DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Land Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað með gatamynstri, v-hálsmáli og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 223-20
DROPS Design: Mynstur bm-083
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 g litur 01, hvítur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4: fyrir A.4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir A.1.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3: fyrir sléttprjón og mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir sléttprjón og mynstur.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 5 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið síðan umferð 2.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 215 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 17,1.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 17. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur eins og áður (prjónamerkið situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (v-hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu:
Fækkið lykkjum á hægra framstykki þannig (= á eftir kantlykkjum að framan):
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í perluprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið þær lykkjur sem eftir eru eins og áður = 1 lykkja færri.
Fækkið lykkjum á vinstra framstykki þannig (= á undan kantlykkjum að framan):
Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 5 kantlykkjur að framan í perluprjóni eins og áður = 1 lykkja færri.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 6, 11, 16, 21 og 27 cm
M: 6, 11, 17, 22 og 28 cm
L: 6, 12, 18, 24 og 30 cm
XL: 6, 12, 18, 24 og 31 cm
XXL: 6, 12, 18, 25 og 32 cm
XXXL: 6, 12, 19, 26 og 33 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka, neðan frá og upp, á hringprjóna frá miðju að framan, upp að handveg. Hér skiptist stykkið og hvort stykki er prjónað til loka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 215-239-263-287-311-335 lykkjur á hringprjón 4 með Baby Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: 5 lykkjur PERLUPRJÓN (= kantur að framan) – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir næstu 204-228-252-276-300-324 lykkjur (= 17-19-21-23-25-27 mynstureiningar með 12 lykkjum), prjónið 1. lykkjuna í A.1 (þannig að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið), endið með 5 lykkjur perluprjón (= kantur að framan). Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan!
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið þannig: 5 kantlykkjur að framan í perluprjón, A.2 yfir næstu 204-228-252-276-300-324 lykkjur, JAFNFRAMT sem aukið er út um 12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, endið með 1. lykkju í A.2 og 5 kantlykkjur að framan í perluprjóni = 227-251-275-299-323-347 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar með A.2 á breiddina. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað þannig: 5 kantlykkjur að framan í perluprjón, A.3 yfir næstu 216-240-264-288-312-336 lykkjur (= 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar með 12 lykkjum) endið með 1. lykkju í A.3 og 5 kantlykkjur að framan í perluprjóni.

Prjónið þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið fyrstu 55-61-67-73-79-85 lykkjurnar, fellið af næstu 8 lykkjur, prjónið næstu 101-113-125-137-149-161 lykkjur, fellið af næstu 8 lykkjur og prjónið síðustu 55-61-67-73-79-85 lykkjur í umferð. Héðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 55-61-67-73-79-85 lykkjur. Haldið áfram með 5 lykkjur perluprjón í kanti að framan og A.3 eins og áður. Fellið af fyrir handveg, fellið af í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: 3 lykkjur 1-1-2-2-3-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-5-5-7 sinnum og 1 lykkja 1-3-3-4-6-7 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28-29-30-32-33-34 cm byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. Fækkið um 1 lykkju á eftir 5 kantlykkjum að framan, fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 21-22-23-24-25-26 sinnum – sjá ÚRTAKA. Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og handveg eru 28-29-29-29-29-29 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm (= 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 55-61-67-73-79-85 lykkjur. Haldið áfram með 5 lykkjur perluprjón í kanti að framan og A.3 eins og áður. Fellið af fyrir handveg, fellið af í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur 1-1-2-2-3-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-5-5-7 sinnum og 1 lykkja 1-3-3-4-6-7 sinnum = 49-51-52-53-54-55 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28-29-30-32-33-34 cm byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. Fækkið um 1 lykkju á undan 5 kantlykkjum að framan, fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 21-22-23-24-25-26 sinnum – sjá ÚRTAKA. Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og handveg eru 28-29-29-29-29-29 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm (= 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg).

BAKSTYKKI:
= 101-113-125-137-149-161 lykkjur. Haldið áfram með A.3 eins og áður. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið, fellið af í byrjun á hverri umferð frá réttu og frá röngu þannig: 3 lykkjur 1-1-2-2-3-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-5-5-7 sinnum og 1 lykkja 1-3-3-4-6-7 sinnum = 89-93-95-97-99-101 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm. Prjónið perluprjón yfir miðju 43-45-47-49-51-53 lykkjur, aðrar lykkjur halda áfram í mynstri eins og áður. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, fellið af miðju 33-35-37-39-41-43 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 28-29-29-29-29-29 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm (= 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg).

