttu og frá röngu þannig: 3 lykkjur 1-1-2-2-3-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-5-5-7 sinnum og 1 lykkja 1-3-3-4-6-7 sinnum = 88-92-94-96-98-100 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm. Prjónið PERLUPRJÓN yfir miðju 48-52-54-56-58-60 lykkjur, aðrar lykkjur halda áfram í mynstri eins og áður - sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, fellið af miðju 38-42-44-46-48-50 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 25-25-25-25-25-25 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm (= 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). FRAMSTYKKI: = 100-112-124-136-148-160 lykkjur. Haldið áfram með A.3 eins og áður. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið, fellið af í byrjun á hverri umferð frá réttu og frá röngu: 3 lykkjur 1-1-2-2-3-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-5-5-7 sinnum og 1 lykkja 1-3-3-4-6-7 sinnum = 88-92-94-96-98-100 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm. Prjónið perluprjón yfir miðju 48-52-54-56-58-60 lykkjur, aðrar lykkjur halda áfram í mynstri eins og áður. Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, fellið af miðju 38-42-44-46-48-50 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 25-25-25-25-25-25 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm (= 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). ERMI: Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 84-84-84-96-108-108 lykkjur á sokkaprjón 4 með Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 7-7-7-8-9-9 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Nú er prjónað eftir A.2, þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað eftir A.3 til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-6-5-5-5 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Aukið út með 4-2-1-1-2-1 cm millibili alls 2-5-8-7-4-7 sinnum – sjá ÚTAUKNING-2 = 88-94-100-110-116-122 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-16-15-15-15-13 cm fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi (= 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Stykkið er nú prjónað til loka fram og til baka á hringprjón. Haldið áfram með A.3 og fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið, í byrjun á hverri umferð frá réttu og röngu þannig: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum, 1 lykkja 8-10-12-10-11-16 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 26-26-27-27-28-28 cm, fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið af 4 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist ca 27-27-28-28-29-29 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerlandtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.