ERMI:
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 84-84-84-96-108-108 lykkjur á sokkaprjón 4 með Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 7-7-7-8-9-9 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Nú er prjónað eftir A.2, þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað eftir A.3 til loka.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-6-5-5-5 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Aukið út með 4-2-1-1-2-1 cm millibili alls 2-5-8-7-4-7 sinnum – sjá ÚTAUKNING-2 = 88-94-100-110-116-122 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-16-15-15-15-13 cm fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi (= 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Stykkið er nú prjónað til loka fram og til baka á hringprjón. Haldið áfram með A.3 og fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið, í byrjun á hverri umferð frá réttu og röngu þannig: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum, 1 lykkja 8-10-12-10-11-16 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 26-26-27-27-28-28 cm, fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið af 4 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist ca 27-27-28-28-29-29 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 13.04.2021
Mynsturteikning A.1 og A.4 hefur verið uppfærð.
Yfirfarið á vefsvæði: 19.08.2021
ERMAR:..Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 7-7-7-8-9-9 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina...
Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2024
Mynsturteikning hefur verið uppfærð

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Sara wrote:

Hi, When I'm knitting A1, the fourth row is started on the wrong side (purl). I am wondering where I went wrong as I assume it is supposed to be a knit row due to the explanation at the top of the diagram. Regards, Sara

09.08.2022 - 23:02

DROPS Design answered:

Hi Sara, i think you are right, i see on the picture that we didn´t purl the first row from wrong side. We will ask design for a correction, but if you don´t want to wait, you could just start with A.1 or knit one more row before you start :)

12.08.2022 - 13:39

country flag Rebekka Hauge Breum wrote:

Skal jeg nå strikkefastheden 24x32 på pind 3 eller 4, for at den kommer til at passe?

22.05.2022 - 13:11

DROPS Design answered:

Hei Rebekka. Strikkefastheten er kun veilledene, i denne oppskriften er det brukt pinne 3 for å få 24 masker i bredden og 32 pinner i høyden med glattstrikk (m/1 vrangmaske). I denne oppskriften er det brukt pinne 4 når det legges opp og strikkes etter diagram A.1 og A.4. mvh DROPS Design

23.05.2022 - 10:52

country flag Sandra wrote:

Bonjour, Au niveau des manches, il est demandé de tricoter A4 une fois en hauteur, puis continuer avec A2. Or si je me fie à la photo du modèle, le point ajouré est répété 2 fois en hauteur. Donc est ce que ce n'est pas plutôt de tricoter A1 une fois en hauteur au lieu d'A4 ? Merci de votre réponse, bonne journée !

25.07.2021 - 10:24

DROPS Design answered:

Bonjour Sandra, vous avez raison, nos stylistes vont vérifier ceci; en attendant (elles sont en vacances), vous pouvez soit tricoter 1 seule fois le motif (comme dans les explications) ou bien 2 fois (comme sur la photo), fiez-vous à ce que vous préférez. Merci pour votre retour! Bon tricot!

26.07.2021 - 08:54

country flag Karin wrote:

Hej,jag undrar om d är enkelt att göra armarna längre..typ 3/4 längd?

01.07.2021 - 12:25

DROPS Design answered:

Hei Karin. Ja, det kan du gjøre. Regn ut f.eks økningene til ermene over de cm økningene skal strikkes, slik at du får det antallet som det står i oppskriften i den str. du strikker før du skal begynne felling til ermtopp. mvh DROPS design

05.07.2021 - 11:36

country flag Lynn Moll wrote:

Thank you very much for your prompt reply. I did several of your art pieces and had no problem at all. I shall wear this jacket in this sommer with pride. Appreciate your help.

25.05.2021 - 10:58

country flag Lynn Moll wrote:

Dear Drops Team, cast-on 239 , minus 2x5 sts for bands. I have 229 left for pattern, 1 st too much. What do I do wrong? What do you mean by "work 1st st in A1"? Please shade some light for me. Thank you.

25.05.2021 - 10:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Moll, you have to work the first stitch of A.1 so that pattern will be symetrical on each side of the front band stitches, ie 5 front band sts, repeat the 12 sts in A.1 a total of 19 times, work now the first stitch in A.1 (P1 on 1st row, then 1 stitch in stocking st - work P1 in A.2) and finish with 5 front band sts. Happy knitting!

25.05.2021 - 10:38

country flag Ingrid wrote:

Liebes Drops team, eine Antwort habe ich erhalten, jedoch kann ich keine Korrektur feststellden. Bis wann wird diese Korrektur erscheinen??????? Mit Strickgrüßen Ingrid

13.04.2021 - 13:51

DROPS Design answered:

Liebe Ingrid, das Diagramm wurde korrigiert so daß das Lochmuster bei den Hinreihen gestrickt wird. Leeren Sie den Cache / Cookies wenn Sie das neue Diagram nicht sehen können - und dann die Seite noch mal öffnen/aktualisieren. Viel Spaß beim stricken!

13.04.2021 - 14:26

country flag Ingrid wrote:

Liebes Drops Team, bei der Musterzeichnugn muss ein Fehler unterlaufen sein. Der Musterbeginn laut Zeichnung (4. Reihe) ist eine Linksreihe. Wie beginnt das Muster ? Um baldige Antwort wird gebeten, das ich dies stricken möchte.

11.04.2021 - 14:25

DROPS Design answered:

Liebe Ingrid, danke für den Hinweis, das Diagram wurde korrigiert. Viel Spaß beim stricken!

13.04.2021 - 11:45

country flag Eva wrote:

Funfair vest

19.01.2021 - 08:16